Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
21.01.2004 at 11:38 #485324
Vandinn er þá að finna út snertiflöt dekkjanna.
Þá verður væntanlega að taka með í reikninginn ummál og breidd dekkjanna og finna út eitthvað hlutfall af því.
Svo er annað mál að þegar hleypt er úr, eykst snertiflötur stærri dekkja hlutfallslega meira en á minni dekkjum, þar sem snertiflöturinn er í tvívídd og þar rekur mig í vörðurnar.
Hvar eru stærðfræðiséníin?
20.01.2004 at 16:01 #485132Það margborgar sig að gera þetta sjálfur. Fá svo aðstoð hjá góðum mönnum eins og Árna Brynjólfs þegar þig rekur í vörðurnar, gegn sanngjarnri greiðslu.
20.01.2004 at 13:28 #485156Þetta er víst ástralskt fyrirtæki.
Maður þyrfti að komast yfir katalóg hjá því, en það gengur erfiðlega á netinu.Fann þarna loftlæsingar fyrir Jimny, sem ég hélt að væru hvergi til.
Hverrar gerðar eru loftlæsingar sem menn eru að nota nú til dags, t.d. í Hilux og fleiri?
Kv.
Gísli S.
20.01.2004 at 13:13 #193513Er einhver á Íslandi með umboð fyrir ARB loftlæsingar?
Kv. Gísli
19.01.2004 at 23:21 #484968hvernig væri þá að hætta að svara þessu barni?
19.01.2004 at 15:47 #484842Þetta er nú ekki flókin aðgerð.
Hvernig bíl ertu með?
kv.
Gísli
19.01.2004 at 12:27 #484816og á svo ekki að smella gormum undir að framan, svona fyrst þú ert að þessu?
19.01.2004 at 12:27 #484814Ætli þú myndir ekki sleppa ódýrt með toyota?
Auðvelt að finna, ódýrir varahlutir og ekki mikil hætta á að þú skemmir drifrásina með 1600 vél.
Ég myndi byrja á að leita að svoleiðis.
16.01.2004 at 12:51 #483654Nú er hann bara oltinn, 33" Jimnyinn. Sá einhverja stelpuskjátu á honum áðan í Skeifunni og bíllinn greinilega búinn að rúlla sér aðeins á toppinn.
Sorglegt, en satt
16.01.2004 at 12:33 #484500ég er að spá í að skella mér í dagstúr á laugardaginn, t.d. í kringum Hlöðufell, eða í þá áttina.
15.01.2004 at 21:45 #48447613.01.2004 at 19:36 #484100Ef þetta er eins og í gömlu vitörunni, þá kosta klossarnir sem notaðir eru um 8þúsundkall og eru 4cm háir. Þá er ekkert mál að setja undir:
Þú tjakkar bara undir síls eða eitthvað þannig að spyrnan (eða klafinn, og hásing að aftan) slakist niður og ef gormurinn er ekki laus, þá er bara að redda sér gormaklemmu til að koma kubbnum ofan á gorminn. Það þarf varla að minnast á að betra er að taka dekkin af fyrstDemararnir eru aðeins meira mál, en ekki mikið.
Ég ráðlegg þér ekki að færa festingarnar, það er of mikið mál. Dempararnir eru líka fínir, gott að notast við þá.Að framan þarftu að útbúa langa ró með bolta (4cm, fyrir utan boltann) uppúr sem skrúfast ofan á demparaboltann. Best er að finna rennsmið til að gera þetta, þar sem snittið er eitthvað spes og ólíklegt að maður finni rétt efni í þetta sjálfur. Getur ekki kostað mikið hjá sanngjörnum rennismiði.
Í mínu tilviki að aftan var þvermál neðra demparaaugans mjög nálægt 4cm, svo að ég fann svipaða dempara (ónýta, að sjálfsögðu) og sagaði augun af þeim og sauð undir augun á þeim sem í bílnum voru.
Þar með eru afturdempararnir orðnir 4cm lengri og bara að hjakka fóðringunum úr efri götunum og í þau neðri.Þetta allt saman ætti ekki að kosta þig meira en svona 10.000kall.
Gangi þér vel
kv.
Gísli S.
