Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.04.2006 at 23:14 #548630
Hvernig væri bara að fara að safna undirskriftum á netinu? [url=http://www.petitiononline.com:3keuhyie][b:3keuhyie]Skoða vef[/b:3keuhyie][/url:3keuhyie]
07.04.2006 at 09:13 #548516Hver man ekki eftir Siera Foxtrot og fleirum?
Á góðum degi gat maður heyrt í og talað við fólk út um víða veröld.
Man eftir einum í kanada sem kallaði sig Wihseky Foxtrot Tango ef ég man rétt og náði stundum að tala við hann.
Annars voru landfræðileg skilyrði slæm þar sem ég var og mitt svæði var mest megnis norðanvert Snæfelllsnesið og Breiðafjarðarsvæðið.
Fjöll hindrðu sendingar til Reykjavíkur,en þó kom fyrir að maður náði þangað á góðum degi, eða nóttu.
CB stöðvarnar eru langt í frá úreltar og eins og kemur hér fram að ofan, þá eru þær að svínvirka á skemmri vegalengdum, en það er með þær eins og annað það þarf að stilla þær og setja rétt upp loftnet og kapla eigi þær að virka rétt, en þá virka þær líka vel.
Ég er alltaf með kveikt á stöðvunum hjá mér þegar ég er á ferðinni og hef haldið mig á rás 19.
FR félagið var með sína kallrás á 7 en almenn neyðarrás ER og hefur alltaf verið rás 9.Nú er ég búinn að gleyma tíðnunum á þessum stöðvum, en gaman væri ef einhver rifjaði þær upp svona að gamni.
07.04.2006 at 00:12 #548510Ef um meiriháttar stillingar er að ræða, það er að stilla móttakara inni í stöðinni, þá þarf að kippa henni úr.
ef þetta er bara static mæling á loftneti og kapli, þá er hún bara í bílnum.
06.04.2006 at 23:27 #548506Þá var ég með FR-4841 ef mig brestur ekki minni.
Er reyndar í dag líka með VHF stöð, en það er eitthvað svo sjarmerandi við þessar gömlu góðu með suðinu og brakinu og öllum truflunum.
Spyrjið þá sem eru enn með gömlu Gufuneshlunkana [img:gdpbvnnu]http://alvaran.com/forum/style_emoticons/default/beer2.gif[/img:gdpbvnnu]
06.04.2006 at 19:23 #548492Ég hef verið með CB stöð meira og minna í rúm 20 ár og notað allar tegundir af loftnetum.
Er með gamla Benco stöð í dag og hún er að svínvirka, hef verið að heyra í henni af og til hér í Borgarnesi ef fólk er að þvælast á Uxahryggjum, Kaldadsl og upp á Langjökli og á Snæf.
Verð þó að játa að gæðin eru oftast slöpp þegar um svona langar leiðir er að ræða, en samt merkilega gott að ná upp á hálfan styrk á mæli miðað við Kaldadal.
Loftnetið er staðsett á hægra frambretti, en þetta er um tveggja metra langur og nærri þumal sver fíbertoppur, enda það allra besta.
Stadic er samkvæmt mælingu 0,03 á digitalmæli.
03.03.2006 at 12:58 #538346Það er hellingur af góðum hlutum í gangi þarna, en ég er mjög á móti Mambo kerfinu. Það hafa hvað eftir annað komið upp öryggisgallar í því sem gerir það að verkum að mjög auðvelt er að hakka sig inn á það og skemma.
Reyndar er sama uppi á teningnum með phpbb, en þó mun erfiðara að hakka sig inn á það þó ekki sé langt síðan ég sá það gerast á Útvarp Saga.
Hvað vef LMV varðar, þá finnst mér forsíðan á honum eiginlega of troðin til að kallast notendavæn, en það er náttúrulega smekksatriði.
03.03.2006 at 11:37 #538340Satt er það, það er til mikið af góðum stöðluðum lausnum ókeypis sem hægt væri að forma að þessum vef og koma öllu í einn góðan gagnagrunn.
Til dæmis er vefurinn [url=http://geirinn.is:tkq7qh9q]Geirinn.is[/url:tkq7qh9q] unninn upp á þann hátt og sá vefur hefur verið í sífelldri endurskoðun og endurbótum frá því hann var settur á laggirnar.
Í dag er hann með þeim flottari og notendavænni sem maður sér og þægilegur í allri umgengni.
Þetta er eitthvað sem þarf að skoða vandlega og hvort ætti að far enn einu sinni af stað í breytingar á vefnum frá grunni með því að nota svona tilbúnar fríar lausnir.Kv, Keli.
03.03.2006 at 11:15 #538336Það er alveg satt að það væri mjög þægilegt að sníða phpbb kerfið inn í spjallið hérna, en þá kemur að gagnagrunninum sem þarf þá að converta algerlega til að fella hann að kerfinu.
