Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
12.10.2007 at 20:47 #599802
Alls ekki galið, en mæli þó frekar með tektíl eða einhverju slíku, það þornar og lekur svo ekki út ef það myndast gat einhversstaðar, líklega betri ryðvörn. Smurolía smýgur betur en vatn í gegnum glufur.
bkv.
Gísli Sveri
19.06.2007 at 12:54 #592618Nokkrar milljónir króna fyrir sneið af Breska heimsveldinu?
Það finnst mér bara gott og myndi helst borga miklu meira.kv. Gísli Sveri
28.05.2007 at 21:05 #591668Er ekki málið að fá lánaðan gang hjá einhverjum og bera saman? Þá geturðu allavegana útilokað dekkin.
Hvað eru þetta stór dekk og ertu stýrisdempara (er hann kannski orginal í Pajero)?
kveðja,
Gísli
24.05.2007 at 13:50 #591484Ég á handa þér D44 með 6 gata deilingunni, ættu að sóma sér vel undir skáta.
kv.
Gísli
S8406048
18.05.2007 at 07:53 #200330Hvernig ætli færð sé á Snæfellsjökul? Ætti það ekki að vera fínt á þessum árstíma?
Og skyldi einhver eiga trakk uppá jökulinn?kveðja,
G.Sveri
30.04.2007 at 18:18 #200232Sælir félagar.
Veit einhver hvernig færð er inn í Þórsmörk? Eru of miklir vatnavextir til að komast inneftir með góðu móti? Er þetta máske bara glapræði?
kveðja,
Gísli Sveri
30.01.2007 at 23:31 #578030Ég set 5000kall í pottinn (haha orðaleikur!) ef ég fæ að koma með og moka fyrir honum.
-Gísli sem finnst æðislega gaman að moka
13.12.2006 at 17:54 #571286Ég get alveg vottað fyrir að Eiður er enginn jafnaðarmaður frekar en eitthvað annað.
Umræðan snýst fyrst og fremst um umferðaröryggi en ekki pólitík.Ef ég væri kominn með börn, þá myndi ég líklega íhuga að kaupa stóran og öruggan bíl. En ég geri engum greiða með að keyra hann yfir löglegum hámarkshraða.
Það má alveg setja spurningarmerki við hvort 90km hámarkshraði sé yfirhöfuð heppilegur fyrir íslenskar aðstæður. Þjóðvegurinn er á köflum svo skelfilegur að það er stórhættulegt að keyra á 90 þar, jafnvel á góðum nýlegum bíl.
Aftur á móti ræður tvöföld Reykjanesbraut alveg við hraða á bilinu 100-110 hugsa ég. Sama myndi þá gilda um tvöfaldan suðurlandsveg til Selfossar ef vel verður að því staðið.
13.12.2006 at 05:50 #571254Ef þú stundar að taka fram úr 4 bílum í einu á þjóðveginum á þungum bíl, þá vona ég að ég mæti þér aldrei akandi með fjölskylduna í bílnum.
13.12.2006 at 00:20 #571184Þetta er þægilegt að nota, sérstaklega fyrir þá sem eru alltaf með tölvuna í bílnum. Það er hins vegar varhugavert að treysta eingöngu á þetta því að ef að tölvan drepst, þá er lítið gagn í móttakaranum einum saman. Það er mín reynsla að allar tölvur deyja fyrr eða síðar og jeppaskak lengir ekki lífdagana.
Kv.
Gísli Sveri
13.12.2006 at 00:05 #571246Svo er annað mál að það er brýn þörf á stóru átaki/áróðri gegn glæfralegum framúrakstri og beina því jafnt til þeirra sem slíkt stunda og þeirra sem hleypa ekki/illa framúr.
12.12.2006 at 23:58 #571242Það má vel vera að framúrakstur muni aukast, en eigum við þá frekar að banna fólk sem keyrir á löglegum hraða í umferðinni?
Það er auðvitað rétt að þetta hefur ekkert með tollaflokkun að gera, en þetta er samt góður punktur hjá Eiði og á alveg við í þessu tilviki, þ.e. að þú færð það sem þú borgar fyrir.
12.12.2006 at 23:54 #571238Ég held að þú sért að rugla saman þurrvigt og leyfðri heildarþyngd. Ef nýji patti á 44" væri 3200kg í þurrvigt hefði hann max 300kg burðargetu og mætti því ekki skráður með fleiri en 3 sæti.
Fordinn er hins vegar um 3200kg í þurrvigt og má vera mun þyngri í heildina, tölur sem ég kann ekki skil á.
12.12.2006 at 23:43 #571226Ég skal fallast á það að skynsamlegra væri að hámarkshraðinn væri 90km og takmörkunin 100km.
Á Íslandi eru vegir yfirleitt einbreiðir öfugt á við meginlandið og því er nauðsynlegt að stuðla að jöfnum umferðarhraða.Svo er það annað mál, að það er hálfósanngjarnt að fara að skikka núverandi eigendur slíkra bíla út í kostnað við að koma slíkum takmarkar fyrir, en ef á annað borð á að gera þetta verður að byrja einhversstaðar.
