FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Jack Hrafnkell Daníelsson

Jack Hrafnkell Daníelsson

Profile picture of Jack Hrafnkell Daníelsson
Virkur síðast fyrir 10 years, 5 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 341 through 360 (of 398 total)
← 1 … 17 18 19 20 →
  • Author
    Replies
  • 23.12.2004 at 05:33 #511504
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Hér í Borgarnesi er allt autt. Ekki snjókorn til að leika sér í, en mér skilst að það þurfi ekki að fara langt til að finna skafla.

    Óska svo öllum gleðilegra jóla.

    Keli og Inga. E-1819





    13.12.2004 at 02:50 #510918
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Hvað með að fá 12 tommu snertiskjá?





    28.11.2004 at 01:40 #509702
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Okkar innilegustu samúðarkveðjur til fjölskyldu hins látna.
    Einnig einlægar samúðaróskir til samferðamanna sem misstu þarna félaga sinn.

    Kveðja. Keli og Inga Borgarnesi.





    16.11.2004 at 15:49 #508654
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Passar ekki gírkassinn og millikassinn úr 86 2,6 bensíndollunni í 91 V-6 3000 án vandræða?





    16.11.2004 at 15:47 #507862
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Veit ekki hvort það væri séns að skreiðast á Hveravelli, en sjálfsagt ræður pæjan við það, en það er vafaatriði með hvort fjárhagsstaðan ráði við það eins og er.





    16.11.2004 at 14:56 #507858
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Ég er enn að væflast á 33 túttum, þannig að ég fer hvorki eitt né neitt.





    15.11.2004 at 15:46 #508682
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Ég geri ráð fyrir að gagnagrunnurinn sé keyrður á SQL gagnagrunni fyrir ASP og á Microsoft. Ástæða þess að hluti gagna finnst ekki er sennilega sá, að hann er undir hidden files og þarf að stilla SQL formið til að sýna allar skrár og töflur. Þá er hægt að sjá allt efni og vista það niður og flytja.

    Ég ráðlegg hins vegar, (af reynslu) að loka vefnum á meðan það er gert, svo ekki komi inn gögn á meðan sem svo tapast. Þessi flutningur gæti átt sér stað á bilinu 12 á miðnætti þar til því er lokið og þá ætti að vera hægt að opna vefinn aftur hjá nýjum hýsingaraðila eftir að vera búinn að skilgreina SQL þjón upp á nýtt í config skrám í rót.

    Ég vonast bara til að sjá nýtt og betur uppsett spjallborð með tíð og tíma, þar sem þetta er að mörgu leiti mjög óþægilegt.





    13.11.2004 at 16:39 #508064
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Sé mig tilneyddann til að svara þessu, enda virðist þessu vera beint til mín.

    [b:1vute3e7][i:1vute3e7]Veriði ekki með þetta skítkast. Það er rosalega auðvelt að sitja heima og rakka hina sem þora niður þegar þeyr festa sig. Það væri gaman að sjá hvað þið getið komist lengi frá þvi að lenda í vandæðum ef þið mynduð ferðast eins mikið og lúther gerir.[/i:1vute3e7][/b:1vute3e7]

    Það er tvennt ólíkt að vera með skítkast eða gera létt grín að því sem gerist í ferðum sem þessari. Ef þú lest þetta yfir, þá er ekkert skítkast í gangi. hefði ég hins vegar skrifað þetta eftirfarandi: [b:1vute3e7]"Það er nú meiri auminginn sem hann Lúter er, að festa sig marg oft í hverri ferð og skemma bílinn þar á ofan sýnir hverlsags djöfuls böðull og aumingi hann er."[/b:1vute3e7] þá hefði verið um skítkast að ræða.

    Furðulegt hvað margir ruglast á því að gera létt grín að hlutunum og halda að það sé að kasta drullu.

    Og Lúter, ef þú lest þetta feitletraða hér að ofan, þá er ég alls ekki að meina þetta til þín, heldur að taka dæmi um hreinræktað skítkast og bera það saman við það sem ég skrifa í síðasta pistlinum mínum í morgunn þar sem gert er nett [b:1vute3e7]grín[/b:1vute3e7] að festunum þínum og óhöppum.
    Alls ekki illa meint, þó svo að sumir þurfi að snúa út úr öllum hlutum.

    Kveðja. Keli, aka Borgarfjarðarmóri.





