Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.04.2007 at 06:26 #586938
Einn félagi minn er með cherokee breyttan, 87 árgerð og er ekinn yfir 300 þús.
hann er með 4 gíra sjálfskiptinguna, trikkið við að halda skiptingunni gangandi er að setja tappa á olíuplötuna á skiptingunni og skipta um alla þá olíu sem hægt er að taka af hverju sinni af skiptingunni(sirka helmingur magnsins) um leið og hann skiptir um olíu á vélinni sjálfri, þannig hefur hún endst og endst hjá honum.5 gíra beinskiptingin er líka fín, ég hef heyrt að það þurfi hugsanlega að skipta um legur í kassanum í um 150 þús… en það er nú bara eðlilegt svosum.
Með millikassa þá er original kassinn í cherokee np 231 eða np 242 , báðir eru með 2.72 lága drif. ´Þeir eru báðir mjög sterkir millikassar og þola vel 8 cyl power. (ég nota 242 með v8) Eina spurningin er hvernig hásingin að framan er hjá þér, þ.e.a.s. hvort er inntakið fyrir drifskaftið bílstjóramegin að framan eða farþegamegin. Ef það er bílstjóramegin þá geturðu fengið þér alla driflínuna úr cherokee og sett beint í. Ef það er farþegamegin þá þarftu að fá þér annan millikassa, t.d. dana 300… hann er með útganginn farþegameginn.
Með 4:88, þá er betra að hafa 4:56 , því það er sterkara drif, en 4:88 ætti alveg að duga ef varlega er farið og ökumaðurinn vitandi um að búnaðurinn sé svona smá viðkvæmur.
kv
Gunnar
03.04.2007 at 22:12 #586932Ranger.. árgerð sirka 2002.. og uppúr.. eru með 210 hp.. eldri týpur.. 170 hp.
4.0 lítra cherokee vélar eyða ekkert miklu… ekki ef þær eru í sæmilegu ástandi. Þær endast rosalega vel og bila lítið, en auðvitað verður að skipta um kerti, háspennukefli, þræði, súrefnisskynjara, hreinsa kvaðrakútinn… (oftast stíflast þeir eftir sirka 100 þus keyrslu) .. Ef allt annað er í lagi í vélinni þá eru þeir ekkert að eyða miklu.
Þú getur googlað… Grand cherokee.. með 4.0 lítra vélinni.. og það er sama vélin og hefur verið síðastliðin 15 ár.. eða svo. Reyndar eyddur vélar minna sem voru með peogot innspýtingu .. árgerð 87 veit ég um..
á google geturðu séð fullt af reynslusögum um eyðslur og slíkt… um allar vélar.
kv
gunnar
03.04.2007 at 21:30 #586928302 5.0 lítra fordinn var að skila á bilinu 200 til 300 hp… allt miðað við úr hvaða bíl hún kom.
351 windsor, er að skila frá 250 til 350 hp… sama hér, eftir því hvernig búnaður er á henni..
4.3 vortech, mótorinn var að skila 190 hp að mig minnir
315 5.2 magnum, var að skila 220 hp … sú vél græðir mjög á tölvukubb frá mópar og 3" púst.. ja líkast hinar vélarnar líka.
Fyrir þig þá eru allir hér nema einn mótor of stór fyrir hásingarnar þínar og það er 4.3 vortech. Einn mótor sem þú ættir að skoða er 4.0 lítra 6 inline cherokee mótor.. hægt að fá þá mjög mjög ódýrt. þeir eru 185 hp. t.d. í vöku. Annar mótor væri 4.0 v6 úr ranger eða ford explorer, hann er frá 170 og upp í 210 eftir árgerðum.
Varðandi hlutföllin hjá þér þá myndi ég ekki fara lægra en 4:56 ef þú ætlar þér að stækka vélina. það er líka alveg nógu lágt drif fyrir 38" dekk ef þú ert með sæmilegan mótor.
Ég sjálfur er með 3;73 og 4.7 lítra mótor og það virkar fínt.. þó svo að ég ætli að fá mér 4:56 í sumar.. þegar $ koma inn.. (námsmaður)
Ég var með 2.5 lítra bensín mótor hjá mér, þá eyddi bílinn 18 lítrum innanbæjar og 18 lítrum utanbæjar… skipti um mótor.. og innanbæjar eyðslan var 18 lítrar og utanbæjar 13 lítrar.. Stórt er ekki endilega slæmt.
Eyðsla á fjöllum jókst ekki, þar sem litli mótorinn var oftast í botni til að hanga í ferðafélögunum.
ÞEssar 8" drifs toyotu hásingar þola illa eitthvað lægra en 4:56 ef þú ætlar að vera með vél sem skila einhverju. Þó svo að margir séu að nota þennan búnað þá er það oftar en ekki að menn séu að skipta um 5:27 drif árslega…. ef stórir mótorar eru notaðir..
kv
Gunnar..