Það yrði talsverð vinna, en ætti að vera gerlegt ef einhver hefur tíma til þess.Já og takk fyrir að bæta þessu við í sambandi við að setja slóðirnar á myndir.
Kv, Keli.
03.03.2006 at 11:04 #538332Til að mynd sjáist, þá þarf slóðin að enda á .jpg, en það gerði hún ekki hjá þér.
Ég vona að Vals standi við að bjóða sig fram í vefnefnd og hjálpa okkur að gera vefinn enn betri en hann er nú þegar.
Vissulega eru ýmsir annmarkar á honum, en það hefur verið hellings vinna að ráða fram úr alls konar villum sem hafa plagað hann og á Bjarni miklar þakkir skildar fyrir þá vinnu sem hann hefur lagt í vefinn.
Við hinir skussarnir höfum lítið gert í forrtinun, aðalega komið með hugmyndir og nöldrað út af hinu og þessu ásamt því að aðstoða notendur í vandræðum þeirra.
Ég er fullviss að með tíð og tíma kemst þessi vefur í það ástand að allir geta verið nokkuð sáttir, en það er mikil vinna í að það verði og við skulum bara reyna að sýna smá þolinmæði og skilning á ástandinu þangað til.Kv, Keli
Vefnefnd.
02.03.2006 at 22:58 #538324Það er einfaldast að kóða bara eins og staðan er í dag.
Satt er það annars að það hefði mátt hugsa fyrir notendavænu spjalli í upphafi þegar byrjað var að smíða þennan vef, en það er verið að vinna að endurbótum sem koma til með að verða virkar einhvern tíma á næstunni. Nákvæma tímasetningu get ég ekki gefið sem stendur.
27.02.2006 at 08:30 #544930Sælir félagar. Þetta eru hvorutveggja góðar hugmyndir, en mér var að detta eitt í hug. Nú eru örugglega einhverjir félagar í klúbbnum flugmenn og hafa aðgang að flugvélum. Hvernig væri að þeir leggðu nú öllum lið og tækju myndir af jöklunum og sendu vefnefnd í fullri stærð?
Þannig væri hægt að koma þeim á netið í fullri upplausn og þannig auðveldara að sjá sprungur og hættusvæði.Kv, Keli.
26.02.2006 at 22:36 #544844Ég hef einmitt heyrt sögur af svipuðum toga og þú.
Þessir menn eru 100% hetjur.
26.02.2006 at 21:14 #544830Hvað eftir annað koma þyrlumál til umræðu þegar slys verða og þyrlurnar í viðhaldi.
Reyndar er vitað að ríkið er ekkert að ofdæla fjármagni í gæsluna heldur fjársveltir hana eftir bestu getu.
Ekki er nú langt síðan stjórnvöld ætluðu að skera niður lækniskostnað á þyrlunni, en þau voru stoppuð af því hryðjuverki með fínum rökum bæði lækna og gæslumanna. Nær væri að efla og styrkja gæsluna með enn stærri hluta á næstu fjárlögum.
26.02.2006 at 00:08 #544496Viljum senda aðstandenum hins látna okkar dýpstu samúðarkveðjur.
Keli og Inga Borgarnesi.
25.02.2006 at 21:45 #544446Vakna við svona fréttir.
25.02.2006 at 21:00 #544424,, En það er nú bara þannig að manni líður bölvanlega að geta ekkert gert til hjálpar og því miður kanski brýst það svona út.
Ég veit að Lúther hefur styrkt björgunarsveitir af mikilli rausn og á ekkert nema heiður skilið fyrir.Keli sem er að naga þriðja lyklaborðið af áhyggjum.
25.02.2006 at 20:25 #544410Að það borgar sig að styrkja björgunarsveitirnar með kaupum á flugeldum.
Eða eru KR, Valur og fleiri fótboltafélög að gera eitthvað í björgunaraðgerðum?
25.02.2006 at 18:15 #544386….um ástand mannana í bílnum?
24.02.2006 at 15:45 #544256Sæll.
Það er verið að vinna í því að koma inn þeim möguleika við hliðina á forminu sem skrifað er í tveim formum.
Annars vegar möguleika á að setja inn mynd og hins vegar að hægt sé að setja inn tengil á síðu.Senniglega getur Bjarni betur svarað því hvernig gengur með þessar módúlur þar sem hann hefur séð um smíði þeirra.
17.02.2006 at 12:21 #543162Það er rétt hjá þér að það eru greidd stefgjöld af tómum diskum þannig að það er búið að þjófkenna fyrirfram alla sem kaupa sér diska til brennslu á efni.
Get því varla séð nokkuð ólöglegt við það að fjölfalda efni að vild.
-
AuthorReplies