Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.11.2005 at 13:32 #531822
44 tommu LC 80 1996 fundin, ein með öllu.
kv. gundur
09.11.2005 at 21:11 #531820Sæll Cruser
Það er bara eitt sem getur fengið mig til að selja þenna bíl en það er loforð um að ég fái LC 80 VX 1996 í staðin.
gundur
08.11.2005 at 09:41 #530930Sælir félagar
Þetta er ekki auðvelt, ég var að fara í Hafnafjörð í gærkveldi og mætti tveimur rauðum Patrolum en þeir voru báðir með toppgrind og annar með hvítan svepp. Annar fór út á Álftanes en hinn fór suður í átt að kirkjugarðinum.
Mín niðurstaða var sú að þetta væru sennilega ekki rétti bíllinn en hvað veit maður.
Ég átti ekki möguleika á að fylgja þessu bílum eftir þar sem ég var illa staðsettur upp á það að gera.
kveðja gundur
06.11.2005 at 18:47 #531492Ég sé það að við þurfum varla að kaupa Haynsmanuali þegar við höfum hann Freysa með okkur.
kv. gundur
05.11.2005 at 20:00 #531434Hvað er hann Benni að bauka núna.
Þarf hann á hjálp að halda?
kv. gundur
Cruser, er það besti bíllinn?
28.10.2005 at 20:06 #530224Sælir félagar
Það væri nú lítið mál að sækja hann Benna minn, en þar sem ég verð í Koben um helgina og fer þar ótroðnar slóðir eins og vanalega þá verð ég bara að senda kveðju norður og á árshátíðina okkar.
ykkar Gundur
24.10.2005 at 22:25 #529708Sæll Guðni
Þetta eru 1300 púðar frá Fjaðrabúðinn partur.
gundur
24.10.2005 at 12:57 #529818Sæll Vals
Vinir mínir fóru um daginn á Langjökul í asahláku og lentu í tómu basli. Spáin sagði að það yrði hátt í 11 stiga hita á landinu öllu.
krapa kveðjur.
hjálparsveitin
24.10.2005 at 11:13 #196499Sælir félagar
Mikilvægt er að menn fylgist með veðurspánni áður en farið er á fjöll, ekki er síður mikilvægt að menn læri að lesa í veðrið og spánna.
Við mælum með að menn kynni sér veðurfræðina td. í bók sem heitir: Hvernig viðrar eftir Markús Á. Einarsson gefin út af Iðunni 1989.
kveðja hjálparsveitin
20.10.2005 at 22:26 #529704Sæll Guðni
Það eru tveir möguleikar og kanski eru þeir tengdir.
Þegar við vorum að koma af landfundi þá fórum við Dagur á flug milli Setursins og Kerlingafjalla, hugsanlegt að ég hafi sprengt púðan þar og þá gæti verið að hann hafi farið utan í demparann.kveðja gundur
20.10.2005 at 21:20 #529700Sæll Kalli
Ætli það verði ekki raunin, en ég mun gera tilraunina með að laga þetta, einhver benti á dekkjaverkstæðið í Grafarvogi hann er víst í færibanda viðgerðum sem er víst ekki ósvipað efni.
Meðan menn stoppa mig á götu og spyrja hvort ég vilji ekki selja þeim bílinn þá er þetta allt í lagi.
ps. loftpúðar eru aukahlutir í þessari árgerð af bíl og því ekki skrítið að þetta geti nú bilað, þetta hefur ekki Toyotumerkið.
þinn vinur gundur
19.10.2005 at 23:04 #529692Sæll Bjarni, takk fyrir þetta.
Ég verð að benda jeppamönnum á flott myndband
um Hilux á neðagreindri síðu Heimsgra.http://www.internet.is/emil.borg/vefur/myndir.html
Hilux 2.4 er allt sem þarf.
kveðja gundur
19.10.2005 at 19:37 #196482Sælir félagar
Ég virðist hafa náð að rífa striga(smá gat) í loftpúða hjá mér.
Veit einhver um það hvort hægt sé að laga þetta, þetta er á miðjum púða. Þetta er jú bara eins og dekkjastrigi?svör óskast!
kveðja gundur
18.10.2005 at 22:08 #529416Sæll Freyr
Svona á að vinna málin, því samkvæmt mínum gæðafræðum þá er kvörtun eins og gullkorn og ber að fara með hana sem slíka.
Maður á að segja eins og manni finst.
kveðja gundur
15.10.2005 at 13:09 #529394Sælir félagar
Ég veit ekki hvort þið hafið skoðað veður og sjólag hjá Siglingastofnun (sigling.is) en það gefur mjög góðan yfirsín yfir hvað er að gerast yfir lengra tímabil og tendensinn.
hægt er að smella á next þarna efst til að sjá framhaldið.
http://www.sigling.is/alda2.8/iw0510151204.htm
http://www.sigling.is/alda2.8/fcastindex.htm
góðar stundir
gundur
14.10.2005 at 19:39 #529378Ég var að horfa á þetta
Spurning hvort maður þurfi að venjast þessu og þeir jafnvel að aðlaga þetta ef þetta er ný tækni.
Stytting á tímanum getur ekki verið af hinu góða.
Einu sinni kom Einar Sveinbjörnsson í heimsókn á mánudagsfund og fór yfir veðurfræðina.
Hann nefndi Vatnajökul sem svæði sem ekki væri gerð spá fyrir en það ætti að vera lítið mál ef þeir fengju upplýsingarnar frá veðurstöð eða stöðvum á jöklunum, þannig gætum við panta spá frá þeim.
Er ekki rétt að klúbburinn beyti sér fyrir þessu?
kveðja
gundur á 4 cyl fisksalabíl sem er fremstur.
12.10.2005 at 08:53 #526780Sæll Hjörtur
Hvað segir þú um þetta.
Velja ferilinn (verður gulur)
Hægri smella á hann
Route Properties (neðst)
Via Points
InvertOg málið er dautt?
kveðja gundur
11.10.2005 at 22:21 #529102Sæll Kristján
Í 120 bíla ferðinni yfir Hofsjökul þeas, Reykjavík, Hofsjökull, Akureyri, Langjökull, Reykjavík.
Var eyðslan 20 lítrar á hundraðið að meðaltali.
Bíllinn var þá á 38 tommu dekkjum.kveðja gundur
10.10.2005 at 19:03 #529012Kæru félagar
Núna er landsfundur 4×4 afstaðinn, segja má að þrjú mál hafi staðið upp úr á þessum fundi.
1) Slóðamál: Við eigum að horfa okkur nær og reyna að fylgja slóðum þannig erum við öðrum gott fordæmi.
2) Við ætlum að vinna með sveitarstjórnum varðandi stikun, merkingar, viðhald, opnun og lokun tímabundið á slóðum þar sem þeir hafa lögsögu í málinu.
3) Við ætlum að vera til fyrirmyndar utan sem innan húss, drekkum bara tvo bjóra á kvöldi í Setrinu. Ekkert í Fjölskylduferðum.
ps. setti nokkrar myndir í safnið.
kveðja gundur
28.09.2005 at 17:58 #528160Ágæta litladeildin okkar
Þetta er flott hjá honum Sigga Magg, þó að ég sé í vefnefnd þá var nóg að ég talaði um gömlusíðuna meðan ég var að kenna honum pelastik á Gæsavatnaleið. Hvað gerði hann, hann kom með nýja heimasíðu ekki dónalegt að vinna með svona mönnum.
Til hamingju með þennan áfanga sem er væntanlega bara einn af mörgum.
ykkar gundur
-
AuthorReplies