Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
15.12.2004 at 13:56 #511108
Ég sé að þinn er breyttur fyrir 36". Hefurðu mælt eitthvað eyðsluna á honum?
kv.
Gísli
15.12.2004 at 13:24 #511104Hve miklu skyldu þeir eyða af olíu að jöfnuði?
15.12.2004 at 12:54 #195054Sælinú.
Mér leikur forvitni á að vita hvernig dísel Cherokee jepparnir hafa verið að reynast, þ.e. vélin.
Burtséð frá áliti manna á bílnum sjálfum, hvernig er endingartími á vélinni, er hún túrbínulaus orginal, veit einhver um breyttan dísel jeppa?
Ég er að miða við gamla boddíið, 2.5 vélina. Bíllinn sem ég hef augastað á er 96″ módel.
Endilega ausið úr viskubrunnum ykkar.kveðja,
Gísli Sverrisson.
10.12.2004 at 22:46 #510760alltílagiþá
10.12.2004 at 16:46 #510752Já, ég er sammála, veðrið lítur best út á laugardaginn.
Ég er líka sammála með Kaldadalinn, hef lítinn áhuga á að hjakka í drullu fram eftir degi, held að heiðin sé skemmtilegri.
10.12.2004 at 13:19 #510744Í versta falli snúum við þá bara við. Endilega sem flestar súkkur. Ef einhver vill hafa áhrif á leiðaval, þá erum við opnir fyrir öllu.
09.12.2004 at 19:57 #510736Planið er að mæta á Select, Vesturlandsvegi um klukkan átta og leggja af stað, ekki seinna en hálfníu.
Það lítur út fyrir ágætt frost á laugardaginn, þannig að færi ætti að vera gott. Það eru allir velkomnir sem treysta sér og sínum bílum þessa leið.
Farkostirnir eru Hilux 38", Sidekick 33" og Jimny 32".
Látum það ráðast á morgun hvort farið verður um Kaldadal eða Lyngdalsheiði. Endilega meldið ykkur á þessum þræði ef þið hafið áhuga.Gísli
R-3072
16.09.2004 at 20:06 #505882…er það ekki bara jafnmikið og nýr patrol? 😉
25.07.2004 at 19:40 #505038Þetta er snjallræði, skaðar engan bíl að hafa smá amerískt, prófa þetta hið fyrsta.
Segðu mér annað, ég tók eftir því í myndaalbúminu þínu að þú síkkar stífufestingarnar að framan um 10cm en setur 8cm klossa. Afhverju að síkka meira en hækkunin?Annars máttu gjarnan fara að setja inn fleiri myndir af breytingunni, myndir af mínum fara að detta inn bráðum, ég var að fjárfesta í fjórða settinu af 35" köntunum, grunar að þú hafir fengið #2 eða #3. Þetta er vaxandi bissnis.
Jimnykveðja,
Gísli
24.07.2004 at 11:15 #194567Hvaða skoðun hafa menn á stýrisdempurum fyrir smávaxin tröll eins og Jimny, hvað er best fyrir peninginn og hvernig eru menn að mixa þetta á svona bíla sem eru ekki með festingar fyrir?
kv.
Gísli.
02.05.2004 at 21:18 #501043Vandamál og ekki vandamál. Nú er ég ekki mjög fróður um dana hásingar, en það ætti ekki að vera mikið mál að rífa þetta í sundur, það er bara um að gera að koma sér í það og vera ekki að keyra á bílnum svona. Svona hristingur skemmir út frá sér, þ.e. ef það er legan, þá gæti hún skemmt leguhúsið, sem er alls ekki ódýrara en legan sjálf, og á endanum gæti hjólið hreinlega dottið af á ferð, með öxli og öllu saman. Ég er viss um að einhver hér getur lýst þessu fyrir þér, en það er einfaldast að byrja bara og spyrja þegar þig rekur í vörðurnar.
Gísli S.
02.05.2004 at 20:52 #501035Ef að það er upp-niður slag á dekkinu, þá gæti það verið legan, nafið eða leguhúsið. Eina leiðin til að finna það út er að rífa í sundur. Þegar þú ert búinn að fixa þetta allt saman myndi ég athuga spindilhallann, vitlaus spindilhalli kemur af stað titringi eða eykur hann, sé hann til staðar og er búinn að eyðileggja leguhúsið hjá mér.
Gangi þér vel,
Gísli S.
02.05.2004 at 20:47 #500937Þá horfir málið öðruvísi við. Ég mæli að sjálfsögðu með Jimny, það er sívaxandi áhugi fyrir þessum bílum. Kíktu í myndaalbúmið mitt, þar eru myndir af mínum.
Kíktu líka á http://www.breytir.is, þar eru myndir af eina 35" breytta Jimnyinum í heimi!kv.
Gísli.
02.05.2004 at 19:35 #500919Gaman að þú ætlar að kaupa þér jeppa.
Jimny og Vitara eru alveg út úr myndinni fyrir þig, Jimnyinn færðu ekki undir hálfri milljón, hvorki breyttan né óbreyttann og vitara fyrir 140.000kall er væntanlega handónýt. Það væri því vænlegast hjá þér að lækka aðeins standardinn og kaup þér Fox, hvort sem er langann eða stuttann. Þeir eru skemmtilegir jeppar, komast slatta á 31", allt á 33" og eru ódýrir í rekstri og viðhaldi. Þetta eru einfaldir bílar og auðvelt að gera við. Fyrir þennan pening geturðu fengið vel breyttan Suzuki Fox í góðu ástandi.
Gangi þér vel
15.04.2004 at 08:27 #498759prófaðu jeppaplast.is
kv.
Gísli S.
14.04.2004 at 20:16 #498702Hvernig bíl ertu með?
13.04.2004 at 23:32 #498620Ætli það sé ekki frekar spurning um hugarfar að gera þetta á bensínstöðvunum. Einhversstaðar verður maður að byrja.
Ég verð að viðurkenna að ég vissi þetta ekki með olíugildrurnar á bensínstöðvunum. Gott mál.Gísli S.
13.04.2004 at 14:46 #498450Það er ekkert mál að hjakka í snjó á sjálfskiptum, þær gefa flestar eftir afturábak, maður þarf bara að læra á það eins og maður lærir að hjakka á kúplingunni.
13.04.2004 at 14:45 #498446Ég held að sjálfskiptingar eigi helst heima í átta gata jeppum, annars koma þær of mikið niður á afli og eyðslu.
En þetta er auðvitað smekksatriði.
13.04.2004 at 14:42 #498212Ég er alveg sammála þessu og finnst ef eitthvað er að Ferðaklúbburinn 4×4 mætti alveg vera yfirlýsingaglaðari. Þetta eru líka hagsmunasamtök og það mætti alveg fara meira fyrir þeim í fjölmiðlum.
kv.
Gísli S.
-
AuthorReplies