Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
25.07.2004 at 12:52 #194570
Sælir spekingar. Ég er með 8 tommu breiðar felgur sem ég var að spá í breikka upp í 14 tommur. Er einhver glóra í því dæmi og hvar ætti ég að láta gera það?
22.07.2004 at 20:57 #504958Eru ekki allir jöklar ófærir núna?
20.07.2004 at 01:59 #504938Þakka fyrir að benda mér á þessar aulavillur hjá mér þarna í upphafi. En þetta er hárrétt hjá þér að sjálfsögðu.
Ég er ekki nógu kunnugur staðháttum, en þegar komið er niður í Dalina, þá er komið niður í Langadal sem gengur inn úr Hörðudal.
19.07.2004 at 16:02 #504934Að sjálfsögðu bilaði albúmið þegar ég var að setja inn myndirnar, en það eiga eftir að koma nokkrar í viðbót.
19.07.2004 at 15:54 #194556Gamla þjóðleiðin mill Dalasýslu og Borgarfjarðar var einhversstaðar hér til umræðu en ég fann hana ekki þannig að ég ákvað að smella bara inn nýjum þræði.
Þessi leið er fær nánast öllum jeppum breyttum sem óbreyttum núna. Vegurinn er reyndar mjög grófur á köflum en hvergi neinar bleytur eða neitt vesen. Farið er af Ólafsvíkurvegi (54) ef farið er úr Borgarfirði og inn á veg 535 upp með Grímsá vestan við Langá. Keyrt með fram sumarhúsabyggðinni og beygt svo upp í hlíðina fyrir ofan og upp í dalinn vestan við Langá. Gott er að taka svona 4++ tíma í þessa ferð í góðu veðri og skoða sig um, enda landslagið þarna einstaklega fallegt.
Skrapp þessa leið í gær og var ekki svikin af náttúrfegurð, góðu veðri og fjölbreyttu landslagi að keyra í. Aðalatriðið er bara að fara nógu varlega í hrönglinu þar sem sum staðar þarf að beita lagni í grjótinu.
Myndir í albúmi.
08.07.2004 at 01:26 #503912Nei ég keypti mér ekki jeppa til þess eins að ganga í klúbbinn. Ég keypti mér drusluna til að komast upp á hálendið í sumar og kanski eitthvað í vetur ef heilsan og veskið leifa það. En þar sem maður þarf jú að standsetja draslið og versla sér rándýra varahluti, þá hefði komið sér ágætlega að vera með félagsskírteinið til að fá einhverjar krónur í afslátt. En kanski skiptir það ekki máli úr þessu þar sem veskið er tómt og það á eftir að skoða gripinn og greiða tryggingar. En komon. Til hvers að væla? Hefur það einhvern tíma hjálpað?
08.07.2004 at 00:03 #503908Ég verð nú að segja að ég er nánast að komast á þá skoðun að ég sé hreinlega ekkert velkominn í félagið
Ekkert bólar á greiðsluseðli eða neinu í þá veruna. Spurning hvort maður ætti ekki bara að hætta við þetta allt saman og selja bara jeppahræið og fá mér eitthvað annað í staðinn.
05.07.2004 at 14:05 #504590Ég get nú ekki séð hvernig á að vera vandratað á henni. Þetta er með einfaldari síðum sem eru gerðar. Þegar þú kemur inn á síðuna, þá ertu raunverulega í spjallinu og þar eru allir grunnflokkarnir og svo er bara að fara í þann þráð sem ætlunin er að lesa. Ekkert mál að fara til baka á linknum sem er efst eða neðst þar sem stendur Trúðar á fjöllum umræðuhópur.
Hvað varðar orðalagið "Skoða ósvöruðum innleggjum" þá verður þú að bera það undir þann sem þýddi kerfið á Íslensku.
Kveðja. Keli.
30.06.2004 at 02:20 #504314Var sjálfur að spá í að fara þessa leið norðan Hofsjökuls í sumar, bara ekki búinn að ákveða tíma á það, en það gæti orðið í byrjun Ágúst þess vegna. Er líka að leita mér að kortum eða leiðum sem hægt væri að fara með góðu móti.
24.06.2004 at 13:15 #503906Er ekkert of öruggur með að komast í kvöld, en sé til hvernig málin þróast. Er að fara austur í Landeyjar í dag og ekki alveg vitað hvenær ég legg í hann til baka. Fer eftir því hvernig verkefnið gengur.
24.06.2004 at 01:24 #503900Það væri kanski ráð að gera það. Sé til hvort ég næ því að vera þar angandi af hrossakjeti á þeim tíma. Verða þá snöggir að afgreiða mann til að losna við mann. He he he he he
23.06.2004 at 18:39 #503896Er búinn að senda póst á viðkomandi. Engin viðbrögð. Hvorki berst mér greiðsluseðill né setur. Er nú svolítið sár, enda ætlaði ég að borga gjöldin þar sem mig vantar stimpilinn til að fá afslátt á því sem ég þarf bráðnauðsinlega að versla mér.
