Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.11.2006 at 21:30 #568868
ná bara í myndavélina og taka myndir og byrta opinberlega. Segja svo í nafni klúbbsins að þetta sé ekki liðið af neinum í okkar félagsskap eða hvað þá stundað af neinum okkar.
Haffi
P.S Hvar var þyrlan núna?
18.11.2006 at 21:35 #568706Ég held að þeir fari allir að norðan. Leggjum af stað klukkan 8:00 um morguninn og verðum þarna semsagt á bilinu 10:00 til 10:30. Á einmitt að prufa Excursion á 46" dekkjum í snjó. Það verður bara gaman.
Haffi
P.S Hrönn. Settu bara inn númerið þitt ef þú vilt fljóta með okkur. Ég hringi bara í þig í fyrramálið.
18.11.2006 at 20:34 #568700á Langjökul, tvær björgunarsveitir héðan úr vestur Húnavatnssýslu og nokkrir einkabílar með í för líka. Verðum þarna uppfrá við Jaka sirka klukkan tíu í fyrramálið.
Haffi
17.11.2006 at 11:36 #568412Ég mundi nú ráðleggja þér eindregið frá því að hafa blessaðan geyminn inn í bílnum. Það myndast vetnisgufur útfrá geymum þegar þeir hlaðast og hana er ekki nokkrum manni hægt að bjóða vilji hann halda lífi. Svo er þetta ekki gott upp á að lenda í slysi eða eitthvað álíka því að geymasíran er ansi skæð skilst mér. Ekki veit ég samt hvort að þetta er standard að hafa geymana inní LandRover eða ekki en mér finnst þetta ekki sniðug hugmynd.
Haffi.
16.11.2006 at 20:22 #567520Hvað er að gerast þar Kjartan? Á ekki að kenna öllu þessu fólki allt sem það þarf að kunna og vita uppi á sjálfum reginfjöllum,eða hvað? Ég hefði allavega haldið það.
Haffi og Toppurinn.
05.11.2006 at 23:14 #566844Búinn að setja eitthvað inn. Tók nú ekki margar en eitthvað þó sem að sannar að við höfum farið eitthvað á meðan þeir og þær allra hörðustu hafi setið inni og drukkið meðan við héldum heyðri jeppamanna á lofti.
05.11.2006 at 22:10 #566838Þú segir það Hjalti, takk fyrir túrinn. Ég er búinn að setja inn myndir reyndar en enginn þeirra af þínum, bara mínum því mér finnst hann flottari. Hehe. Ég skelli inn fleyrum.
Haffi
05.11.2006 at 17:51 #566750Heyrðu Jóhannes, þú verður að rukka Jón Ofsalega fyrir að bjarga bílnum fyrir hann. skil reyndar ekki með þessa árshátíð að hafa hana þegar það er þetta fína veður úti og nægt af snjó í fljótandi formi út um allt hálendið.
Kv. Haffi.
03.11.2006 at 16:11 #565844Hjalti ert þú sá eini fyrir utan mig sem að ætlar að skreppa eitthvað í góðan snjó á morgun? Viltu ekki bara vera í bandi við mig og sjá svo til hvort að fleyri smalist í ferð. Kem suður á eftir nefninlega.
Kv Haffi
848-4807
02.11.2006 at 22:32 #565816Hvað segiði spekingar, á ekki að skreppa neitt um helgina?
Haffi
30.10.2006 at 01:15 #565890leitarvélin hérna í horninu.
þetta voru reyndar þrjú orð og einn stafur 😉Haffi
29.10.2006 at 23:25 #565766Óskar, það er alveg skiljanlegt að þú sért teljandi. Þetta sport er eins og hvert annað "fíkniefni" (án þess að ég hafi einhverja reynslu af þeim) en þetta mun allt lagast og einkennin minnka þegar þú mætir í vinnuna á morgun og næstu daga. Það er fljótt að líða fram að næstu ferðum ef að maður hugsar ekki mikið um þær sko.
Haffi
29.10.2006 at 21:46 #565746Þú ert bara svo tvöfaldur í roðinu.
Það væri gaman að skreppa eitthvað með góðum jeppamönnum og konum næstu helgi í dagstúr, jafnvel uppá Langjökul eða nánasta nágrenni.Haffi
28.10.2006 at 17:49 #565210Hvernig er þetta Magnum, varst þú ekki sjálfskipaður fréttastjóri þessarar ferðar?
Fær maður ekkert að frétta af þessu liði?Haffi
25.10.2006 at 23:29 #565160Ég kemst því miður ekki með. Þarf víst að sinna einhverjum erindum á laugardag sem ég var að komast að núna áðan. Þið skemmtið ykkur bara af fremmsta megni án mín. Hehe.
Haffi
25.10.2006 at 14:14 #565152Spurning hvort að maður láti ekki sjá sig að norðan og fari bara með. Verst hvað þetta er snemma hjá ykkur:(
Annars er maður orðinn svo hungraður í að komast í smá snjó að manni munar ekkert um það að keyra smá vegalengd til að fólk geti nú borið mann augum. Ef þú ert að pæla í vegalengd miðað við eldsneytisnotkun Siggi, þá hefur fullur tankur dugað í svona dagstúr þar sem menn eru að keyra stóran hluta á snjólausum vegum þar sem lítið rennur af bílunum.Haffi og Toppurinn
14.10.2006 at 16:22 #198727Sælir og sælar. Ætla menn eitthvað að skreppa á Langjökul á morgun, sunnudaginn 15/10.
Hvernig er veðrið og aðstaðan þarna þessa dagana?Haffi
13.10.2006 at 18:38 #563266Hvað með frægasti klúbbmeðlimur, sem sagt sá sem hefur mest birst í blöðum og svoleiðis. Ekki tekið mark á for(d)manninum þar sem þa er hluti af hans starfi að tala fyrir klúbbinn.
Haffi og Toppurinn frægi.
08.10.2006 at 21:19 #562676Lúther. Þetta eru svona samúðarfestur hjá for(d)manninum okkar.
Haffi
07.10.2006 at 17:05 #562712hvað mönnum þykir fagurt eða ekki. það er ekki það sem skiftir máli, eða jú kannski einhverju máli en er bara að ná ákveðið langt og að ákveðnum fjölda hlustenda. Það sem þetta þarf að vera er virðing og meiri virðing. Eru þeir sem stjórna pennanum og ákveða hvort og hvar virkjanir eiga að koma að virða landið og óskir landans, eða einfaldlega að virða aurinn? Svo er það líka spurning um hvar línan er dregin í þessum keimlíku málum. Má hvar sem er virkja og draga efni úr landinu og allir segja bara allt er í lagi, en ekki keyra á hálendinu þó að ekkert skemmist nema gúmmíið undir jeppunum okkar. Hvað mundu bílaumboðin segja og gera ef að þeim yrði gerður ljós hugsanlegur skaði og viðskiftarmissir í ljósi minnkandi (ef ekki hverfandi) kaupa á bílum af þeirri sort er við erum að aka. Hvað með breytingarverkstæðin og innflytjendur dekkja í yfirstærð. Við skulum fá þá í hóp með okkur og sjá hvað gerist þá.
Virðingarfyllst gagnvart íslenskri náttúru og manninum og sem "býr" þar.
Hafþór Atli H-1811
-
AuthorReplies