Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.08.2008 at 10:57 #626654
Sammála þér Palli.
Það kom fram frá stjórn að það ætti að senda erindi til þeirra á pósti eða munnlega:)
þeir sögðust ekki ætla að svara á netinu/síðunni
ég ætla ekki að dæma hvort að það sé rétt eða rangt enda svosem ekki mitt að gera það, en það er mjög auðvelt bara að senda póst á stjórn og þá er ég viss um að það komi svar fljótt og vel.
kv Gísli
07.08.2008 at 13:39 #626914Að hertæki hafa verið keyrð á steinolíu en þau hafa ekki öll þolað það og einnig er það ekki hrein steinolía heldur efnabætt til að hægt sé að aka bílvélum á henni, herinn kallar þetta multifuel og þrátt fyrir efnabætingu þá þoldu olíuverkin í hummernum ekki þessa olíu óbreytt þau hrundu í tugavís og varð að setja endurbætt olíuverk í þá sem voru sérbúin til að aka á þessu.
Þannig að þetta er hægt eins og hefur sýnt sig en það er spurning um hve gott þetta er fyrir olíuverkin og spíssana og svo er þetta auðvitað ólöglegt:)
Gísli
07.08.2008 at 10:52 #626734Takk fyrir vel unnin störf Agnes og megi þér farnast vel í því sem þú tekur þér nú fyrir hendur
kv Gísli Þór
06.08.2008 at 14:48 #626892Þetta er líklega eins og Birgir segir stoppararnir á klöfunum fyrir beygjuna það er gott að smyrja þá og boltann líka þá minnkar þetta og jafnvel stoppar.
kv Gísli
05.08.2008 at 12:02 #626804Bassi ég mynnist þess að sjá york dælur frá jeppasmiðjunni með flatreim í stóru fordunum prófaðu að tala við þá
ps olíugildran springur vegna hita´.
þið getið líla tekið og sett lofttank á kerfið ef þið eruð ekki með slíkann núþegar bara passa að úttakið á loftinu sé hátt uppi og þá getið þið tappað olíunni af með vatninu ég hef ekki prófað sjálfur en heyrt þetta virka mjög vel man bara ekki hjá hverjum he he gæti samt verið hjá Óskari Erlings hann lumar á mörgum snilldar lausnum:)
kv Gísli
04.08.2008 at 16:26 #202735Væri ekki hægt að hafa þann möguleika að sjá myndir/myndasöfn sem fá nýjar myndir?
sem sagt stillimöguleika svo að maður geti fylgst með, þannig að þótt að myndasafnið sé gamalt þá birtist það og færist niður alveg eins og nýtt safn.
vona að þetta skiljist
kv Gísli Þór
23.07.2008 at 08:46 #626308Hann hefur prófað þetta bara hafa samband við hann sjá : https://old.f4x4.is/new/photoalbum/defau … 5680/49520
kv Gísli
14.07.2008 at 11:41 #626040Þær eru eins frá 1988 til 1997 á meðan Y60 módelið er eftir það koma þær með abs í Y61 og er það smá breyting þær breikka aðeins við það.
kv Gísli
11.07.2008 at 23:31 #625778Að það hefur komið upp tillaga um að leggja niður ýmsar uppákomur klúbbsins vegna meintrar ölvunar á þeim uppákomum þess vegna geri ég ráð fyrir að það verði ekkert áfengi á þessari hátíð til að heilaga fólkið innan klúbbsins þurfi ekki að skammast sín.
kv Gísli sem skammast sín aldrey fyrir neitt og er með öllu illur að sumra mati he he
en ég ættla nú samt að mæta:)
10.07.2008 at 13:41 #625672Talaðu við Hjálmar í Bílakringlunni á horni Stórhöfða og Gullinbrúar hann á dælur nýjar á fínu verði
kv Gísli
Það eru reyndar ekki dælur með þessu merki og þú þarft sjálfur að setja smurnippilinn í:)
10.07.2008 at 08:20 #625664Kristján minn þetta virðist endalaust hjá þér er aflið svona svakalegt? en öllu gamni sleppt taktu rörið undan og láttu stál og stansa skoða þetta fyrir þig.