03.04.2007 at 11:33 #586964Afsakaðu ofsi.. ég var algjörlega að misskilja skrifin þín
Aftur í tíman.. = the good old days..
hehe..
Já benni, prufaðu að eyða jafnmiklu í tjúnkit á 4.6 vélina og þú ert búinn að eyða í 6.0 og síðan taka test..
Settu einn blower á hana og hún skilar sirka 450 hrossum…. sem kostar 3000$…
Ekki alveg sambærileg prófun..
en benni ég skal spyrna við þig.. með mína litlu 4.7.. sem skilar varla 250 hrossum.. og sjá hver úrlausnin verður.. 😛 ef þú tekur 5.7 hemi Cherokee í spyrnu þá játa ég mig sigraðan.. en ég var óvart að leika mér við hliðina á svoleiðis bíl um daginn og það var hálf kjánalegt þar sem báðir bílarnir eru með sömu skiptingar og við vorum algjörlega samsíða upp í 100… slóum af þá.
kv
gunni
03.04.2007 at 00:43 #586948Afhverju segirðu að það sé afturför þegar menn skipta um vélar til að fá meira afl, þar sem menn eru að breyta jeppunum með þyngdaraukningum og mun stærri dekkjum. Og frá diesel yfir í bensín, er það ekkert skrítið þar sem bensín vélarnar vikta sirka 40% minna en diesel vélar og skítt með eyðsluna. Ekki vantar peninginn hér á landi…. eða allavega miðað við alla nýju bílana og skuldahala á götunni.
Þróunin í bílaiðnaði er meiri kraftur sama hvaða bíl þú horfir á og það er þá ekkert skrítið að menn sem eyða milljónum í fjallatæki vilji að faratækið geti hreyfst hugsanlega á þeim hraða sem skemmtir þeim. Er það ekki til þess sem sportið er.. að skemmta sér.
Jú það eru komnar æðislega spennandi diesel vélar frá t.d. bmw og benz sem eru að skila bunka af hestöflum, og smíðaðar úr áli. En það dettur engum íslendingnum að gera það útaf kostnaði… comon er það nú ekki of gömul rulla til að eyða skrifum í.
Ísland flæðir í velmegun, allavega miðað við bílaflota landans…. og skuldahalana sem fylgir.
kv
Gunnar.. sem jú skipti um mótor til að skemmta sér betur á fjöllum.
02.04.2007 at 23:02 #586870Það er nátturulega til endalaust af bílum sem eru boddý hækkaðir með allt of háum klossum. Þegar settir eru ja t.d. 10 cm klossar á milli grindar og yfirbyggingar þá er búið að mynda þar gífurlegan álagspunkt og þarafleiðandi bil á milli grindar og yfirgrindar. EF að jeppi sem er mikið hækkaður og með slíka boddýhækkun lendir í árekstri við fólksbíl þar sem allt álagið fer á grindina á bílnum þá segir sér það sjálft að boltarnir í boddyhækkuninni gefi sig eða boddyfestingin, gefið að eitthvað er búið að mixa í þessu. (+ ryð)
Mér finnst persónulega að það ætti að vera einhver takmörkun á þessum boddy hækkunum.
kv
Gunnar, boddyhækkunar mótmælasinni 😛
02.04.2007 at 08:59 #586826Á góðri ísl-amerísku…
Ég er með svona að framan hjá mér í hliðarstífunni í öðrum endanum síðan er ég með gúmmí í hinum. Virkar mjög vel. ekkert slag komið eftir 2 ár, bara smyrja þettta.
kv
GunnarVenjulega koma þeir með mjög stóru gati í miðjunni, en ég líkt og aðrir sem nota þetta fá einhvern til að renna öxul með boltastærðinni sem maður ætlar að nota.
01.04.2007 at 18:11 #586786Ertu ekki að tala þá um sömu hásingu og er undir nissan terrano… litla hásingin kom með bensín bílnum en stærri gerðin með diesel..
