Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
31.07.2005 at 12:13 #196123
Sælir Rúðurnar í pajero eru hættar að virka.
Hvað er það sem er algengast í að bili þessu.
Hefur einhver lent í þessu á Pæju. Er þetta relay eða eitthvað annað. allar rúður eru úti. Virðist ekki fá nægan straum inn á þetta (mældist 4.7 volt á bláa vírnum í bílstjórahurð) ætti ekki að vera 12v þar svissað á….bjarki
24.07.2005 at 20:00 #525182hljómar vel gæti verið skýringinn, getur einhver sagt mér nánar hvar hana er að finna?
bjarki
24.07.2005 at 01:00 #525170Hef ekki tekið eftir neinum óeðlilegum reyk.
Headpakkningí fínulagi ekki að missakælivökva eða
neitt svoleis bara vantar svona eins og 40 HÖ
24.07.2005 at 00:49 #525166er með boost mæli tengdan við turbinuna eðlilegt boost þar
og engar lausar hosur eða götótar við intcooler.
er nýlega búin að setja dísuhreinsi á hann og hef gert það öðru hverju. Gætu dísurnar, eða eitthvað tengt olíuverkinu verið drullugt ?
hvernig er annars olíuverkið í þessum bílum að duga ?
ekinn 125.000 km.Er líka nýbúin að skipta um hráolíufilter.
fleiri hugmyndir mjög vel þegnar, þar sem ég er að undirbúa bílinn fyrir sölu, og vil hafa hann í fínu formi..
takk
bjarki
23.07.2005 at 21:52 #196112Sælir félagar.
Ég er með 99 Pajero 2.8 int turbo sem er eitthvað að stríða mér með máttleysi. Bílinn er með opið 2.5″ púst og K&N filter, sem ég hef prufað að taka úr og það breytti ekki máli.
Þó ég standi bílinn í botni upp ártúni fer hann bara í 85 kmh á 35″ tuðrunum. Bílinn hefur ekki hagað sér svona.Einhverjar hugmyndir hvað getur verið að hrella bíllinn?
kv
bjarki
11.07.2005 at 21:08 #196090sælir jeppakallar og konur
er einhver íshellir sem hægt er að skoða núna?
er með fólk frá usa í heims og þeim langar að sjá hella
og jökla…Hvernig er langjökull núna blautur? er hægt að keyra á
einum eða 2 bílum á Geitlandsjökul td ?
Einhver verið á ferðinni nýlega ?p.s
Nokkrir hafa verið að drekkja óbreyttum bílunum sínum í Steinholtsánni í Þórsmörk frekar mikið í ánni en vel fær breyttum bílum.
04.07.2005 at 10:15 #524670Sæll Guðjón og þakka síðasta túr… þetta er flott hjá þér
og að losa þig við patrol draslið úr húddinu er enn betra
en ein spurning hversvegna dana 60 en ekki Dana 70?
ég meina 49" Fannst þér dana 70 of þungt?og hvað borgaðirðu fyrir Dana 60 og hvar fékkstu hana ?
kv
BjarkiJC rules
01.07.2005 at 10:36 #196072Heyrðu hvernig má taka litinn úr díselolíunni ?
Þá er það að hella sér í efnafræðina..:)
og gera prufur.„#$%&&% hálfvita“#%%!##! ríkisstjorn
28.06.2005 at 11:12 #524462Komin með tilboð frá sjóvá
4 bílar (2 jeppar) per bíll 44.514 kaskótrygging 15.400
er þetta besta verð sem ég hef fundið.
en einn galli við þetta að sjóvá lætur þig ofborga 10%
og greiðir það svo út í des sem td Vís gerir ekki.
en vís var um 2500kr dýrara á hvern bíl. Miðað við tilboð
KB banka í vexti ög öllum afsláttum sem eru í boði í gegnum
samstarf KB & VísÞá afið þið það.
bjarki
24.06.2005 at 22:32 #524486A240HID LJÓS LIGHTF 240 HID XENON 1 stk 93.226 kr.
þetta er verðið á einum kastara í Arctic trucks semsagt parið
186.452Fann þetta á netinu á 1000 usd parið…
bc
23.06.2005 at 23:20 #524456Sé að margir eru með verð í "heildarpakkann"
sem er svo sem ágætt.
Það sem ég hefði helst viljað sjá í þessum þræði er verð á trygg á jeppunum okkar.td
er minn bílalisti svona eins og er.Pajero 99 kr 50.201 svo 10% endurgr
Gmc Suburb 50.201 svo 10% endurgr kaskó 17.000
Saab 9000cs 50.201 svo 10% endurgr
Saab 9000CD 50201 svo 10% endurgr
En ég er enn að bíða eftir tilboðum…….(mér finnst reyndar hálf silly að 3 tonna Suburban sé í sama verðflokki og 1200 kg saab ?)
