Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
03.07.2006 at 19:10 #555716
[url=http://www.gislisveri.com/wp-content/uploads/2006/06/sjeffi.zip:2vvdxtvp]Grand Cherokee[/url:2vvdxtvp]
19.06.2006 at 12:00 #554826Ég á svona kassa í pörtum sem þú mátt hirða úr ef þú vilt. Hann var í góðu lagi áður en ég skipti.
kv.
Gísli
24.04.2006 at 23:50 #550692… en ef minnið ekki bregst, þá er pollur/tjörn á Snæfellsnesi sem heitir Kúka og svo er sker, norðarlega í Breiðafirði sem heitir Frussæla!
Kveðja,
Gísli Sveri
23.04.2006 at 11:39 #550612Til hamingju með þúsundasta póstinn!
08.03.2006 at 13:35 #197491Hvar finnur maður 800kg loftpúða sem billegasta? Hvar hafa menn svo verslað restina af dótinu, loftkistur slöngur o.s.fr.v?
Gísli
28.02.2006 at 23:56 #545128Það er ekki mikið mál að festa nýja stóla í Hilux, bara bora og bolta. Ég setti "sófa" úr Mercury frammí minn gamla Hilux. Myndi halda að Corollu stólar væru fínir í þetta.
Gangi þér vel,
Gísli Sveri
19.02.2006 at 19:20 #543362Takk fyrir gott svar.
Hverju breytir mismundadrifið í kassanum annars, meiri eyðsla eða? Ég hafði alltaf ímyndað mér að allir sídrifnir kassar væru með mismunadrif. Hvernig virkar þessi vökvakúpling og hvort er betra?
bkv.
Gísli
19.02.2006 at 15:55 #197358Heilir og sælir félagar.
Ég er að velta fyrir mér nafngiftunum á Cherokee millikössunum. Að því er ég best veit eru hægt að fá kassana með eftirfarandi eiginleikum:
1.afturdrif – sídrif – læst háa – læst lága
2. afturdrif – læst háa- læst lága
3. sídrif – læst lágamá vera að það sé til ein variation í viðbót, en augljóslega er fyrsti kosturinn af þeim framangreindu bestur og sá 3. sístur. Ég er með 5.2. Grand með síðasnefnda kassanum. Er möguleiki að setja í kassa #1 án mikilla mixinga? Hvað heitir sá kassi?
kveðja,
Gísli Sveri
03.02.2006 at 08:54 #541332Ef þetta eru þeir sem mann grunar…
Þá segi ég farið hefur fé betraGísli
03.02.2006 at 00:07 #541024Eru menn alveg lens í þessum efnum?
Þess má geta að startari úr gömlu 318 passar ekki á rokkinn.Er einhver sem veit um 5.2 hræ sem hægt væri að hirða úr fyrir hóflegt verð?
02.02.2006 at 11:45 #541022Þetta virðist ófáanlegt dót. Veit einhver um einhvern sem hugsanlega mögulega er að rífa 5.2 Grand?
Uppgerð á startara kostar 20.000kall í Rafstillingu, sem mér finnst full blóðugt, þar sem Bílaraf getur pantað nýjan fyrir 17.000kall, sem mér finnst bara mjög sanngjarnt.
Það má líka fá þetta upptekið á ebay af traustum aðila fyrir um 10þús. heimkomið. Það tekur reyndar full langan tíma.
01.02.2006 at 11:32 #541016það er fallega hugsað. Ég slæ á þig ef mig rekur í vörðurnar.
kveðja,
Gísli
01.02.2006 at 10:07 #197209Hvaða snillingar gætu átt startara í Jeep 5.2?
Eru einhverjar partasölur sem sérhæfa sig í Jeep?kveðja,
Gísli
19.04.2005 at 20:17 #521292Þakka þér mikið fyrir, þetta hefur af og til valdið mér heilabrotum.
Gísli
22.03.2005 at 17:23 #519576,,Rannsóknin sýnir að breyttir jeppar lenda ekki í fleiri slysum en óbreyttir, og að meiðsli í slysum breyttra jeppa eru ekki alvarlegri en slys óbreyttra"
Með því að lögbinda jeppabreytingar við verkstæði, er jeppamennskunni sannanlega útrýmt, að láta breyta jeppa á verkstæði kostar nógu mikið til að ungir ferðaáhugamenn geta ekki upp til hópa eignast jeppa fyrr en þeir eru búnir með nám, o.s.fr.v. Auk þess er nóg af fúskurum á verkstæðunum (þó að flestir séu auðvitað færir fagmenn).
Helsta leiðin væri að herða skoðunarreglur, eða auka aðhald að skoðunarstöðvum. Ég borgaði fyrir ekki svo löngu um 15.000kr. fyrir að láta sérskoða nýbreyttan jeppa og fyrir það fékk ég ekkert annað en nýtt skráningarskírteini, skoðunarmaðurinn leit ekki einu sinni undir bílinn. Ef breyttir jeppar eru slysahætta þá er það hvernig þeim er breytt sem skiptir máli, ekki hvort það var gert af einhverjum með stimplað skírteini.
Kv.
Gísli
22.03.2005 at 17:14 #519574Ég held að lesendur hefðu gott af því að kíkja á [url=http://www.vegag.is/vefur2.nsf/Files/Rannum03_jeppar_orion/$file/Slysat%C3%AD%C3%B0ni%20breyttra%20jeppa.pdf:1jmawk6n]þetta[/url:1jmawk6n] áður en lengra er haldið. Jafnvel styðja á control+F og leita að "marktækur".
kveðja
Gísli R-3072
28.02.2005 at 13:49 #517684Hvað ætli óbreyttur runner sé að eyða, og þá á ég við bensín bíl, beinskiptan í blönduðum akstri?
Gísli
03.02.2005 at 19:22 #515486…en fékk ekkert Setur
24.12.2004 at 11:40 #511454Jæja strákar.
Passiði ykkur á Jólakisa, honum er illa við ljótt orðbragð.
Gleðileg jól
15.12.2004 at 13:57 #511110og eitt annað, hvað vigtar hann svona breyttur hjá þér?
-
AuthorReplies