örugglega hægt að fá þær hræódýrt í vöku.. eða álíka partasölum..10 – 30 þus… ef þú skrúfar sjálfur.
kv
Gunnar
30.03.2007 at 15:13 #586494Ef þú ert í alvöru að spá í þessu þá mæli ég aðeins með einum manni í að breyta honum fyrir þig. Það er hann Guðmundur hjá G.J. Járnsmíði. Hann hefur breytt ótalmörgum Cherokee + Grand. Þar færðu alvöru breytingu með mjög góðum aksturseiginleikum, þar sem guðmundur er snillingur í hönnun á breytingum.
s: 564 2195
kv
Gunnar
30.03.2007 at 11:25 #200029Rakst á þetta á You Tube… þessir jeppakallar eru rosalegir… 😛
(reyndar má nú varla telja þetta sem jeppa þarna)
kv
gunnarLöggu eltingarleikur við pallbíl… Íslandi
30.03.2007 at 11:12 #586232Jæja bróðir kær, vonandi verð ég ekki kærður fyrir að birta þetta af ykkur félögunum sprauta upp úr Dalnum eins og myndirnar sýna 😛
Geggjað flott video, Amerísk hross þarna á ferðinni.
kv
Gunnar bróðir[url=http://www.youtube.com/watch?v=k3ZIpxEFZAQ:zyjauwaq][b:zyjauwaq]YJ Scrambler og TJ Rubicon að sprauta upp brekku….[/b:zyjauwaq][/url:zyjauwaq]
29.03.2007 at 21:56 #586226Vá, þið hafið fengið draumaveðrið þarna uppfrá… Glæsilegir rauðir fákar sem þið félagar eigið. Jæja ég kem bara með næst.
kv
Gunnar
27.03.2007 at 19:50 #586132Er þetta ekki Landrover….. Ég sem hélt að þeir væru með Standard Köfunarbúnað sem næði upp á þak…. þeir rétt snerta efri part hurðanna…
kv
gunnar
27.03.2007 at 19:48 #586216Já mann klæjar í hægri fótinn þegar maður heyrir fregnir af félögunum vera að Sólbaða sig upp á jökli í miðri viku…..
Það verður gaman að fá myndir frá brósa og davíð þegar ferðin tekur á enda.
Síðan væri nú alltaf gaman að fara í björgunarleiðangur.. AHHH… þarf ég að fara á fjöll í góðu veðri og bjarga þeim.. En þá má nú ekki vera meira bilað en að þeir gleymdu Steikinni heima…
kv
Gunni brósi
27.03.2007 at 19:43 #586258Lausnin við þessum vanda er einföld.
– Flestur hraðakstur og glannaakstur takmarkast við 17 – 20 ára aldur. Þegar menn eru nýbúnir að fá teinið og ætla svo sannarlega að sanna sig í heimi hraðans.
Lausnin er einföld, Banna vélarstærð stærri en 1300 cc fyrir ökumenn á aldrinum 17 – 20. Og sekta þessa krakka ef þeir nást á slíkum farartækjum. Og setja hraðartakmarkanir í bíla sem þeir keyra um á.
Sektir leysa engin vandamál.
Önnur lausn er að byggja þessa kappakstursbraut út á nesi fyrir þá sem þurfa að losna við hraða púkan í sér.
Ég veit að það er hægt að keyra hratt á 1300 cc bíl, en guð minn góður þeir hætta nú að nenna því til lengdar þar sem 0 – 100 kmh er 13 sek, ekki 5 – 7 sek líkt og margir krakkar í dag með ríka foreldra eiga.
kv
Gunnar (með 250 hö í húddinu)
27.03.2007 at 10:27 #586190En tveir aðilar sem ég þekki hafa verslað við þetta fyrirtæki, reyndar fyrir allmörgum árum síðan, en reikningarnir sem þeir fengu fyrir ekki það mikla vinnu voru algjörlega út í hött og hefur enginn sem ég þekki verslað við þá í þetta mörg ár vegna þessa…
Svona eru nú viðbrögð við verðlagningu / þjónustu.
kv
Gunnar
25.03.2007 at 01:42 #585688Ég tek það fram að taflan mín hér að ofan… er gerð miðað við tóma bíla… ekki tilbúna á fjöll.
Menn hlaða bílana sína mismikið, en ég tel að 400 kg, sé nóg fyrir 2 daga ferð. allavega dugir það fyrir mig. 1 x 80 kg ökumaður, 60 kg kóari, 170 lítrar bensín, nesti plús búnaður 30 kg. … Verkfæri, 10 kg. ok þetta eru sirka 360… en sirka 400 kg já…
auðvitað er hægt að hlaða bíla með 800 kg af drasli en það er á vilja hvers og eins.
En drifgetan sem ég áætla er miðuð við tóma þyngd bíla.
kv
Gunnar…Ég viðurkenni að 46" og yfir drifgetan hjá mér gæti skakkast um einhver kíló , þar sem ekki mikil eftirtekt hefur verið hjá mér hjá þeim bílum þar sem þeir eru tiltölulega nýjir í bransanum. En annars er þessi tafla í flestum tilfellum mjög rétt.
25.03.2007 at 01:35 #585684Bæbæ… þú hefur greinilega aldrei ferðast með mér….. eða mínum ferðafélögum
Jæja ég fæ allavega lægri þyngdarstuðul heldur en Benni á stóru túttunum.. þar sem mín "blikkdós" fær 1.49 í flotstuðul tómur samkv Gummij.
