FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Gunnar Ingi Arnarson

Gunnar Ingi Arnarson

Profile picture of Gunnar Ingi Arnarson
Virkur síðast fyrir 8 years, 4 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 2
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 812 total)
← 1 … 4 5 6 … 41 →
  • Author
    Replies
  • 28.07.2014 at 08:41 #770189
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Er hann að slá saman hjá þér á þessum vegum eða er hann bara svona höggmikill þegar ekið er yfir þvottabrettin og slíkt ?

    Góðir demparar geta gert gæfumunin á akstri bifreiðar þannig að lélegir/lekandi demparar missa fljótt dempunareiginleikana.

    Bilstein eru flottir í dempara hönnun, en á móti má ekki hunsa það að úrhleypingin skiptir sköpum ef maður ætlar að keyra á malarvegum til að nýta dekkin til fulls.

    Poulsen selur Bilstein.

    k kv
    gunnar





    28.07.2014 at 08:28 #770188
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Ahhhh þetta er að taka á sig mynd, frábært. Það verður gaman að sjá framhaldið.

    hvað ertu með langa dempara í þessu ? (bypass 😉 það líkar mér)

    Verður framfjöðrunin líka tekin í gegn ?

    Ertu að notast við einhverja fjöðrunar reiknara í þessu hjá þér ? eða bara tekið eftir reynslubankanum.

    k kv
    Gunnar Ingi





    14.07.2014 at 13:42 #770015
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Fyrsti snjóskafl sem þú lendir á mun afgreiða þennan vel…. annars bara cool að hafa þetta rough looking.

    Athugaðu líka að ef þú lendir í góðum snjóskafl framan á bílnum þá gætu slöngurnar losnað af honum, bara pæling.

    ég myndi smíða rör fyrir framan hann og setja gataplötuna á þau , þá myndi þetta líklegast halda í snjóskaflinum.
    kv
    gunnar





    14.07.2014 at 13:39 #770014
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    hahaha.. afsakaðu hláturinn.

    Óbreyttur svona bíll er með sirka 15-20 innanbæjar og sirka 10 til 14 utanbæjar… fer eftir vindi.

    Ekki nema þessi wrangler sé ekki með sama boddíi lengur… þetta boddy er ferkantað og ekki með neitt sem heitir vindhönnun í því og þessvegna eyðir hann svona hressilega og fer mikið eftir vind hvernig eyðslan er.
    Minn var einu sinni á 36″ dekkjum með 2.5 vélinni og gjöfin var í botni og hann hélt 70-80 kmh…. tjaaa eyðslan sirka 25 á hundraði. Þá var líka mikið rok… :)

    kv
    Gunnar





    01.07.2014 at 18:48 #769799
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sælir,

    Já þetta er skref framávið að mínu mati fyrir klúbbinn. Hann hefur falið sig of lengi í einhverju skúmaskoti á bakvið haug af bílasölum. Þessi nýja staðsetning hentar okkur mjög vel, með tilliti til bílastæða og stærð húsnæðis. Það ætti ekki að vera erfitt að manna einhvern mannskap þarna niðureftir í vinnu til að koma þessu í starfhæft ástand sem síðan má bæta á næstu árum.

    Við erum að borga helling í leigu á Eirhöfðanum sem er ekki mjög hentugt húsnæði að mínu mati fyrir klúbbinn.

    k kv
    Gunnar Ingi





    05.06.2014 at 08:22 #769191
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sæll Bragi,

    Eru einhver trix við að halda þeim í lagi, eru þær að tærast utan frá ? eða innanfrá ?

    Já ég vissi einmitt af 2-3 piece design á kertunum og ´buinn að lesa einhverjar hryllingssögur um það en ætti að sleppa á þeim sem ég er að skoða í dag. eknir 100þ
    beint í kertaskipti hehe.

    Durango er mér ekki að skapi útlitslega séð.. eh sem pirrar mig við hann.

    Jæja þá kannski verð ég eigandi af Jeep -Chevy (drifrás) og síðan Ford trukk. maður verður að blanda þessu saman :)

    kk v
    gunnar





    04.06.2014 at 17:04 #769174
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Kærar þakkir félagar,

    Jeep er ekki með nóg pláss :) ég er plássfrekur með marga krakka 😉

    Chevy virðist vera verðlagður upp úr þakinu… þannig að Ford verður það líklegast :) Prufa 2 á morgun og sé til

    Maður hættir að tala um eyðslu þegar cylindrar ná fjölda = 8… þá talar maður um að hann notar en ekki eyðir 😉

    kær kveðja
    Gunnar Ingi





    03.06.2014 at 09:16 #769163
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sælir félagar,

    er að pæla í að kaupa mér einhvern af þessum bílum til fjölskyldu notkunar, sirka 2007 módelið.

    Hefur einhver reynslu af þessum bílum hérna ?