    13.11.2004 at 07:02 #508052
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Síðasta skýrsla:

    Lella og þorgeir ásamt Lúter eru við Skálholt. Hámarkshraði 60 KM/KLST þar sem allt er meira og minna í döðlum hjá Lúter og Cherokie er ekki í sem bestu standi heldur. Fyrstu bílar eru að skríða í bæinn, en áætlaður komutími á síðustu bílum er um kl 8:30. Allir sjálfkeyrandi, enginn í spotta, þannig að í heildina litið er þetta vel heppnaður leiðangur þrátt fyrir að Lúter hafi haldið að Loðmundarsléttur væru Panamaeiðið og ætlaði að plægja skipaskurð í það með þeim afleiðingum að hann satt pikkfastur (í annað sinn í þessum leiðangri) með eina skemmda felgu og affelgað á annari í (skipa)skurðinum. Það tók á annan tíma að bjarga pjattrollunni upp úr pyttinum, (skipaskurðinum) en miðað við þessa ferð, þá má alveg gera ráð fyrir því að Lúter nái að minsta að kosti25 til 30 festum á þessum vetri sem þarf að bjarga honum úr. En eftir því sem sögur herma, þá er hann nú orðinn vanur því að láta toga sig úr hinum og þessum festunum, og fer fjölgandi með ári hverju. Það er því óvitlaust að halda tölu yfir festurnar hans og vita hvort hann slær ekki met frá ári til árs í þeim efnum.

    Kv. Keli. #E-1819





    13.11.2004 at 02:46 #508048
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Skýrsla frá Lellu:

    Erum við Kerlingarfjöll á leið til byggða. Tvo tíma tók að ná Lúter upp úr skipaskurðinum á 2 hjólum, kominn á fjögur. Áætlaður komutími til R-víkur milli kl 6 og 7 í fyrramálið.

    Keli.





    13.11.2004 at 00:27 #508040
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Náði slæmu sambandi við Lellu undir Loðmundi. Verið að fara að bjarga Lúter, en hann er búinn að plægja þar skipaskurð og affelga á tveim. Slæmt færi og skyggni og NMT samband slæmt.

    Nánar síðar þegar betra samband verður á farsímakerfinu.

    Keli.





    12.11.2004 at 19:55 #508032
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Þetta átti að sjálfsögðu að vera við Sandánna.

    K.K.





    12.11.2004 at 19:51 #508030
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Skýrsla: Lella.

    Verið að hleypa úr við sandana. Baldvin við Geysi og Gísli skammt á eftir.

    Símtalið orðrétt:
    Lella: Þetta eru nú ljótu lygamerðirnir sem sögðu að allt væri á kafi í snjó. (Grimmilegt urr). Henti kóarunum út að hleypa úr, og það er eins gott að það komi fram að það er Þorgeir sem er kóari hjá MÉR!

    Keli: Nú? Átti ekki allt að vera á kafi í snjó?
    Lella: Jú, svo var sagt. Ég talaði við Lúter í gær og hann sagði að það væri þreifandi bylur og skafrenningur og það væri bara keyrt eftir punktum. (urrað meira)
    Keli: Hvað er að frétta af þeim ofan úr Setri?
    Lella: Þeir ku víst vera lagðir af stað niðrúr, en sækist seint enda með tvær skemmdar felgur.
    Keli: Þú lætur vita þegar eitthvað fer að gerast hjá ykkur, það verður lítið gaman að fara einhverja anskotans fýluferð þegar búið er að tilkynna um kafsnjó alla leið og koma svo að öllu marauðu, hvergi korn að sjá.
    Lella: Ég skal finna snjó þó að ég þurfi að fara upp á jökul til þess. Það verður sko ekki liðið að láta ljúga að sér að allt sé á kafi og svo er hvergi hvítt korn. (urrað enn meira).

    Þar með lauk þessu símtali, en ég skal vel skilja að Þorgeir hafi gefið sér tíma til að hleypa úr meðan frúin tók mesta ergelsið út í símanum.

    Næsta skýrsla vonandi fljótlega.

    Keli.

    P.S. Þetta er í þriðja skipti sem ég reyni að setja helvítis svarið inn. Eintómar villumeldingar.





    12.11.2004 at 18:12 #508024
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Þorgeir tjáði mér fyrir nokkrum mínútum að það væru 3 bílar í D-hópnum að skríða niður Kambana með dekk, eldsneyti og rafsuðuvír í farteskinu. Búist við þriggja punda færi frá Geysi.

