Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
18.02.2009 at 21:21 #641322
Verðið í dag hjá Atlantsolíu er 138,8 við Hafnarfjarðarhöfn víðast hvar annars staðar er það um 143kr
Eldsneytið er oft ódýrara við Hafnarfjarðarhöfn en annarstaðar.
Fékk póst frá FÍB um að dælulykillinn minn muni gefa mér 4kr afslátt og svo má ég velja mér mína uppáhaldsstöð og fæ þar 2kr í aukaafslátt, þetta tekur gildi 20 feb. miðað við þetta er ég að borga fyrir bensínlíterinn miðað við núverandi verð og væntanlegan afslátt 132,8kr á líter.
Ég hvet klúbbinn til að reyna að fá slíkan samning fyrir sína félagsmenn.
SHELL GO TO HELL
13.01.2009 at 19:12 #637272Ég setti yfir álfelgur hjá mér tveggja þátta glæran grunn frá Hempel, tókst mjög vel.
Slippfélagið er með Hempel.
23.12.2008 at 19:51 #635102Sé ekki baun eftir þessum 6000kr fæ fína afslætti í staðinn.
Það getur vel verið að með shell afslætti sé hægt að spara 2kr meir, en það hvarlar samt ekki að mér að fara til þeirra nema þá af illri nauðsyn, ef Atlantsolía væri ekki til staðar væri bensínlíterinn örugglega 10 kalli dýrari og svo eru hinir búnir að taka okkur svo ósmurt í görnina svo maður verslar ekki við þá framar.
En ég bendi hér á að Atlantsolía er oftar ódýrari við höfnina í Hafnarfirði en annarsstaðar, ég hef sé upp í 5kr mismun.
Tók þetta núna af niskupukinn.isAtlantsolía – Hafnarfjarðarhöfn 137,8 kr.
Atlantsolía – Kaplakrika 139,8 kr
13.12.2008 at 19:05 #634446Keypti 10-40W olíu á Olís Vélarverkstæði Hjalta á Hvaleyrarholti í vor á ca 550kr líterinn í lausu, hann skaffaði brúsa og dældi á hann fyrir mig.
Þessi smurstöð er eflaust sú ódýrasta í bænum hef alltaf látið smyrja minn Grand Cherokee þar og kostað venulega um 7-8000krFór á Olís smurstöð upp á höfða í sumar og var sár í afturendanum í viku á eftir vegna 18,000kr reiknings, að vísu var loftsía upp á 2000kr inn í því og ca 1000kr spíssahreinsir settur á tankinn sem ég bað ekki um.
Ég er á því að best sé að nota ódýra olíu og skipta reglulega um eins og Leo mælir með.
29.03.2008 at 00:39 #202206Sting upp á að menn taki sig saman og dragi hvern annan á 20-30km hraða um borgina til að mótmæla fáránlegum lögum varðandi drátt bíla, samkvæmt lögum má ekki draga bíl á meiri hraða en 30km á klst. sem er bæði fáránlegt og stórhættulegt. Slá má tvær flugur í einu höggi með því að mótmæla í leiðinni háu eldsneytisverði og þá fullkomlega löglega.
10.11.2007 at 15:04 #602630Er með Toyo 33"At undir Grand Cherokee 2005, er búinn að vera á þeim í 1 ár, er mjög sáttur við þau, og þegar kemur að endurnýjun geri ég ráð fyrir því að fara aftur í Toyo.
Var með BF Goodrich 31" AT Undir gamla Grandinum og var líka mjög sáttur við þau.Það var mun betra verð á Toyo heldur en BF Goodrich.
Gulli
09.08.2007 at 19:57 #594204Hér er hluti af frétt úr mogganum í dag.
Flugvélinni var lent á flugvellinum í Nýjadal og síðan ekið eftir veginum að skálanum. Þegar fara átti í loftið ákváðu flugmennirnir að fara bara beint af augum langt utan flugbrautarinnar, þar var jarðvegurinn gljúpur og fór vélinn yfir tvö drög í flugtaksbruninu. Þar skall vélinn niður og skemmdist hjólabúnaðurinn töluvert og skrúfan einnig.Er þetta ekki utanvegaakstur eða hvað ? og er það allt í lagi ef það er flugvél ?
Væri ekki hissa á því ef löggan væri líka búinn að spæna um allt þarna líka.
Hvað gerir Sýsli nú ?
02.08.2007 at 23:43 #594184Tók þessa mynd við Krakatind, má ekki kalla þetta utanvegareiðar. Hjólinn saklaus, hroðalegt að sjá þessi för eftir hestana og þessi fíni vegur til staðar.
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 5572/44104
28.04.2007 at 20:22 #588162Líst vel á þetta, er með.
Er á Grand Cherokee Hemi 2005 á 33"
Gulli
-
AuthorReplies