Húsnæði og allur pakkinn
ef við ætlum að fara í gegnum allan pakkan hjá okkur sem
er svo sem bara mjög fínt
þá þyrftum við að gefa þetta upp Sundurliðað
þeas húsnæðistrygg
brunatrygg
ogsfrv. inn í þessar trygg reiknast stærð húsn innbústrygg ofl þess háttar.
Ég vil þakka þeim sem hafa krotað hér inn pósta. Sé ekki betur enn að nokkrir hafi vaknað við þessa umræðu og
haft samband við tryggingafélögin sín og skoðað sín mál.
Og náð betri kjörum fyrir vikið.Takk
bjarki
23.06.2005 at 22:49 #196061Er einhver með umboðið fyrir Lightforce ljós
hér á klakanum ?http://www.lightforce.com
240 HID ljósin hjá þeim eru tær snilld
og raunar bara hönnunin yfir höfuð.kv
bc
22.06.2005 at 23:56 #524424þetta er akkurat eins og mig grunaði.
sumir að borga mikið aðrir minna fyrir sömu hluti…..
bullandi misnotkun á okkur!
bc
22.06.2005 at 16:01 #524408Já Vís er að gera ágæta hluti núna
Var að skoða þetta og fékk tilboð frá þeim
bíll í sama stærðarflokki og Patrol
iðgjald 46.000 og kaskó 15.000
samtals 61.000 kr þú ert að borga þá 10.000 kr auka á ári fyrir þinn bíl í sama stærðarflokki og minn. Ef þú ert sátt við það fínt mál. En við erum bæði að tala um Vís sama tryggingafélag.En ég myndi frekar vilja gera eitthvað gáfulegar við auranna
en að henda þeim í Vís. Og ég sé enga ástæðu til að halda tryggð við tryggingafélög. Ég var hjá vís í tæp 10 ár
fékk svo tugum þús lægra tilboð og skipti. og stefni á það
að hreyfa trygg til aftur.bjarki
22.06.2005 at 14:29 #196058Er að spá. Jú þessi tryggingafélög eru alltaf að svína á okkur og hvernig væri að við fylgdumst með verðum hér.
ég hef rekið mig á að ef maður hringir ekki árlega og sparkar í þessa gaura til að lækka verðið hækkar iðgjaldið árlega. samt er ég með „eins háan afslátt og hægt er „
og aukaafslatt þar ofaná og bla bla bla.Datt í hug að það væri gott mál fyrir okkur félagana að fylgjast með eða þeas gera smá könnun á hvað við erum að greiða í iðgjöld. ég er viss um að það eru margir sem gleyma að sparka í tryggingafélögin.
Td ef jón jónsson myndi gefa upp að hann væri að
greiða 45.000 af sínum patrol jeppa, og þór jónsson
59.000. þá hefur þór góða ástæðu til að hringja alveg brjálaður í tryggingarfélagið sitt.
Jú allt miðast þetta við afslætti og kjör og fjölda trygginga
og fl og fl.en allavega þá var ég að sparka í tryggingarfélgið mitt
og er að bíða eftir tölum frá þeim.
og mun ég birta ykkur þær með glöðu geði.
ég flakka bara á milli þessara félaga eftir því hvað er ódýrast og bíður góð kjör. td minkaði pakkinn hjá mér um 80.000 á ári þegar ég fór eitt skiptið ur Vís í sjóva.
og það er bara hellingur.Það væri allavega gaman að heyra álit ykkar á þessari hugmynd ?
kv
bjarki
21.06.2005 at 15:43 #196053Bíl ef Gerðinni Mazda E2000 sem er rauður sendibíl var stolið
þann 16 mai. Þetta er gamal óskaplega ómerkilegur sendibíll brotinn afturrúða og forljótur. hvítar málingaslettur
á hlera og í framsætum. Bílinn er ruslamatur en aftur í bílnum var gatnamálningasprauta uppá ca 700.000
og rekstur í fullum gangi. allt stopp allt brjálað &
allt í klúðri.Please ef þið sjáið þennan sendibíl sendið mail eða
hringið í 8204133
honnun@gmail.com
21.06.2005 at 15:13 #524320Varðandi skoðanakönnun þá finnst mér í lagi að hafa hana lokaða. annars er auðvelt að svindla á henni og kjósa margoft með smá tölvufikti.