    Nánar síðar

    Keli.





    12.11.2004 at 14:18 #508014
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Þess má geta að ég mun verða í sambandi við Lellu og Þorgeir meira og minna fram eftir kvöldi og nóttu til að fá fréttir af gangi ferðar upp í Setur.

    Keli.





    12.11.2004 at 14:01 #508012
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    D-Hópurinn er að gera klárt eftir að neyðarkall barst úr setrinu, en þar er allt eldsneytislaust og dekkjalaust. Brottfarartími ekki endanlega ákveðin, en vonast til að geta lagt af stað um kl. 16:00.

    Nánar síðar.





    02.11.2004 at 01:15 #507568
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Eldgos er hafið í Grímsvötnum í Vatnajökli. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að smám saman hafi orðið ljósara að um gos sé að ræða og að það komi upp úr ísnum. ?Það er erfitt að dæma um það með fullri vissu hvenær gosið hefur komist upp úr ísnum. Mjög líklegt er að það hafi komist upp úr ísnum um kl. 21 50. Þá hætta að vera skjálftar í óróanum, sem bendir til að gosrásin upp úr sé orðin greið. Það hefur enn ekki sést til gossins en það stafar væntanlega af því að þarna er slæmt veður og afleitt skyggni,? segir í tilkynningunni frá Veðurstofunni.

    ?Þegar borinn er saman gosóróinn og jarðskjálftar núna og fyrir gosið 18. desember 1998, bendir það til þess að um svipaðan atburð sé að ræða. Þó voru skjálftar miklu meiri á undan gosinu 1998, sérstaklega síðustu 5 klukkustundirnar á undan gosinu. Þessi mismunur gæti stafað af því að gosið núna ætti greiðari leið en þá upp á yfirborðið vegna þess hve stutt er frá gosinu 98.

    Varðandi nákvæma staðsetningu gossins virðist það vera í eða nálægt Grímsvötnum. Ekki er þó hægt að útiloka að það sé aðeins sunnar, jafnvel aðeins sunnan við Grímsfjall.

    Búið er að loka veginum um Skeiðarársand, þar sem búast má við auknu vatnsrennsli í hlaupinu sem nú stendur yfir. Áfram verður fylgst með framvindunni á Veðurstofunni í nótt.?

    Mbl.is greinir frá.





    13.09.2004 at 03:48 #505606
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Það er til aragrúi af kerfum, en ég féll fyrir kerfi sem heitir E-107 vegna þeirra möguleika á alskonar viðbótum sem það bíður upp á. Einnig er mjög auðvelt að sérsníða kerfið að sínum þörfum hverju sinni og fá viðbætur og aukahluti í tugatali. Fyrir aðila sem er góður í PHP, MYSQL og hugmyndaríkur í vefhönnun, þá er ekkert sem takmarkar þetta kerfi í að bæta inní eigin lausnum sé áhugi fyrir þvi. Ég er að nota þetta kerfi með slatta af viðbótum á http://www.alvaran.com og hef íslenskað það sem ekki var íslenskað fyrir, allt nema admin hlutann, enda kann ég persónulega betur við hann á ensku.
    Hér eru svo slóðir þar sem hægt er að fá kerfið og viðbætur.
    http://e107.org/news.php
    http://e107coders.org/
    http://e107themes.org/news.php
    http://e107styles.org/news.php

    Læt þetta duga að sinni. Lifið heil.





    05.08.2004 at 01:21 #505222
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Tek heilshugar undir með málshefjanda. Það væri gustuk að fara að rukka þá sem verða uppvísir að svona löguðu um útlagðan kostnað fyrir svona gabb. Reyndar skilur maður engan vegin hvað liggur á bak við svona ótrúlega heimsku eins og að kalla út flota af björgunnarfólki með ærnum tilkostnaði. Hef alltaf verið á þeirri skoðun að það eigi að rukka þá aðila sem verða uppvísir að gabbi.





    25.07.2004 at 13:17 #505070
    Profile photo of Jack Hrafnkell Daníelsson
    Jack Hrafnkell Daníelsson
    Participant
    • Umræður: 34
    • Svör: 728

    Takk fyrir það.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 341 through 360 (of 398 total)
← 1 … 17 18 19 20 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.