Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.09.2009 at 21:58 #658758
Hvernig bíl ert þú með? Hefuru tækifæri til að smella af því mynd og setja hér inn eða senda mér?
24.09.2009 at 21:39 #206683Sælir, er einhver LandCruiser eigandi sem er búinn að gefast upp á rafmagnsmótornum á afturlæsingunni hjá sér og er búinn að skipta honum út fyrir lofttjakk?
Veit að það er búið að gera þetta á einhverjum Hiluxum og það er hægt að finna gamla þræði um það hérna á spjallinu. Hef þó hvorki fundið myndir eða nánari skýringar á hvernig þetta er gert.
Það væri gaman ef að einhver sem hefur gert eða látið gera þetta hjá sér myndi sýna okkur hinum myndir af því hvernig þetta lítur út og er útfært.
19.09.2009 at 17:42 #658094Kistufelli
12.08.2009 at 23:42 #653868http://forums.bauchan.org/portal/downloads.php
Hérna má svo dánlóda viðgerðarhandbókum fyrir hina og þessa bíla, meðal annars LC80
12.08.2009 at 23:40 #65386629.07.2009 at 17:27 #652698Svona dót fæst í Bílasmiðnum á Bíldshöfða
06.06.2009 at 00:36 #64853212 volta alternator er langsamlega besta lausnin í þessu. Ef þú hefur tækifæri til að græja það þá skaltu ekki hika við að drífa þig í það.
14.04.2009 at 17:31 #645692Sæll, ég átti einn svona fyrir nokkrum árum með einmitt þetta sama vandamál.
Ég fékk lánaðan skífumæli til að skrúfa í staðinn fyrir skynjarann í blokkinni til að mæla þetta almennilega.
Sú mæling leiddi ekkert óeðlilegt í ljós svo að ég keypti nýjan skynjara og við það varð allt eðlilegt á ný. Hef líka heyrt sömu sögu af 80 cruiser.
Myndi mæla með að þú athugaði þetta áður en þú ferð að gera upp allan mótorinn.
29.03.2009 at 16:14 #644696Tæknivélar á Tunguhálsi 5, s. 577-1500
05.03.2009 at 12:51 #642494Tæknivélar á Tunguhálsi hafa verið að laga þessa mótora.
17.02.2009 at 20:22 #641176[url=http://ja.is/hradleit/?q=au%C3%B0unn%20b%C3%B3lstrari:1a1r99e5][b:1a1r99e5]Auðunn bólstrari[/b:1a1r99e5][/url:1a1r99e5]
02.02.2009 at 18:16 #639772Hér á íslandi er Bílabúð Benna með umboð og varahlutaþjónustu fyrir Warn.
En svo er líka nóg hægt að finna á netinu.
31.12.2008 at 13:13 #635916En þar sem Freyr er ekki fagmaður á þessu sviði fékk hann einföldu útgáfuna 😉
http://stores.ebay.com.au/Sports-Lights-Store
Ég fann svona clear lens ljós í þessari E-bay verslun eftir örstutta leit.
Spurning hvort við ættum að panta tvö sett ef þú ferð útí að panta þetta, allavegna ef við getum eitthvað sparað sendingarkostnað. Jafnvel reyna að finna þá glær stefnuljós á frambrettin líka.
31.12.2008 at 11:22 #635912Sæll Freyr.
Baksnertureley eru með fimm pinnum, þau virka eins og venjuleg relay nema að þegar þau eru með tveimur snertum.
Sumsé að þegar þau eru straumlaus tengja þau saman pinna merkta 30 og 87a en þegar settur er straumur á þau tengja þau saman 30 og 87.Þetta er nokkuð augljóst ef maður skoðar myndina á relayinu.
Það er mjög auðvelt að finna meiri upplýsingar um þetta með smá gúggli.
31.12.2008 at 01:39 #635908Getur notað hvaða baksnertureley sem er, ég reikna með að þú sért að tala um dimmer releyið þetta sem bráðnar alltaf.
Þú verður bara að laga víralúmmið inni í öryggjaboxinu að því releyi.
Hvít gler er yfirleitt auðvelt að finna á ebay, ég hef allvegna séð þau þar oft.
17.12.2008 at 12:30 #634812Renniverkstæði Ægis hefur átt ryðfría stimpla í Toyotur.
Setur þú ekki örugglega ný gúmmi utan um stimplana þegar þú setur þetta saman? Og passar að gúmmíin fari í rétt sæti áður en þú setur stimpilinn í, svo að hann haldi gúmmíinu á sínum stað?
29.11.2008 at 11:39 #633716Takk fyrir viðbrögðin, við kíkjum eitthvað betur á þetta í vikunni
27.11.2008 at 13:56 #203277Daginn.
Félagi minn á 2003 módel af Trooper.
Trooperinn lætur illa þessa dagana og okkur langar að fá spekingana hér til að ausa úr viskubrunnum sínum.Málið er það að hann gengur illa, stundum er eins og hann gangi ekki á öllum, drepur stundun á sér í hægagangi til dæmis ef bakkað er út úr stæði, og á meðan hann er færður frá D í R þá drepur hann á sér.
Eins einkennilega og það hljómar virðist þetta vera verra þegar miðstöðin er á fullum blæstri. Stundum er líka eins og hann auki gjöfina um nokkur hundruð snúninga þegar miðstöðin sett á fullt.
Þegar hann gengur hæga ganginn gefur hann sér líka stundum inn sjálfur, eins og einhver sæti inni og gæfi hressilega inn.
Búið er að láta IH tölvulesa bílinn, eftir það var skipt einhverja skynjara og „common rail“ rofa. Einnig er búið að skipta um olíur og síur.
Kannast einhver hér við svipaða lýsingu? Hafa menn einhverjar sniðugar hugmyndir af lausn. Það er hvorki í boði að henda honum og kaupa Patrol eða Landcruiser þannig að við afþökkum þau ráð innilega.
13.11.2008 at 21:55 #632578Bræða 22 sentimetra ljós í alvöru betur af sér en 21 sentimetra?
12.11.2008 at 23:27 #632718Skoðaði þetta betur, hann er í olíuverkinu.
Ég ætlaði nú að reyna að nota þessi "hjálpartól" sem eru hér við hliðina til að setja inn link eða mynd. Það virkaði að sjálfsögðu ekki þannig að hér kemur slóð.
http://i44.photobucket.com/albums/f20/h … 1226532892
-
AuthorReplies