Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
05.10.2008 at 19:48 #630442
Já þetta er kannski ekki mesta tryllitækið þarna úti en ég veit ekki hvort maður þurfi meira til að byrja með. Það væri þá frekar að fara út í eitthvað eldra sem maður gæti dundað sér í að breyta sjálfur. Ég er hæstánægður með uppfærsluna úr Grand Vitara upp í Pajero.
KarlHK skrifaði:
"Svona til að svekkja þig aðeins , þá held ég að 33" 2005 Pajero drífi ekki mikið"Athugaðu að þetta er fyrirtækjabíll sem ég hef afnot af og er ég því þakklátur fyrir að vera þó á bíl sem kemur mér í veiði
Mig langar bara að hækka hann aðeins og setja hann á dekk sem eru mýkri á grófum vegum/slóðum.
Kv.
Gunnar
04.10.2008 at 21:03 #630432Þakka ykkur kærlega fyrir svörin. Ég mun fylgjast með smáauglýsingunum
Ef það er einhver hérna sem hefur breytt svona bíl væri vel þegið að heyra frá viðkomandi.
Það var sagt við mig (endilega leiðréttið ef ég er að fara með tómt bull) að það væri hægt að hækka þessa bíla um 40mm á fjöðrun, setja undir hann 33" og viðeigandi brettakanta og þá þyrfti hann ekki að fá skoðun sem breyttur bíll. Þessar breytingar væru það litlar að engin þörf væri á að skoða hlutföll né breyta hraðamæli. Er einhver hérna sem getur staðfest þetta eða leiðrétt mig?
Með fyrirfram þökkum,
Gunnar
04.10.2008 at 14:31 #203010Sælir félagar
Ég vil byrja á að segja að ég er frekar grænn í þessum málum og vona að hér inni séu menn sem eru til í að hjálpa áhugasömu en reynslulitlu fólki af stað. Áhuginn kviknaði núna í sumar eftir að hafa fest Suzuki Vitara bíl ótal sinnum í veiðferðum vítt og breitt um landið. Nú hefur mér áskotnast 2005 árgerð af Pajero og langaði mig að kanna hvort þið gætuð ráðlagt mér þegar kemur að því að setja þennan bíl á 33″ dekk og hækka örlítið. Þetta er bíll í eigu fyrirtækis sem ég vinn hjá og hef ég ekki tök á að breyta honum mikið. Er ekki hægt að gera þetta án þess að það kosti mann yfir 500þ ? Getur maður ekki komist í notaðar felgur, jafnvel með dekkjum og þarf vinnan að kosta mörg hundruð þúsund ef breytingarnar eru smávægilegar? Með fyrirfram þökkum.
Gunnar
-
AuthorReplies