12.01.2004 at 14:25 #483650Menn hafa líka rétt á að eiga slæma daga
Ég held að það hafi nú engum sárnað hérna.
11.01.2004 at 18:15 #483640Það er minnsta málið að taka aftursætin úr, en ef það er til að létt bílinn, tekur því varla, þau eru fislétt. Það er líka alveg nóg pláss í honum, séu bara tveir að ferðast.
Mér finnst nú allt í lagi að menn spyrji svona, séu þeir að láta sig dreyma. Annað hvort nennir einhver að svara þeim eða ekki, en það er óþarfi að vera að fæla nýja eða tilvonandi meðlimi af síðunni með hroka (ég veit að það var ekki svoleiðis meint, en gæti virkað þannig).
En mér er ennþá spurn:
a. Er hægt að fá lægri hlutföll í Jimnyinn? Þau einu sem mér er kunnugt um, eru drifin úr sjálfskipta bílnum, en þau eru örlítið lægri.
b. Ef ekki sérstaklega fyrir Jimny, er hægt að nota drif úr Fox?
c. Er einhver möguleiki á læsingum í bílinn.
Minn bíll virkar nokkuð vel á 31" en mig langar að stíga skrefið til fulls, en þori ekki í það nema geta fengið lægri hlutföll.
Það er kannski lítil von að finna einhvern sem veit þetta, enda ekki komin mikil reynsla á að breyta svona bílum.
10.01.2004 at 13:54 #483634Hvað varstu með breiðar felgur, annars vegar fyrir 31" og hins vegar fyrir 33" ?
10.01.2004 at 13:50 #483632Hvernig var það, fékkstu á endanum lægri hlutföll í bílinn? Ef svo er, hvaðan eru þau og hvað kosta svoleiðis? Er hægt að setja læsingar í Jimnyinn?
09.01.2004 at 18:21 #483624ástæðan fyrir öllum þessum rúllubílum er sú sama og á t.d. stutta krúser, þeir eru fullstuttir fyrir eigin breidd. Það gildir það sama og áður, bílstjórinn veltir bílnum, ekki fjöðrunin eða annað.
Minn bíll er bara nokkuð mjúkur og góður, enda gasdemparar í honum sem ég held að séu orginal og mátulega mjúkir gormar.
Síðast þegar ég vissi var bara ein tegund af köntum til á þá og var sú gerð bæði notuð fyrir 33" og 31". Ástæðan fyrir því að ég fjárfesti ekki í svoleiðis er sú að þeir kosta um 70.000kr sem mér finnst nú helvíti blóðugt fyrir ósprautaða kanta.
Veit einhver hvort hægt er að setja lægri drifhlutföll úr fox í jimnyinn?
09.01.2004 at 16:07 #483618það borgar sig held ég ekki að hækka bílinn meira á gormunum, þá ertu að hækka þyngdarpunkt bílsins mun meira, heldur en ef þú lyftir bara boddíinu. Þar að auki er fjöðrunin það góð orginal, að það væri synd að ,,skemmileggja" hana. Það er langbest í rauninni að hækka sem minnst og skera þeim mun meira úr.
Þér er velkomið að kíkja við ef þú vilt skoða hvernig ég fór að þessu, þetta eru frekar einfaldar aðgerðir.
Myndirnar í albúminu mínu eru allar af bílnum óbreyttum, en ég býst við því að bæta úr því eftir helgi maður fær gott veður um helgina.Kv,
Gísli S.
6906747@internet.is
09.01.2004 at 13:29 #483610Kostar ekki mikið ef maður gerir sjálfur. Gormakubbarnir kostuðu ca. 8000kall og boddíhækkunin 12.000, smíðað eftir pöntun hjá Árna Brynjólfs í Hafnarfirði.
Gormahækkunin ein og sér reyndist ekki nægileg hjá mér fyrir 30" dekk. Hélt fyrst að ég gæti sloppið þannig.
09.01.2004 at 13:27 #483608Ég setti undir gorma á mínum (4cm) og boddíhækkun líka (6cm) og það er mátulegt. Það þarf ekki mikið að mixa fyrir boddíhækkun, færa tvö bremsurörabracket og lengja millikassastöngina. Man ekki eftir að hafa gert neitt meira.
-
AuthorReplies