20.06.2004 at 05:21 #504022Það verð ég að segja af þessari mynd hér að ofan, að þetta er varla hálfkarað kvikindi þó ekki sé meira sagt. Illa frágengið og illa útfærð hækkun. Væri samt ekkert leiðilegt að eiga hann, skella honum á 49′ og almennilega kanta og stigbretti ásamt einhverju lítilræði í viðbót. Gæti orðið ágætis farartæki eftir breytingar, en eins og er er þetta hreinn og klár viðbjóður.
18.06.2004 at 14:27 #503988Það er hægt að fara krókaleiðir inn á myndirnar. TD. héðan úr spjallinu, að velja einhvern notanda og smella á nafnið hanns og velja svo myndaalbúm notanda. Það er greinilega einhver villa í index.php skránni sem keyrir myndaalbúmið sem veldur þessari villu. Gæti líka verið í einhverri töflunni í MYSQL grunninum. Hvað um það, það að þeir hjá Vortex skuli ekki vera búnir að laga þetta segir mjög mikið um þeirra þjónustu.
Kveðja Keli.
16.06.2004 at 23:09 #503934Ég er tilbúin að taka að mér að gera tilboð í hýsingu á vefnum. Er með pláss á server í USA með öllum stuðningi, stjórnborði og webmail svo eitthvað sé nefnt.
Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda mér póst á vefstjori@trudur.alvaran.com
Kveðja Keli E-1819
15.06.2004 at 02:12 #503884Ég skráði mig fyrir meira en mánuði síðan og er ekki farinn að sjá gíró fyrir gjöldunum, hvað þá setrið
Vill endilega fara að sjá þetta fljótlega.
Kveðja. Keli E-1819
07.06.2004 at 11:52 #503618Það er alveg greinilegt að GMT, sem skrifar þessa grein hefur ekki hundsvit á því sem hann er að fjalla um. Hann er búinn að mynda sér einhverja skoðun á því sem hann þekkir ekki og er umsvifalaust búinn að dæma allann hópinn út frá einhverjum örfáum svörtum sauðum, (sem finnast alltaf í hverjum hópi eða félagasamtökum) en hefur sjálfur ekki keyrt um á jeppa eða farið til fjalla.
Það er lágmarkskrafa að menn kynni sér hlutina af eigin raun og kynni sér þá áður en farið er að dæma heilu félagasamtökin á þennan hátt.
Reyndar er greinin þess eðlis að varla er hægt að líta á hana sem eitthvað marktækt, nær væri að líta á þetta sem nett geggjaðan kaldhæðnishúmor sem hægt er að hrista hausinn yfir og hlæja að. Og maður mundi gera það ef það væri ekki fullt af fólki sem trúir þessu bulli.
07.06.2004 at 11:32 #503614Ekkert mál að redda því. Ég er sjálfur með netmiðil sem er töluvert lesinn og er til í að koma málefnum félagsins á framfæri opinberlega ef það er einhver áhugi fyrir því.
Kýkið á http://www.alvaran.com
06.06.2004 at 17:51 #194435Ákvað að skella þessu hérna í staðin fyrir að berja þetta aftur og aftur í auglýsingarnar.
Málið er að ég er meira að forvitnast um hvort einhverjir lumi á teikningum af stuðara fyrir pajero 90 módel úr rörum eða geta gefið góð ráð við smíði svoleiðis stuðara. Einnig af öflugri toppgrind, brúsafestingum og jafnvel einhverju fleira sniðugu sem kæmi sér vel.
Málið er með stuðarann að ég ætlaði mér að útbúa brúsafestingar til að hafa þar og hægt er að kippa af með splittum þegar hún er ekki í notkun.
Endilega ef þið lumið á einhverju í tölvutæku formi, þá sendið mér það í e-mail á keli@kelinga.com.
Takk fyrir.
Keli. E-1819
02.06.2004 at 21:33 #493019Ég er með pajero árg 90 V6-3000 beinskiptann með beinni innspýtingu. Skrapp á langjökul og var heildarkeyrslan hjá mér um 230 km. Töluvert hjakkast í vondu færi og var ekki drepið á bílnum allan tímann. Eftir stendur eftir þetta skark að hann kláraði ekki hálfan tank í túrnum. Það er 100 lítra tankur í honum. Reikna með að meðaleyðsla í þessari ferð sé á bilinu 18 til 20 lítrar. Annars er hann að eyða þetta 12 til 14 að jafnaði.
-
AuthorReplies