Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
24.04.2006 at 10:26 #550622
tek undir þetta væri gaman að geta farið stuttan túr með
börn og fólk sem getur og myndi njóta þess að fá að fara í svona bíltúr. Fyrir hönd klúbbsins…
Allavega væri minn litli bíll í boði 😉
24.04.2006 at 10:26 #550624tek undir þetta væri gaman að geta farið stuttan túr með
börn og fólk sem getur og myndi njóta þess að fá að fara í svona bíltúr. Fyrir hönd klúbbsins…
Allavega væri minn litli bíll í boði 😉
24.04.2006 at 10:23 #550660Það voru bílar nokkrir á ferð þarna um daginn. væri gaman að fá punktana hjá þeim….
24.04.2006 at 00:21 #197836Magnaðar myndir. Með því flottasta sem ég hef séð á þessum vef..
https://old.f4x4.is/new/photoalbum/?file=oldsite/3083/20203
23.04.2006 at 23:59 #550462Þetta er bara fáránlegt. 122 kr líterinn
hvað kostar að skreppa hringinn á litlum disel jeppa í dag
ca 15 – 18 lítrar á hundraðið litlum (þeas Landcruser, patrol eða pajero) fer það ekki vel yfir 20.000 kallinn í olíu.Og ríkið mokar inn seðlum…. tóm hamingja…
23.04.2006 at 23:44 #550662Æ sorry elsku kallinn minn
Við sunnan menn erum svo ruglaðir…
En ég er alveg sammála þér..Þegar ég sagði austurland meinti ég bíltúr austur þeas í þeirri meiningu austur á selfoss, Bara vitlaust orðað hjá mér.. hihi á maður kannski að segja ég skrapp Suður í vík í mýrdal ? það fer auðvitað eftir því hvar á landinu þú ert 😉
En takk kærlega fyrir ábendinguna. Fyrir mér er ég komin áleiðis austur á litlu kaffistofunni
þó það sé auðvitað ekki austurland
23.04.2006 at 19:13 #550450Er ekki bara málið að koma fyrir netsíu í rörinu rétt áður en það fer inn í tankinn. þá er ekki hægt að tékka..
16.04.2006 at 23:31 #5496881000 m hóst hóst hvað þarf að vera á stórum túttum til að keyra kaldadalin hmm hihi
þú ert svakalegur…
ertu að biðja um að láta skjóta þig niður 😉
16.04.2006 at 16:49 #549716Barki Dalbrekku kópavogi á allt í svona.
bremsuslöngur bremsurör allar gerðir af slöngum..ofl ofl.
bjarki
15.04.2006 at 23:47 #549510ósáttir? frekar sammála er það ekki?
15.04.2006 at 21:21 #549502Þegar menn labba á lakkskónum og kaupa sér
38" bíl með öllu, halda þeir margir að þeir séu klárir í flestan sjó. Og þegar veður virðist gott fara þeir jafnvel einbíla með félagan með sér til að sýna hversu öflugur kagginn er nú. Ég hef hitt á nokkra svona allslausa á aðalega við skjaldbreið eða á langjökli. Og þurfti einu sinni að leiða bíl til baka 😉
Ég held það sé lítið bolmagn sem þessi klúbbur sem slíkur getur gert til að sporna við þessari þróun en hægt er að reyna að gera klúbbinn og þessa hluti meira áberandi meðal almennings. En þá erum við aftur komnir að því .. hver á að gera það?..Það væri td hugmynd að Fá allar bílasölur & umboð til að láta einhvern bækling frá F4X4 fylgja með hverjum seldum jeppa. þeas með fjallaráðum og útbúnað og þekkingu sem ætti að vera til staðar áður en lagt er í óbyggðir.
Mér finnst nú reyndar klúbburinn alveg sæmilega áberandi
og koma nokkuð oft í fréttum á hverju ári.
Og þá yfirleitt með góða punkta inn í umræður sem eru
í gangi.
Kv
Subbi sóði
14.04.2006 at 12:45 #548838spáin virðist vera að lagast nokkuð fyrir morgundaginn
ætti að geta orðið fínn dagur fyrir litludeildina…
14.04.2006 at 01:04 #549450Tóm snilld að fylgjast með þessu.