    Bilanatíðni, eyðsla, þægindi ?

    ps er ekki búinn velja neinn ennþá.

    k kv
    Gunnar Ingi





    31.05.2014 at 15:37 #769044
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sæl veriði,

    Hér er listi yfir stjórn og nefndir fyrir Ferðaklúbbinn 4×4 næsta starfsárið. Þökkum fráfarandi stjórnar og nefndarmönnum fyrir flott starf fyrir klúbbinn undanfarið ár.

    Stjórn
    Sveinbjörn Halldórsson Formaður
    Elín Björg Ragnarsdóttir stjórnarmaður
    Friðrik Halldórsson stjórnarmaður
    Árni Bergsson stjórnarmaður
    Gunnar Ingi Arnarson stjórnarmaður
    Rúnar Sigurjónsson Varam. Til tveggja ára
    Logi Már Einarsson Varam. Í eitt ár

    Fjarskiptanefnd
    Sigmundur Sæmundsson Meðstj.
    Árni Þór Ómarsson Meðstj.
    Gunnar Sigurfinnsson
    Hjörtur Arnar Óskarsson

    Hjálparsveit
    Stefán Baldvinsson Meðstj.
    Pétur Friðrik Þórðarson Ritari
    Hjörtur Sævar Steinason Meðstj.
    Gunnar Hróðmarsson Meðstj.

    Húsnæðisnefd
    Einar Sólonsson Formaður
    Árni Bergsson Ritari

    Hústrukkanefnd
    Grétar Hrafn Harðarson Formaður
    Trausti Kári Hansson Ritari
    Viggó Vilbogason Meðstj.

    Litlanefnd
    Gnýr Guðmundsson Formaður
    Baldur Steingrímsson Meðstj.
    Þórarinn Guðjónsson Meðstj.
    Sigurður Magnússon Meðstj.
    Árni Bragason Meðstj.

    Skálanefnd
    Guðmundur Geir Sigurðsson Meðstj.
    Styrmir Frostason Meðstj.
    Baldur Harðarsson
    Jón Óskar Valdimarsson
    Einar Sólonsson
    Ómar Wieth Meðstj.

    Skemmtinefnd
    Einar Sólonsson Formaður
    Ágúst Birgisson Ritari
    Logi Ragnarsson Siðgæðisvörður
    Guðmundur Sigurðsson Skjalavörður
    Kristján Gunnarsson Butler
    Sveinbjörn Halldórsson Birgðavörður

    Tækninefnd
    Benedikt Magnússon Formaður
    Rúnar Sigurjónsson Ritari
    Valur Sveinbjörnsson Meðstj.
    Örn Ingvi Jónsson Meðstj.
    Rafn Magnús Jónsson Meðstj.
    Karl Rútsson Meðstj.

    Umhverfisnefnd
    Hjörtur Sævar Steinason Formaður
    Þórarinn Garðarsson Ritari
    Jón Guðmundsson Meðstj.
    Jón G Snæland Meðstj.
    Trausti Gylfason Meðstj.
    Bergur Pálsson Meðstj.
    Snorri Ingimarsson Meðstj.

    Vefnefnd
    Sigurður B. Sigurjónsson Formaður
    Hafliði S. Magnússon Vefstjóri

    Sjáið hér lista yfir fólk sem sinnir sjálfboðavinnu fyrir okkur í klúbbnum og ástæðan fyrir að hann er starfandi. Þetta er mjög skemmtilegt og krefjandi starf sem allir félagsmenn ættu að prufa í framtíðinni.

    Ps. það vantar aðeins yfir hverjir eru formenn í nefndum en það kemur síðar eða kannski koma bara nefndarmenn með það hér að neðan :)

    Takk fyrir síðasta starfsár og ég hlakka til þess næsta.

    kær kveðja
    Gunnar Ingi
    Stjórn





    08.04.2014 at 15:05 #456325
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Hérna eru nokkrar fallegar myndir úr stórferðinni 2014. Veðrið lék við okkur og gleðin í hámarki.

    Jeep Gengið
    kv
    Gunnar

    Viðhengi:
    1. DSC_0782.jpg
    2. DSC_0786.jpg
    3. DSC_0789.jpg




    05.04.2014 at 19:36 #456298
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    hmmmm skrítið… skv bfgoodrich sjálfum ætti þetta að vera eins og ég lýsti

    http://www.bfgoodrichtires.com/tires-101/tire-basics/about-tires/reading-your-sidewall.page

    kannski ertu bara með framtíðardekk 😉

    kv Gunnar





    05.04.2014 at 09:59 #456295
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    semsagt er þetta ekki galli, nema dekkið væri spónnýtt og aldrei verið hleypt úr því.

    kv
    gunnar





    05.04.2014 at 09:57 #456293
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Dekk springa oftast vegna 2 ástæðna.

    of mikið búinn að standa í sól og þarmeð stirðnar gúmmíið og dekkið gefur sig þar sem það er veikast, sem er skv myndinni hjá þér þá svignar kanturinn á dekkinu greinilega mjög lítið og þarmeð myndast sprungan þar sem það leyfir sveigju á ný.

    búið að keyra á því mikið vindlausu og hitnar… og þarmeð missir gúmmíið líka sveigjanleika sinn og springa.

