Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.02.2012 at 17:03 #749562
Ég hef ákveðið að fara ekki, en ef verður af varaáætlun þá er aldrei að vita nema maður kíki inneftir á ykkur.
27.02.2012 at 18:43 #749544Ég þarf víst að spyrja aftur, hvað á þetta að kosta mikið þ.e. skálagjöd ofl.
25.02.2012 at 10:27 #749538Hvað á að koma með af seðlum á þriðjudaginn til að ganga frá skálagjöldum og þvíumlíkt?
Kv.Guðjón S
16.01.2012 at 21:28 #746735Guðjón Smári (+1?), gsm=6901008
24.12.2011 at 15:37 #744617Ástand er þokkalegt, kominn tími á boddý, rið komið hér og þar. Það er önnur grind og annað kram í honum en var, fourlink aftan og framan með loftpúðum, eitthvað búið að bæta í grindina, mótor og millikassi upptekin fyrir 7000þús km síðan. Ég veit til þess að hann var að spá í að selja hann fyrir stuttu síðan en hætti svo við það. Því miður má ég ekki gefa upp hver er eigandinn, þú verður að komast að því sjálfur. Ég fékk grindina og kramið úr þessum þessum bíl í minn.
Kv. Guðjón S
23.12.2011 at 19:23 #744613Þetta er reyndar 60 cruiser og er staðsettur á Selfossi, vínrauður að lit.
13.05.2011 at 11:49 #730141Eða loka öllum hugsnalegum götum sem gætu lekið út úr og ausa inn í grindina notaðri smurolíu, besta ryðvörnin hingað til, lætur vera í einhvern tíma og síðan tæmiru. Veit að þetta er ekki umhverfisvænt en þetta virkar.
19.03.2011 at 15:42 #723952Frétti af mönnum sem fóru upp við skálpanes síðurstu helgi, fóru reyndar í þeim erindagjörðum að ná jeppa upp úr krapa, fór ekki betur en svo að þeir tveir bílar sem áttu að bjarga þessum eina hafi farið í krapa báðir og allt pikkfast. Þannig að færið akkurat þar er kannski verra en annarsstaðar.
18.03.2011 at 23:56 #723946Hef ekki farið á jökul í vetur, fór hinsvegar Syðra-Fjallabak, upp hjá Keldum, þar inneftir að Dalakofa og víðar, nóg af snjó og skemmtilegu færi. Fór síðurstu helgi og eitthvað ætti að vera búið að snjóa síðan þá.
Kv. Guðjón S
14.12.2010 at 15:17 #712184Hásing ekki bogin að sjá, ný máluð, engar krumpur að sjá í málningu.
[quote="Addi_Sig":3jpqtlf5]Er einhver séns að hásingin hafi beygt fjaðrirnar í stökkinu, þannig að hásingin hafi snúist?,
Það kom fyrir hjá mér að aftan á hilux og ég áttaði mig ekki á þessu þegar ég setti bílinn á púða að aftan og sýp seyðið af því núna, það er alltof mikil vinna að snúa drifinu til baka svo ég prófaði að setja tvöfaldan lið kassamegin að aftan, bíllinn er reyndar númerslaus núna þar sem ég er á sjó í allann vetur svo ég get ekki prófað hvort þetta virkaði.
Rétt að taka fram að titringurinn hættir hjá mér þegar ég keyri í lausamöl, þá hefur misjafni hraðinn á jókunum ekki áhrif, það er allavega mín kenning[/quote:3jpqtlf5]
Engar fjaðrir lengur undir bílnum, tók þær undan fyrir nokkru síðan. Hef reyndar ekki prufað að keyra hann í lausamöl eftir að þetta byrjaði hjá mér.
13.12.2010 at 14:19 #712178Ekki var það gírkassapúðinn. Nú er annar millikassi og gírkassi kominn í, það var einfaldara að setja settið saman í. EN…… ekki varð nein breyting á. Fór með skaftið fyrir nokkru í Stál og Stansa og þeir útskrifuðu það í lagi.
Er kominn á það að fá lánað annað skaft til að útiloka hvort um er að ræða skaftið eða eitthvað annað.
Einhverjar fleiri hugmyndir?
08.12.2010 at 16:19 #712176[quote="fastur":1mgiprin][quote="Guðjón S":1mgiprin]Jæja ekki var það skaftið, fór með það í balanceseringu og var bætt einhverju blíi á það. Var að vona að það væri orsökin, en vitir menn, allt víbrar enn. Svo það næsta í stöðunni er að fara að rífa. Er jafnvel komin á þá niðurstöðu að skipta um gírkassa með millikassa, ekkert rafmagns system eða loftmembra þegar maður setur í 4×4. Svo þarf að taka allt úr hásingunni aftur.
Óska eftir öllum þeim andlega stuðningi þessa dagana.
Kv. Guðjón S[/quote:1mgiprin]
Getur líka verið bússningin þar sem úttakið úr millikassanum er. Ég hef skipt henni út að framan og aftan hjá mér. Þegar ég skipti að framan hætti titringur sem átti við að etja.[/quote:1mgiprin]
Ertu að meina jókan? eða hvað ertu að meina með bússningin?
