FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jack Hrafnkell Daníelsson

Jack Hrafnkell Daníelsson

Profile picture of Jack Hrafnkell Daníelsson
Virkur síðast fyrir 10 years, 5 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 18 replies - 381 through 398 (of 398 total)
← 1 … 19 20
  • Author
    Replies
  • 02.06.2004 at 21:33 #500278
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Ég er með pajero árg 90 V6-3000 beinskiptann með beinni innspýtingu. Skrapp á langjökul og var heildarkeyrslan hjá mér um 230 km. Töluvert hjakkast í vondu færi og var ekki drepið á bílnum allan tímann. Eftir stendur eftir þetta skark að hann kláraði ekki hálfan tank í túrnum. Það er 100 lítra tankur í honum. Reikna með að meðaleyðsla í þessari ferð sé á bilinu 18 til 20 lítrar. Annars er hann að eyða þetta 12 til 14 að jafnaði.





    30.05.2004 at 15:30 #194419
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Trúðarnir eru að spá í létta ferð á Langjökul annan í hvítasunnu, (morgunn) Nánar á http://www.trudur.alvaran.com undir fréttir.





    28.05.2004 at 16:03 #503283
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Jahhh. Það var nú drauminn að koma 38 tommum undir garminn svona með tímanum svo maður komist hjálparlaust eða með lítilli hjálp upp á jökla og eins í einhverjar vetrarferðir þegar fram líða stundir.

    Kveðja keli. E-1819





    28.05.2004 at 13:02 #194410
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Sælir spekingar. Nú vantar mig smá upplýsingar og hjálp frá ykkur snillingum. Ég er með Pajero 90 módel og er að spá í að hækka hann upp á boddý. Spurningin er bara hvort á ég að hækka hann um 2 eða 4 tommur, og hvar fæ ég það sem til þarf og hvað ber að varast við að hækka hann. Allar upplýsingar, myndir, vefslóðir og hvaðeina sem getur komið að gagni væri vel þegið.

    Kveðja Keli. E-1819





    24.05.2004 at 22:26 #502707
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Þrátt fyrir að hafa margoft komið í mörkina, þá bar þessi ferð af fyrir nokkrar sakir. Í fyrsta lagi hef ég aldrei komið þangað í rigningu og eiginlega hálf leiðinlegt þar sem þetta var jómfrúarferðin hjá minni ekta frú í Þórsmörk. Annars líka það að þetta er fyrsti jeppinn sem ég eignast og fer á í svona ferð nánast án þess að vera búin að tékka hann 100% áður enda stuttur fyrirvari, en hann skilaði okkur uppeftir, yfir Krossá og heim aftur og það vel.

    Langar að lokum að þakka öllum sem voru í þessari ferð fyrir frábæra viðkynningu og móttökur. Þessi ferð er komin í safn með bestu minningunum.

    Kveðja Keli og Inga Borgarnesi.





    21.05.2004 at 12:15 #502636
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Það má alveg reikna með því að ef hann er á vestan eða suðvestan með hriðjum, þá getur það náð í mörkina. Aðrar áttir þurfa að vera mjög vindasamar ef það á að blotna þar innra. Tel að ekki þurfi að hafa áhyggjur af því þó það væti aðeins. Enginn er verri þó vökni.

    Kveðja Keli E-1819





    21.05.2004 at 12:12 #502872
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Síðast þegar ég vissi þá var hægt að fá viktun hjá malbikunarstöðinni við stórhöfða eða þórðarhöfða hjá Borginni. Veit ekki annað en það sé hægt enn fyrir einhverja þúsundkalla.

    Kveðja Keli E-1819





    20.05.2004 at 04:19 #502833
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Fyrstu ferð inn á hálendið fór ég á gömlum LandRover árg. 1974 á orginal skurðarskífum árið 1984 og þrælaðist þá upp á kaldadal og Arnarvatnsheiði yfir á kjöl með miklu basli einbíla. Um sumarði þrælaðaist ég þar sem fært var og hafði gaman af þessu æfintýri. Ég tók mér viku í þetta og á þessum ferðum mínum þessi 2 sumur á hálendinu sem hver um sig tók þetta frá 3 dögum upp í rúma viku, þá sá maður kanski 2 til 5 bíla þarna uppfrá í hverri ferð. Þá var þetta æfintýri, en í dag er ekki þverfótað fyrir umferð. Nú er kanski svo komið að þetta hættir að verða æfintýri, nema kanski helst að vetri til þegar allra veðra er von og það er hið raunverulega æfintýri, þangað til umhverfisráðuneytið ákveður að allt hálendið skuli verða þjóðgarður lokaður allri bílaumferð.

    Aðeins göngufólki skal vera heimilt að labba hálendið þvert og endilangt.