En já, benni þú ert loksins kominn á farartæki sem er á nógu stórum hjólum til að farartækið drífi nóg á fjöllum. Og það er gaman að sjá að menn eru farnir að gera einhverja almennilega hluti… þá meina ég annað en að eyða milljónum í japanskt dótarí sem síðan drífur ekkert betra en 1 millj króna ódýr amerískur jeppi… óþarfi að taka fram tegund.
Varðandi hjólabil…. þá er það ekkert sem virðist skipta sköpum…. t.d. er mín blikkdós töluvert styttri heldur en t.d Cherokee sem er svipað þungur og minn og þessir tveir eru að drífa svipað mikið.
Jú auðvitað er mikilvægt að 90% af þyngdinni sé ekki öll á framhjólunum, en lengdin á milli hjólana skiptir allavega ekki sköpum, ég skal sanna það með því að skora á alla 38" jeppa og drífa ekki minna en þeir með mína stuttu blikkdós. (síðast þegar ég gáði var þykkari í boddýi á usa bílum en Japönskum) ok núna heitir usa… hlunkurinn og japanska blikkdósin.
Taflan sem ég gerði, er ekki villulaus, en hún segir nokkurn veginn drifgetu bíla, og þótt að sumir segja að 90 cruser sem vigtar 2.7 t tilbúinn á fjöll drífi eh… þá eru viðmiðiðin ekki rétt. Minn vigtar 1600 tómur, og sirka 2 t tilbúinn á fjöll…. úff mig langar ekki í 700 kg auka … ég veðja ekki á það hlutfall.
en ford á 49" er með svipuð hlutföll og minn hlunkur, eina sem mig hlakkar til er að hitta slík tröll á fjöllum og taka smá snúning í þungu færi , því væntanlega drífa þeir jafn mikið samkvæmt minni pælingu og Gummij töflunni.
kv Gunni hlunkur… sífellt í þyngdarpælingum.
24.03.2007 at 18:02 #585652Ussusssuss. hvað eruði eiginlega að borga í bifreiðagjöld þið þungu þungu bílar 😛
Ég á nóg með að borga af litlu dollunni minni, sem er skráður á skírteininu 1420 kg. (en það var fyrir plasthús, og 8 gata hljómsystem.) 1600 kg tómur í dag.
En svona til að segja sem minnst þá er það mín skoðun að 38" bílar mega ekki vera þyngri en 1900 kg til að þeir drífi eitthvað að viti.
1400 – 1900 38"
1900 – 2200 39" – 42"
2200 – 2600 44"
2600 – 2900 46"
2900 – 3400 49"
3500+ ……. 54" bogger.. nei varla.
Þessi skali hjá mér sprengir nátturulega marga jeppa á íslandi úr skalanum, en það er því miður oftast þeir sem drífa heldur ekkert að viti…
Varðandi vísindi bakvið þennan lista….. umm… 10 ára fjallaveiki.
Það eru til margir jeppar hér á landi sem fylla í þennan skala og eru það oftast þeir öflugri sem finnast.
kv
Gunnar
með þyngdina á heilanum..já lúther þú varst að spurja um þyngdina á Bjarti.. hann er sirka 75 kg… held ég. (bróðir kær)
24.03.2007 at 16:14 #585900Nei kalli engin móða kemur, maður stillir blásturinn annað hvort beint fram eða niður á gólf og milli hita.. ekki hitan á fullt og fullan blástur og það kemur í veg fyrir að móða myndist. semsagt með því að endurnýja loftið.
Ein forsendan þó fyrir að þetta virki er að það sé ekki alltof hlýtt inn í bílnum, það hefur hins vegar aldrei háð mér þar sem maður er oftast í öllum græjum þegar svona veður er á fjöllum.
En þetta er besta lausnin við að halda framrúðunni hreinni í óveðri.
ps. þegar maður er að fara úr snjóaðri rúðu sem sést ekkert úr í það að frysta hana, þá tekur það sirka 3 – 5 mín og tíminn þar á milli getur verið smá leiðinlegur, en brjóta þarf oftast klaka af rúðunni sem frýs.
En eftir þetta þá eru rúðuþurrkurnar óþarfi og t.d. fyrir 3 vikum þegar ég fór á miðjuna lenti ég í þúfi, byrjaði með hitann í botn á rúðuna og rúðuþurrkurnar fylltust á 4 mín fresti… stoppa út að hreinsa…. en síðan gerði ég trykkið og notaði ekki rúðuþurrkurnar sem eftir var ferðar og 100% skyggni.
kv
Gunnar
-
AuthorReplies