Kv Gísli
09.07.2008 at 08:50 #625552Notaðu bara orginal Patrol bolta ef þeir eru að slitna þá er það af því að þeir hafa verið ofhertir eða felgan er ekki góð.
Ég er búinn að eiga nokkra breytta Patta og aldrey náð að slíta bolta eða missa hjól þrátt fyrir þónokkurn djöfulgang og mikið þyngri vél (6.5 túrbo) bara setja nýja og herða svo með mæli í 120 til 130 nm borgar sig samt að endur herða með mælinum eftir smá akstur og tékka svo reglulega með sama mæli:)
Kv Gísli Þór
16.06.2008 at 11:04 #624550Ég var að gagnrýna ekki hvetja þú sérð Það ef þú lest yfir:)
Gísli
15.06.2008 at 22:12 #624544Ef okkar ástkæri landslýður getur ekki farið eftir óskum vegagerðarinnar af hverju ættu þá útlendingar að gera það!
þeir gera það sem þeir sjá landsmenn gera.
alveg eins og sagt er um börn þau gera það sem haft er fyrir þeim.
alveg sama hvort það séu menn með vængi eða aðrir.
Þannig að þetta er mjög flott hjá þér Helgi að hvetja fólk til að fara ekki eftir leiðbeiningum vegagerðarinnar.
kv Gísli
15.06.2008 at 22:03 #624542Ég heiti Gísli en ekki Gisli já og það er satt hjá þér Helgi að ég er enginn engill:)
kv Gísli Þór
15.06.2008 at 21:40 #624538En alltaf eru einhverjir sem vita betur:)
eins og þessi:
kv GísliEf þið lesið greinina ur mbl stendur að ekki standi til að opna ur landml i eldgja fyrr en eftir viku.
og annað eg var i laugum a miðvikudag og þa var buið að moka og hefla og þar hittum við mann fra vegagerðinni sem sagði okkur að verið væri að moka halsinn i domadal og hann yrði fær daginn eftir sem varð raunin. En eg for lika i laugar 12 dögum aður og varð mikið hissa þvi að þarna var allt lokað v aurbleytu en þarna var allt skraufaþurrt
og vegurinn svo goður að það var eins og hann væri longuopnaður ekki til bleyta neinsstaðar en snjor fra frostastaðahalsi inn i laugar og enn var snor i hrauninu hinumegin við halsinn h/m þegar eg var komin ofani hraunið meðfram halsinum, og eg veit þetta var lokað en aður en neikvæðni tekur her völdin vil eg taka fram að eg hefði snuið við ef eg hefði seð bleytu. En mer finnst að hefði matt opna fyrr þarna inneftir vegna þess að þarna var greinilega allt löngu þurrt.
ferðakveðja Helgi
08.06.2008 at 23:03 #623596Sorrý kemst ekki
verst fyrir mig:(
Kv Gísli Þór
31.05.2008 at 17:25 #623760Það getur verið svo margt td EGR ventill sem stendur opinn
það getur verið að það þurfi að skifta um vélarolíu
veit það hljómar fáránlega en ef olían er orðin bensínblönduð þá hagar vélin sér illa heit en er í lagi köld þegar vélin hitnar þá fer vélin að "anda"að sér bensíngufum úr sveifarhúsinu og það verður alltof rík blanda=ógangur og svartur reykur
bara smá hugmynd:)
Gísli
30.05.2008 at 13:59 #623552Ég hefði nú áhuga á að koma en er ekki hægt að setja inn td kort eða loftmynd af svæðinu svo að maðu átti sig á hvar á svæðinu þetta er
kv Gísli
16.05.2008 at 19:34 #622994 -
AuthorReplies