Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.06.2005 at 20:54 #195999
Smávægilegar breytingar eru í gangi á röðun tengla á síðunni þannig að það getur kanski valdið smá truflunum og ruglingi meðan fólk er að venjast því einnig sem það er verið að vinna að þeim breytingum sem vefnefndin komst að niðurstöðu um. Við biðjum því fólk að sýna „blessuðum“ vefnum okkar svo og okkur smá þolinmæði meðan þessar fæðingarhríðir ganga yfir. Meinningin er svo að setja upp „veftré“ til að auðvelda fólki leit að einstökum síðum í undirflokkum þegar það verður búið að hræra nóg í þessu til að rugla ykkur endanlega.
Lifið heil.
Borgarfjarðarmóri.
01.06.2005 at 00:18 #52367031.05.2005 at 20:09 #523666Eytt auglýsingum.
30.05.2005 at 18:10 #195995VDO er víst með einhver billeg 36 tommu dekk, er einhver sem kannast við hvaða dekk það eru og hvað þau kosta og hvernig þau hafa verið að reynast.
30.05.2005 at 12:25 #523596Það eru komnar nokkrar myndir frá vetrarslúttinu í myndaalbúmið [url=http://www.kelinga.com:3qtjm569]hérna[/url:3qtjm569]
29.05.2005 at 17:16 #523574Þakka kærlega fyrir frábæra ferð með félögunum í dag og góða skemmtun í gær í Landmannalaugum. Það er orðið must hjá mér að fjölga ferðunum í svona góðum félagsskap eins og var í dag.
Kveðja, Borgarfjarðarmóri.
28.05.2005 at 01:04 #523116staddur í Landeyjum eins og er, ef þú lest þetta áður en þú ferð af stað máttu hafa samband við mig í 8654219 og kanna hvar ég verð staddur. Ef þú nærð ekki sambandi, argaðu þá á rás 45 á VHF og kannaðu hvort Borgarfjarðarmóri svarar þér.
26.05.2005 at 13:53 #523512Bara henda realy milli sviss og ljósarofa. Hafa ljósarofann á "On" og þegar svissast af, þá slokknar á ljósunum. Einfaldast að gera það þannig.
26.05.2005 at 02:25 #523522………hægt að sleppa þessu boltakjaftæði hérna. Það er nóg af öðrum vettvöngum til að rífast um þennan heimskulega ofbeldisleik, eins og td. fotbolti.net. Vinsamlega sleppið þessu hérna.
26.05.2005 at 00:17 #523110að borga og alles. Vona bara að maður hitti einhverja í Hrauneyjum um hádegið á laugardag.
25.05.2005 at 23:05 #523488…..rétta fólki miðana.
25.05.2005 at 16:51 #523480Ég er sáttur við þetta spjald um utanvegaraksturinn. Mætti bjóða félögum upp á að vera með smá bunka af þessu í bílunum til að rétta útlendingum sem maður rekst á.
25.05.2005 at 00:58 #523102Ætla virkilega einhverjir uppeftir á föstudagskvöldinu? Ef svo er, þá er spurning að endurskoða málið. En ég reikna frekar með að koma á laugardaginn.
24.05.2005 at 13:24 #523096Ætli maður reyni þá ekki að stíla inn á að hitta hópinn við Hrauneyjar. Ég verð með kveikt á talstöðvunum þannig að ég verð var við ef það verður gargað eitthvað í þær.
24.05.2005 at 12:56 #523092Hvenær er meiningin að leggja af stað úr höfuðborginni?
Ég verð að öllum líkindum austur í Landeyjum þannig að það væri ágætt að fá að vita hvenær áætlaður komutími að Vegamótum við Landmannavegamót er áætlaður, enda reikna ég með að það verði farin sú leiðin upp úr.
24.05.2005 at 12:54 #523226Þetta er bara þessi venjulegi tvískinnungsháttur í stjórnvöldum. Almenningur má varla ferðast lengur um landið sitt, en það má reisa virkjannir með tilheyrandi náttúrspjöllum og misþyrmingu á landinu eins og ekkert sé. Það er spurning að fara að berja saman almennilega krítiseringu á þetta lið sem gjörsamlega sparkar í andlitið á þeim.
Hvað varðar þessa 50 sentímetra snjóþykkt, þá ætti sá sem samdi þetta að skreppa upp á hálendi að vetri til og kynna sér aðstæður þar sem er bæði harðfenni og púðursnjór og meta svo skemmdirnar á eftir.
Það er gjörsamlega óþolandi að möppudýr og bókbéusar sem aldrei hafa stigið fæti út í hið raunverulega líf fara að setja almenningi reglur um hluti sem þeir hafa ekki hundsvit á.
Þetta lið ætti að skríða ofan í holuna sem það kom upp úr og hafa vit á að halda sér saman eða afla sér í það minnsta raunverulegrar þekkingar í stað þess að gaspra eins og fábjánar og gera sig að athlægi og fíflum fyrir framan alþjóð.
[b:2c2nhl58]Háskólapróf er lítils virði án raunverulegrar reynslu.[/b:2c2nhl58]
23.05.2005 at 14:26 #523314Mótmæli 4gr harðlega um 50 cm snjódýptina.
Hrafnkell Daníelsson
Kt: 300165-3899
22.05.2005 at 22:54 #522944Bara hafa hann kaldann og hrista hann úr dósinni í glasið. Kemur ótrúlega á óvart hvað hann er góður þannig. Læt stundum eftir mér að kaupa kassa af Guinness í dós bara til að njóta, enda er maður ekki með þessa menningu hér á landsbyggðinni.
[b:2q5uag39]Borgarfjarðarmóri[/b:2q5uag39] sem líkar að þurfa aðeins að hafa fyrir hlutunum og njóta þeirra enn meira fyrir vikið.
22.05.2005 at 13:35 #523082opnað í vikunni inneftir samkvæmt upplýsingum frá vegagerðinni.
22.05.2005 at 13:34 #522936…að fólki er einfaldlega ekki kennt að servera þetta á öldurhúsum borgarinnar. Auk þess hefur maður fengið þetta gallsúrt þar sem ekki má servera þetta af kútum sem hafa verið opnir í meira en 5 til 6 daga.
Hef marg oft lent í því að kenna fólki að servera þetta þar sem ég hef verslað þennan eðalmjöð.
-
AuthorReplies