    í þínu tilfelli hefur það lent í öðru hvoru… og jafnvel báðu..

    Síðan springa dekk oft meira eftir aldri, en þá hefur það oftast lent í báðum aðstæðum er ég nefni hér að ofan.

    Ef að dekkið lekur ekki lofti þá ætti burðurinn í því að vera í lagi, því burðurinn er ekki í ysta gúmmí lagi dekkjarins, heldur í strigalögum og inn að innsta kjarna…. einnig ef það lekur ekki þá ætti innra gúmmíið að vera í lagi en á móti gæti verið mjög stutt í að að þetta dekk verði ónothæft vegna áframhaldandi sprungumyndunar og þarmeð heldur það ekki lofti.

    þú getur séð ártalið á framleiðslunni á dekkjunum á hlið þess þar sem stendur DOT. síðustu fjórir tölustafirnir segja til um aldur þess, fyrstu 2 af fjórum segja vikuna á árinu sem það var framleitt og síðustu tveir ártalið.. t.d. 3405 væri þá í 34 viku og árið 2005. þetta byrjaði 2000. Ef dekkið er eldra en 5 ára þá myndi ég telja a það væri orðið gamalt.

    Vonandi svarar þetta forvitni þinni í dekkjasprungum.

    kv
    gunnar





    22.03.2014 at 09:47 #454405
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Lokið kl 01:30 aðfararnótt föstudags 7 mars.

    Viðhengi:
    1. tmp_422731708.jpeg
    2. tmp_1406387387.jpeg
    3. tmp_-624745996.jpeg
    4. tmp_676883633.jpeg
    5. tmp_1979499520.jpeg




    22.03.2014 at 09:45 #454399
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Meira af lokamínútunum bókstaflega fyrir stórferð

    Viðhengi:
    1. tmp_-1030352530.jpeg
    2. tmp_-1524630294.jpeg
    3. tmp_-1814864877.jpeg
    4. tmp_1838950708.jpeg
    5. tmp_-1771133605.jpeg




    22.03.2014 at 09:43 #454393
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Samsláttur aftan 20cm. 16″ bypass. Heildarfj ca 56cm

    Framan 13-15cm 12″ bypass. Heildarfj 30cm

    Update í lokasmíðinni :)

    Viðhengi:
    1. tmp_1702861637.jpeg
    2. tmp_1304971876.jpeg
    3. tmp_-204646371.jpeg
    4. tmp_-437639167.jpeg
    5. tmp_-376171495.jpeg




    13.03.2014 at 16:43 #454119
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sælir

    Hér er smá video af því litla efni sem ég tók upp í ferðinni…. einhvern veginn gleymdist bara að setja upp myndavélina….var kannski of upptekinn að hlusta á öll nýju hljóðin í bílnum :)

    Já okkur fannst einhvern veginn skrítið að senda alla þjóðveginn heim í ferðalýsingu en það var frjálst og við í Jeep genginu höfðum planað að taka kjöl og langjökul heim en ekki varð úr því vegna veðurs og aðstæðna. Þrátt fyrir það var þetta mjög flott ferð og ég og Gummi fórum eins og hann segir Grjóthálsinn og kaldadal heim sem var smekkfullur af snjó á veginum þar…

    kv
    Gunnar





    12.03.2014 at 09:23 #454067
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sælir,

    Já Guðmundur hefur heldur betur sannað sig í hönnunarhæfileikum og Kiddi í smíði. Kláruðum að setja hann í gangfært form kl 01:30 á fimmtudagsnótt, komum upp í Hrauneyjar kl 05:30. Keyrði 3 daga túr án þess að nokkuð hafi komið fyrir… Vægast sagt snillingar hér á ferðinni. Allmargir Jeep gengis menn tóku upp hanskann á síðustu metrunum og með hjálp allra sem ég þekki tókst þetta og heppnaðist svona svakalega vel. Takk fyrir mig.

    Rassíður, já ég fékk vitlausa gorma að framan og aftan senda… of stífir að framan og of mjúkir að aftan. Við skrúfuðum hann reyndar upp á laugardeginum og þá batnaði hann til muna en mig vantar þó stífari gorma ennþá.

    k kv
    Gunnar





    08.03.2014 at 20:43 #453787
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    já þessi græja mun kollverpa jeppa breytingum til framtíðar :)
    svínvirkar og þetta tókst :)
    kv úr Blönduósi
    Gunnar
    Ultimate





    04.03.2014 at 07:58 #453621
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Takk Árni,

    já reynslutúrinn verður líklegast rvk kerlingafjöll…. síðan verður haldið áfram á miðjuna 😉

    Jæja við ætlum að starta mótornum í dag… í fyrsta sinn. Það er stærsti factorinn sem er óvitaður…. fer græjan í gang.

    framendinn fer á í dag, brettakantar, gluggastykki, skottlok og hurðar… og mælaborð.. jæja nóg að gera..

    k kv
    Gunnar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 81 through 100 (of 812 total)
← 1 … 4 5 6 … 41 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.