FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Þórður Árnason

Þórður Árnason

Profile picture of Þórður Árnason
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 20.07.2012 at 18:01 #755569
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Stýrisdragliðurinn var fastur. Nýr kominn í og málið leyst. Það var reyndar búið að benda mér á þennan möguleika en ég hélt, í fákænsku minni, að svona dót eyðilegðist með því að það kæmi los í það frekar en að það greri fast með þessum hætti. En þetta er sem sagt komið í höfn og ég þakka allar ábendingar sem ég hef fengið frá ykkur.





    08.07.2012 at 11:27 #755565
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Það eru stangarfjaðrir að framan, ekki gormar. Ég losaði annan demparann (Sachs) til að skoða ástandið á gúmmíunum og fannst hann undarlega mjúkur að toga út og inn. Hafi þetta verið gasdempari er örugglega allur vindur úr honum núna. Kannski væri vit að svissa dempurunum og sjá hvort bankið flyzt yfir á hina hliðina.[url][/url]





    07.07.2012 at 19:37 #755561
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Nei, ég skipti ekki um balansstangargúmmíin, þau líta vel út og virðast halda stönginni þéttingsfastri, a.m.k. gat ég ekkert bifað henni til.





    07.07.2012 at 12:19 #755557
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Þetta virðist allt stefna í verkstæðisferð. Maður reynir nú samt að forðast það í lengstu lög, sérstaklega þegar bíllinn er orðin þetta gamall og verðlítill. Ég mundi allt í einu eftir Citroen BX sem ég eitt sinn átti og þar bankaði önnur framhjólslegan á mjög svipaðan hátt þótt það virtist nánast ekkert slag í henni við skoðun. Væri þetta möguleiki á Korando/Musso?





    06.07.2012 at 10:27 #755553
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Þetta er rack/pinion maskína og einu stýrisendarnir sem ég sé eru úti við hjól og þeir virðast í lagi. Það sem ég þarf núna er að hitta einhvern reyndan ref í svona bilanagreiningu svo ég eyði ekki frekara púðri í óþarfa tilraunastarfsemi. Kannski er lausnin sáraeinföld. Hvert er bezt að snúa sér?





    05.07.2012 at 21:07 #755549
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Jú, ég held að demparafestingin sé í lagi, a.m.k. gat ég ekki hnikað demparanum neitt til þótt ég reyndi með kúbeini. Kannski er bíllinn loksins að reyna að segja mér að halda mig við það "sem ég bæði sé og veit og skil" og setja sig á almennilegt verkstæði til tilbreytingar.





    05.07.2012 at 18:26 #755545
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Jæja, allt komið undir aftur, nýjar klafafóðringar og skipt um spindilkúlu í leiðinni fyrst maður var nú að þessu á annað borð. Það eina sem skyggir á gleðina er að það bankar sem aldrei fyrr.





    04.07.2012 at 13:49 #755543
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Fór með klafann upp í Stál og stansa í morgun, þeir ætla að sjá aumur á mér og setja fóðringarnar í. Svo verður fróðlegt að sjá hvort þetta voru fóðringarnar eða eitthvað annað 😉





    03.07.2012 at 21:44 #755537
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Takk fyrir þetta. Já, önnur klafafóðringin virðist vera orðin eitthvað morkin, kanturinn undir stóru skífunni nánast horfinn þannig að ég tók klafann undan. Eru einhver húsráð til að skipta um þessar fóðringar í "heimahúsi" með algengum verkfærum eða þarf ég að láta gera þetta á verkstæði ?





    03.07.2012 at 16:24 #755533
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Ég gleymdi að taka fram að ég prófaði að setja í nýjan tengistaut milli balansstangar og spyrnu (ásamt tilheyrandi gúmmífóðringum) en vandamálið er enn til staðar.





    03.07.2012 at 10:22 #223827
    Profile photo of Þórður Árnason
    Þórður Árnason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 20

    Nú hef ég áhyggjur af mínum annars trausta og góða Ssang Yong Korando jeppa (’98)
    Ef ég keyri í holur eða á grófum vegi þá bankar eitthvað vinstra megin í framhjólabúnaðinum og þetta leiðir upp í stýrið. Ég prófaði að fara í bilanaskoðun hjá Frumherja í vetur en þar fékk bíllinn vottorð upp á að vera í toppstandi, og það sama gerðist í hinni árlegu skoðun núna nýlega þótt bankið hefði aukist talsvert og ég bæði sérstaklega um að hjóla- og fjaðrabúnaður yrði skoðaður sérlega vel. Nú er spurningin; hvaða snillingur á Reykjavíkursvæðinu væri líklegastur til að finna hvert vandamálið er svo ég fari ekki að skipta út spindilkúlum, klafafóðringum eða einhverju öðru sem síðan reynast í lagi?
    Kveðja – Þórður Árnason





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.