Þó upp komi tilfelli að misnotkun á spjallinu
má nú auðveldlega laga það. eða þurka út.Nú varðandi þennan Gestaaðgang að síðunni þá þarf
að vekja athygli á að hann sé í boði.bc
21.06.2005 at 12:20 #524310Það er nú líka augljóst mál að það hefur minkað traffik á vefnum að loka á utanfélagsmenn. Sem ég er algjörlega ósammála.
Mér finnst td fínt ef einhv utanfélgasgæi setti inn auglýsingu með akkurat draslinu sem ég er búin að vera að leita að í
ár og aldir.Lokaðir klúbbar fjara út þeas þegar við fáum leið á röflinu í hvor öðrum. eða ca þeim 3-4 sem spjalla greinlega mest á spjallinu. það opnar klúbbinn betur að bjóða alla velkomna
hér. Og lífgar upp á vefinn.Að mínu mati er þessi vefur búin að loka sig inn í kassa.
svo er bara að bíða eftir að innihaldið byrji að mygla.Það mætti lífga mikið upp á svona síðu td
vera með skemmtilegar myndir eða síðumeð tenglum
sem tengjast jeppum þá sérstaklega það sem er sniðugt
eða fyndið. það er alveg glatað þegar menn eru að reyna að
setja brilljant myndir eða linka á spjallið það er týnt eftir örfá a daga og ömurlegt að reyna að finna það aftur. Sjáið http://www.b2.is algjörlega hönnunarlaus forljót síða en með tenglum í sniðugt efni. þúsundir heimsókna á dag.Viðurkennið það bara það er td gaman að sjá ameríkuvitleysingana keyra jeppa upp á stein og velta.
Sjá ömmu gömlu bakka niður umferðarskilti.Svona drasl dregur athygli að vefnum og eykur verulega
umferð.
Hinsvegar má deila um markmið vefsins.
Eins og Skúli segir þá er þetta Ferðaklúbbur ekki afþreyingarvefur. en engu að síður er það miður þegar
félgar eru að setja inn skemmtilegt efni að það bara týnist.ég mæli með því að sett yrði linkur á sér síðu sem héti td
frá félagsmönnum ´linkar og myndir´
bjarki
21.06.2005 at 12:19 #524308Það er nú líka augljóst mál að það hefur minkað
traffik á vefnum að loka á utanfélagsmenn.
Sem ég er algjörlega ósammála.Mér finnst td fínt ef einhv utanfélgasgæi setti inn auglýsingu með akkurat draslinu sem ég er búin að vera að leita að í
ár og aldir.Lokaðir klúbbar fjara út þeas þegar við fáum leið á röflinu í hvor öðrum. eða ca þeim 3-4 sem spjalla greinlega mest á spjallinuþ. það opnar klúbbinn betur að bjóða alla velkomna
hér. Og lífgar upp á vefinn.Að mínu mati er þessi vefur búin að loka sig inn í kassa.
svo er bara að bíða eftir að innihaldið byrji að mygla.Hei eigum við ekki bara að taka okkur saman og stofna eigin síðu td FF4x4.is Félagar ferðaklúbsins4x4 ?
Það mætti lífga mikið upp á svona síðu td
vera með skemmtilegar myndir eða síðumeð tenglum
sem tengjast jeppum þá sérstaklega það sem er sniðugt
eða fyndið. það er alveg glatað þegar menn eru að reyna að
setja brilljant myndir eða linka á spjallið það er týnt eftir örfá a daga og ömurlegt að reyna að finna það aftur. Sjáið http://www.b2.is algjörlega hönnunarlaus forljót síða en með tenglum í sniðugt efni. þúsundir heimsókna á dag.Viðurkennið það bara það er td gaman að sjá ameríkuvitleysingana keyra jeppa upp á stein og velta.
Sjá ömmu gömlu bakka niður umferðarskilti.Svona drasl dregur athygli að vefnum og eykur verulega
umferð.
Hinsvegar má deila um markmið vefsins.
Eins og Skúli segir þá er þetta Ferðaklúbbur ekki afþreyingarvefur. en engu að síður er það miður þegar
félgar eru að setja inn skemmtilegt efni að það bara týnist.ég mæli með því að sett yrði linkur á sér síðu sem héti td
frá félagsmönnum ´linkar og myndir´
bjarki
14.06.2005 at 14:05 #196035ég er með 10″ breiðar felgur sem ég þarf að sandblása.
Eru fáir aðilar í þessu?Veit um zink stöðina í Hfn er enginn í þessu
í RVK. Nenni ekki út úr bænum
kv
bc
-
AuthorReplies