13.04.2006 at 10:45 #548640Sæll Guli
Áttu til punkt af skálanum ?
Væri fínt að bæta honum í gagnasafnið..
ef maður þarf á því að halda enhv tíma….
kv
Subbi
11.04.2006 at 23:06 #549256Í svari Luthers kemur fram að þetta sé góður punktur…
09.04.2006 at 22:22 #548860Ég gæti ca verið laus til að renna eftir bílnum.
Hvenar er verið að pæla í að renna?
Er hann langt upp á jökli ? Hvar fóruð þið upp?
Endilega lýstu bilun, dó hann bara allt í einu. Hvaða model af runner er þetta ? Kom enginn neisti frá háspennukefli ?
tókuð þið lokið af og skoðuðuð það ?
Þjóðráð að taka með ykkur nýtt lok, hamar, kerti og þræði.
ef þið náið síðan neista en bílinn fer ekki í gang.. gætu kertin verið orðin bensínblaut eftir allar tilraunirnar. Þarf þá að kippa þeim upp og þurka.
09.04.2006 at 19:00 #548716er einhv búin að finna verð á þetta ?
09.04.2006 at 18:29 #548810Td autosport, 12 volt, ca aukaraf.
ofl ofl. 30.000 kall ca.
06.04.2006 at 20:17 #548428Ég er svona að gæla við að rúnta á þann langa á laugard ef það verður sæmilega kalt.
04.04.2006 at 08:52 #548118Skeljungs olían er með stíflumörk -25° C
Það getur nú orðið kaldara en það í roki á fjöllumhér er uppgefin tafla frá Skeljungi með blöndunarhlutfalli
til að auka frostþolið.Þessi fróðleikur kemur frá Skeljungi
Frostþol Díselolíu.Frostþol díselolíu sem Skeljungur hf er að selja á bensínstöðvum sínum yfir vetrarmánuðina (nóv – mars) er um -18 til -25ºC *?.
Hægt er að auka frostþol díselolíu með því að blanda steinolíu saman við díselolíuna. Við hver 10 % af steinolíu sem er blandað saman við díselolíuna eykst frostþolið um c.a. -2ºC.Ef blandan er meira en 30 % steinolíu saman við díselolíuna, þarf að blanda tvígengissmurolíu (t.d. Vélsleðaolíu eða Advance VSX 2) saman við blönduna til að tryggja smureiginleika díselolíunnar, sjá töflu hér að neðan.
Steinolía % *? Tvígengisolía C.a. frostþol í ºC
0 0 -18 til -25
20 0 -20 til -27
30 0 -22 til -29
40 0,5 -24 til -31
50 0,75 -26 til -33*? Steinolía 40 % þýðir að blandan inniheldur 40 % steinolíu og 60 % díselolíu
Ath! Ef notuð er tvígengisolía er mikilvægt að olían blandist vel saman við blönduna. Bestur árangur næst ef tvígengisolíunni er blandað saman við c.a. 20ºC heita steinolíu.
Ef raki er í tanki bílsins eða eldsneytissían er orðin óhrein, má búast við lægra frosþoli.
Með frostþoli er átt við það hitastig sem hægt er að ræsa vélina í og aka án vandræða
*? Þegar við gefum upp frostþol -18ºC til -25ºC þá er stíflumark (CFPP) -25ºC, en lágmarks frostþol samkvæmt viðmiðun Shell er -18ºC.
Stíflumark (CFPP), er það hitastig sem díselolía er við þegar vax í henni kristallast að því marki að síur stíflast. CFPP er lægsta hitastig sem sem hún er nothæf við en sumir bílar eru viðkvæmari og þola minna frost og þessvegna hefur Shell skilgreint frostþol díselolíu hærra en stíflumark.
Allar nánari upplýsingar veitir eldsneytis- og smurolíudeild
Skeljungs hf. í síma: 560-3800Rakst á þetta á litlu síðunni.
Nota bene nú er komin April, þannig að sumarblandan gæti farið að koma á stöðvarnar eða hvað ?
-
AuthorReplies