    19.05.2004 at 10:27 #502824
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Það eitt að fikta við leiðina inn í mörk er ekkert annað en skemmdarverk og er þá sama hver stendur fyrir því. Aðalsportið í því að fara þangað er sú staðreynd að það hefur ekki verið hægt að fara þangað á hvaða bíl sem er. Reyndar fór ég sumarið 90 þangað á gamalli Toyota Crown Disel og aftur til baka án þess nokkurntíma að fá "drátt" Bjargaði mér sjálfur yfir allar árnar á leiðinni, en ég svitnaði nokkuð oft þegar flaut upp og fór að spóla á miðju vaði. Nei það þarf að finna út hverjir það eru sem standa fyrir þeirri skemmdarverkastarfsemi að vera að byggja þarna upp veg. Hef með mér myndavélina um helgina og tek heimildarmyndir af þessu til að birta á vefnum mínum, http://www.alvaran.com ásamt kjarnyrtum greinarstúf um þetta og álit ýmissa aðila á þessari framkvæmd.

    Kveðja Keli. E-1819





    19.05.2004 at 00:11 #486912
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Fann slóðina sem þetta var inni á, en því miður er hún bara á ítölsku. Hér er slóðin
    http://www.16valvole.it/auto/Pajero/mit … 500_v6.htm





    18.05.2004 at 02:03 #486910
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Sá þetta á vefnum en hef ekki hugmynd hvar er hægt að fá þetta. Sló bara pajero í myndleit á google.com og þetta var þar á rússneskri síðu. Örugglega hægt að finna þetta einhversstaðar ef vel er leitað. Mér fannst þetta bara svo helv… flott að ég varð að skella þessu inn.





    15.05.2004 at 14:50 #502369
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Sæll. Sumarið 2002 fór ég þessa leið á Subaru impressa og átti ekki í neinum vandræðum með það. Fór hringinn, sem sagt upp úr Bárðardal og upp í Laugarfell og þaðan niður í Eyjafjörð. Kúnstin er bara að fara nógu varlega og tekur ferðin þetta sex til átta tíma eftir því hvernig ekið er. Einnig er nóg að skoða á leiðinni. Ég fór þetta í byrjun Ágúst.





    14.05.2004 at 18:30 #502199
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Ég tel að þetta sé mönnum mikill hvati til að skoða þessi mál. Væri gaman ef hægt væri að skrifa góðan pistil um hvað nákvæmlega þarf að gera, hvar hlutirnir fást og hvað þeir kosta. Ég skal játa að ég er sérstaklega hrifinn af því að geta stjórnað þessu öllu innan úr bílnum. Það væri eins og ég segi, gott að fá að vita hvar allt dótið fæst og hvað það kostar svona gróflega áætlað.





    14.05.2004 at 14:13 #502191
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Takk fyrir svörin. Ég sé á síðasta svari, að það er mesti kosturinn að fara alla leið í þessu ef maður ætlar í loftið á annað borð. En þá er það spurning um kostnaðinn. Hvað svona kerfi kostar og hver er ending á púðunum og svo framvegis. Ef það væri hægt að slumpa á tölur sem væru mjög nálægt þeim kostnaði sem um er að ræða. Þess má í leiðinni geta að ég er alvarlega að spá í að fara með pæjuna á 38 tommur seinna meir.





    14.05.2004 at 00:09 #502167
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Takk fyrir greinargóð svör. Ég er með 90 módel af pæju þannig að þetta er alltaf spurning. Hefði viljað sjá hvernig púðarnir koma út einir og sér áður en ég ákveð að gera nokkuð í því. Væri nefnilega helv…. gaman að hafa þann möguleika að geta hleipt í púðana inní gormum til að stífa aðeins eða lyfta ef aðstæður væru þannig.





    13.05.2004 at 20:56 #490732
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Hvernig er með lengingu á drifskafti við svona mikla færslu á hásingunni? Er það ekkert vandamál?

    Annað í þessu sambandi, ef maður fer í 38 breytingu, hvernig er þá að fá önnur hlutföll í framköggulinn? Eða væri betra að setja hann á rör?





    13.05.2004 at 20:56 #497314
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Hvernig er með lengingu á drifskafti við svona mikla færslu á hásingunni? Er það ekkert vandamál?

    Annað í þessu sambandi, ef maður fer í 38 breytingu, hvernig er þá að fá önnur hlutföll í framköggulinn? Eða væri betra að setja hann á rör?





    13.05.2004 at 14:04 #194352
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Nú langar mig að spyrja hvort það sé einhver glóra í því að blanda þessu saman og ef svo er, hvernig er best að framkvæma það og hvar er hægt að fá það sem til þarf?

    Kveðja Keli.





  • Author
    Replies
Viewing 18 replies - 381 through 398 (of 398 total)
← 1 … 19 20

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.