Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
10.12.2004 at 20:27 #510572
Þetta svíngengur hjá okkur!!!!
Erum við ekki komnir í 85 dekk.
áfram drengir því fleiri því betra og verðin geta bara batnað eftir því sem fleiri eru með.Kveðja,
Glanni.
09.12.2004 at 23:06 #510788Já jón,
þetta er flott síða og svo er linkur á einhvern amerískan jeppaklúbb og þar er sýnt hvernig þetta er látið á. Virðist mjög einfalt.glanni
09.12.2004 at 22:04 #510784Mér sýnist þetta bara vera á svipuðu verði og þá er það náttúrulega ekki spurning, maður styður Íslenskt.
reyndar er þetta á svipuðu verði ef maður þarf að láta sjóða þetta á fyrir sig en ef maður þekkti einhvern sem er góður suðumaður og myndi taka lítið fyrir að steikja þetta á þá er eitthvað hagstæðara að flytja þetta inn.KV.
Glanni
09.12.2004 at 20:14 #195027Sælir,
Veit einhver um einhverja síðu eða fyrirtæki í USA sem hefur verið að selja bedlock kit?Kveðja,
Glanni.
09.12.2004 at 17:17 #510550Ja.. það er spurning hvort það sé ekki hægt að fá bara tilboð í bedlock hjá Magga felgubreikkara fyrir X margar felgur fyrir okkur sem vilja.
Við gætum örugglega fengið það eitthvað niður (magnafslátt).
Hvernig leggst það í ykkur?Kveðja Glanni
08.12.2004 at 23:27 #510456sæll ég sá svona kút til sölu í A/T fyrir 1 eða 2-ur árum mig minnir að hann hafi kostað einhverstaðar á milli 20-30 þús.
Ég á svona kút sem var keyptur í USA fyrir 12-15 árum á örugglega svipuðu gengi dollars og nú er.Kveðja,
Glanni
08.12.2004 at 22:55 #510524Hjá hvað dekkjafyrirtæki vinnur þú góði..
08.12.2004 at 20:37 #510514Leigja togara? við kaupum bara togara á þessu gengi!
08.12.2004 at 20:13 #510508Ok þetta miðar vel!
það vantar bara 4-5 í viðbót.
Áfram taka á þessu..
08.12.2004 at 17:45 #510502Já einmitt við erum að tala um 44" Dick cepek er það ekki Theodor?
Tók það fyrir sjálfsagðan hlut.Glanni
08.12.2004 at 16:17 #510494Hvað tekur einn gámur mörg dekk þ.e.a.s hvað þarf marga til að af þessu yrði?
Kv.
Glanni
08.12.2004 at 14:22 #510488Eg er til í það.
Kveðja,
Glanni.S: 696-7503
08.12.2004 at 10:24 #508908Ég ætla ekki að þrátta við ykkur GVS, ég fékk nóg af því í sumar.
Ertu ekki að segja að þetta liggi á borðinu þ.e.a.s 10%afsl af vinnu og enginn afsláttur af dekkjum allir fá dekkinn á sama verði burt séð frá því hve mikið þeir versla og hvaða reynslu þeir hafa af því að versla við ykkur.Hvaða tilboð ætlarðu þá að fara bjóða strákum/stelpum??
Kv.
Glanni
08.12.2004 at 00:31 #508904Ég er búinn að skanna þennan dekkjamarkað eins og ég best veit og Artic trucks kom langbest út í verði, allavega hvað 44"DC varðar. Öðrum dekkjum hef ég ekki áhuga á undir bílinn hjá mér sem vetrardekk.
Ég talaði við þá í GVS í dag bara svona til að ath.hvað þeir myndu bjóða mér í ljósi undangenginna viðskipta við þá og verðmunurinn var einmitt tugir þúsunda eins og Ofsi benti einnig á.Nú bíð ég eftir að búið er að sandablása og sprauta felgurnar þá stekk ég á gang af dekkjum undir vagninn.
Dollarinn kostar núna 63 krónur og ef það er ekki hagstætt að flytja inn tæki og tól núna þá veit ég ekki hvenær það verður.
Kveðja,
GLANNI.
05.12.2004 at 22:12 #5103724,5 lítra vél og eyðslan er 18-25ltr á hundraðið á 44" þetta sagði mér einn sem bauð mér svona bíl til sölu.
KV
Glanni
05.12.2004 at 18:36 #510358Sæll ég er búinn að eiga nokkra Forda og eitt af því fáa sem bilar alveg pottþétt fyrr eða síðar er ljósarofinn sjálfur sem er inni í bíl (líka dimmer fyrir mælaborðsljósin).
ég myndi prófa hann fyrst.
Það er sami rofinn í flesta forda frá árunum ca. 1960-1990 þannig að það ætti vera auðvelt fyrir þig fá rofa einhversstaðar eru sjálfsagt heldur ekkert mjög dýrir nýjir.Kveðja,
Glanni
05.12.2004 at 17:42 #510154Það er hins vegar allt í lagi að þeir sem hafa atvinnu af þessu að borga þetta verð sem aga setur upp 16-17 þúsund en allt of dýrt fyrir einstaklinga sem vilja bara hafa þetta "stand by" inni í skúr ef ske kynni að það þyrfti að sjóða eitthvað til að redda sér. Eruð þið ekki sammála því?
Kveðja,
Glanni
04.12.2004 at 20:27 #510152Dude,
hvað eru þetta stórir kútar sem þú hefur verið að flytja inn og hvað hefur þetta verið að kosta komið inn í skúr hjá þér?
Ég veit um nokkra sem eru komnir með upp í háls af verðlagninguni hjá þessu einokunarfyrirtæki sem ÍSAGA er, þó að þjónustan sé fín þá er verðið allt allt of hátt.kveðja,
Glanni.
24.11.2004 at 00:36 #509398Sæll,
ég hef alltaf farið í Stillingu, maður fer bara með gamla rörið og þeir beygja og græja kóna á meðan maður bíður og svo er ekki verra að verðinu er stillt í hóf allavega þegar ég var síðast að standa í svona fyrir ca.1-2 árum.Kveðja,
Glanni.
19.11.2004 at 13:43 #508886Benni TCL virkar vafalaust í einhverjum tilfellum en ekki í mínu enda bara með "léttann" Landcrúser
það er líka soldið fyndið að þeir hjá GVS settu nú þessi dekk sem ég keypti á fyrir mig og límdu þau að sjálfsögðu á með sikaflexi.
Það er líka í lagi að það komi fram að þeir gerðu það frítt fyrir mig.
Ert þú ekki með Super swamper Benni undir toyotunni?kv.
Glanni
-
AuthorReplies