08.12.2010 at 10:49 #712172Ekki vitlaus spurning, ég kanna það við tækifæri.
06.12.2010 at 23:12 #712168Jæja ekki var það skaftið, fór með það í balanceseringu og var bætt einhverju blíi á það. Var að vona að það væri orsökin, en vitir menn, allt víbrar enn. Svo það næsta í stöðunni er að fara að rífa. Er jafnvel komin á þá niðurstöðu að skipta um gírkassa með millikassa, ekkert rafmagns system eða loftmembra þegar maður setur í 4×4. Svo þarf að taka allt úr hásingunni aftur.
Óska eftir öllum þeim andlega stuðningi þessa dagana.
Kv. Guðjón S
30.11.2010 at 18:09 #712166Var að taka framskaftið undan áðan, fór með það á verkstæði og við sáum þá í tvöfalda liðnum að hann er að merjast á snertiflötunum þar. Við skoðuðum líka hvort skaftið væri skakkt en svo virtist ekki vera. Held að næsta verk sé að ath afstöðuna á milli jóka (hallann).
30.11.2010 at 12:53 #712162[quote="Baddim":2971wjxv]Ertu búinn að prófa að taka lokurnar af og reyna að útiloka einhverja hluta.
Voru sköftin sett rétt á eftir hjöruliðsskiptin? hugsanlega þarf að jafnvægisstilla sköftin,[/quote:2971wjxv]Já búinn að taka hann úr lokunum, þessi víbringur kom áður en ég lét skipta um krossana, hélt að þetta kæmi út af því að krossarnir væru ónýtir sem þeir voru, en ekki virtist það duga.
30.11.2010 at 12:51 #712160[quote="cruser":38bk7ob6]Sæll Guðjón
Getur verið að gráðuhallinn á drifskaftinu sé svona vitlaus?. Átti einu sinni bíl með svo vitlausri gráðu á framskafti að það myndaði svona óhljóð og víbring. Ég myndi byrja að athuga þetta
Kv Bjarki[/quote:38bk7ob6]Sælir, ég held að hann sé í lagi hallinn á framskaftinu. Fór þessa einu ferð mína í vetur, lenti reyndar í því alveg óvart að keyra of hratt í brekku, sá ekki vegna myrkurs að þarna var smá stökk, þeir sem voru fyrir aftan mig héldu að bíllinn myndi fara á hliðina (hægri hlið), ég er skynsamur og geri lítið í því að skemma dýrt dót með því að vera með fíflaskap en þarna varð mér á í messunni. Það er orginal hlutföll í kögglum, búið að lækka láadrifið um 17%.
Engin þvingun, búinn að láta bílinn á lyftu og snúa öllum hjólum frístandandi, bæði með skapti upp við milli kassa og tók það af við millikassa, engin þvingun. Sama dekkjastærð og hlutföll þau sömu. Eins og ég tók fram hér áðan þá kom þetta eftir mína fyrstu fjallaferð á bílnum, áður var þetta ekki í honum. Veit samt ekki hvort það skipti einhverju máli en ég er ný búinn að breyta honum á gorma að framan og var allt eðlilegt eftir það.
Hvernig er hægt að ath hvort hallinn sé ekki réttur.
30.11.2010 at 10:03 #216141Sælir félagar, nú reynir á ykkur sem gætu sagt mér hvað er að. Ég er með LC Hj61 árg 88, mikill víbringur þegar hann er settur í framdrifið og þá sérstaklega í átaki (inngjöf), búinn að skipta um alla hjöruliðskrossa í báðum sköftum (aftur/fram) það eru nýjar legur og pakkdósir í öllum nöfum. Ég er alltaf með hann í lokum þegar hann er ekki í framdrifi, búinn að herða upp á jóka bæði fram og aftur hásingu og í millikassa fram og aftur, virðist vera í lagi með legur.
Veit ekki hvað ég get talið meira upp hér, ef einhver sérfróður maður þarna úti gæti vitað hvað þetta er væri það vel þegið að fá hugmyndir.
Er búin að ná einni fjallaferð á bílnum í vetur og sú fyrsta á bílnum og þá kom þessi víbringur, nenni ekki að hafa þetta hangandi yfir mér í allan vetur, langar á fjöll.
31.10.2010 at 20:01 #708468Sælir, hvaða tegund af dekkjum ertu með á 42", hvar fékkstu þetta og hvað kostar. Bíllinn er hinsvegar vígalegur svona.
17.09.2010 at 09:58 #214594Góðan dag, ég er í þeim pínulitlu vandamálum með ljós í mælaborðið hjá mér, það vantar ljós í hraða, snúnings og túrbínumæli í mælaborði. Samt eru gaumljós í lagi s.s. fyrir háageislan, handbremsu ofl. Er búinn að skipta um allar perur í mælaborði, búinn að finna realy sem stýrir straumi fyrir stöðuljós og aðalljós og þau virðast vera í lagi. Er kannski eitthvað annað realy sem þarf að finna undir mælaborðinu? Vonandi er einhver þarna úti sem getur svarað mér.
Bestu kv.
Guðjón S
-
AuthorReplies