Við verðum svo að taka með í reikninginn að þungur bíll sem keyrir á annan veldur meiri skaða en léttari bíll í hlutfalli við þyngd sína. Þess vegna má kannski réttlæta að takmörkunin eigi aðeins við þyngri bíla.
En JHG, viltu benda mér á Patrol sem er svipað þungur og t.d. Ford F-350?
12.12.2006 at 22:59 #199155Í Blaðinu í dag er grein um nýja reglugerð sem tekur gildi um áramótin og skyldar hraðatakmarkara í vörubifreiðar með meiri heildarþyngd en 3.5t.
Þar lætur bílasali frá Selfossi móðinn mása um hvað þetta sé mikið rugl og vitleysa og auki slysahættu í umferðinni o.s.frv.
Meðal annars segir hann:
„Þessar takmarkanir koma sér ekki vel fyrir neinn og menn eru ekki kátir“
Ég verð að segja að þessar takmarkanir komi sér ansi vel fyrir marga, þ.á.m. mig og aðra sem langar ekki að lenda í árekstri við svona tröll. Það hefur aldrei freistað mín að klessa á vörubíl, hvað þá á yfir 90 km hraða.
í greininni segir einnig:
„Óánægðasti hópurinn eru þeir sem kaupa þessa stóru bíla og nota sem fjölskyldubíla“
Er mönnum kappsmál að setja fjölskylduna sína í hættu með því að keyra yfir hámarkshraða? Við skulum minnast þess að hámarkshraði þessara bíla er 80kmh svo takmarkarinn gefur þeim yfir 12% svigrúm umfram það.
Eða er kannski kappsmál að setja aðrar fjölskyldur í hættu? Eða komast fram úr sem flestum bílum á leiðinni yfir Hellisheiðina?Ég hef ekkert á móti stórum pallbílum. Þvert á móti finnst mér þeir stórkostlegir og margir hverjir flottir og spennandi jeppar. Stundum slefa ég af öfund þegar ég sé 44″ F-250 drynja framhjá á götunni.
Eitt heilræði til allra ökumanna, hvort sem þeir keyra jeppa, „vörubíla“ eða annað: Þegar einhver ætlar framúr ykkur, jafnvel þótt þú akir sjálfur á hámarkshraða, SLÁIÐ AF GJÖFINNI og leyfið honum að komast fram úr örugglega! Hann mun fara fram úr hvort sem þú gerir það erfitt eða ekki og við erum ekki umferðarlöggur og siðum engan til með því að hleypa ekki fram úr.
Það er búið að fórna allt of mörgu góðu fólki fyrir slæma umferðarsiði almennings. Ég skora á félagsmenn F4x4 til að sýna frumkvæði að bættri umferðarmenningu.
kveðja,
Gísli Sveri
01.11.2006 at 11:02 #566174Úr reglugerð um gerð og búnað ökutækja:
,,Leyfilegt frávik hraðamælis er allt að 10% yfir raunhraða að viðbættum 4 km/klst. Hraðamælir má aldrei sýna meira en 4% minni hraða en raunhraða."Það hefur aldrei verið leyfilegt að aka yfir 90 en refsiramminn hefur bara byrjað í 100. Það er því bara verið að stækka refsirammann, ekki breyta hámarkshraða. Því er maður "seif" á 95+4%= ca. 99 í stað 104 hér áður.
Slakiði bara á og akið aðeins hægarAnnars er ég að vissu leyti sammála Þórði með refsingarnar, þær eiga að vera til staðar en önnur úrræði verða fylgja í bland s.s. einhverskonar endurhæfing ökumanns eins og hann nefnir.
Kveðja,
Gísli
01.11.2006 at 06:49 #566164Mér finnst þetta bara fínt og löngu tímabært. Ég er nú vanur að keyra á 100 á þjóðveginum, held ég lifi alveg af með 95 í staðinn. Ef þessi reglugerð verður til þess að minnka ofsaakstur eitthvað eða taka fleiri ökuníðinga úr umferð þá er það bara frábært mál.
Mér finnst að það mætti herða reglur um sviptingu ökuréttinda.
30.10.2006 at 22:52 #565984Ætti að þýða betri aksturseiginleikar og minna álag á legur og slíkt. En breiðara er auðvitað flottara.
24.10.2006 at 23:57 #198801Einhvern tímann heyrði ég minnst á að hægt væri að bilanagreina gamla Hilux með einhverju blikkljósasystemi, tengja eitthvað í eitthvað og lesa svo úr blikki í mælaborðinu hvað sé að.
Reyndi að leita að þessu á spjallinu en fann ekki, man/kann þetta einhver eða er ég bara ruglaður?
kv,
Gísli Sveri
28.07.2006 at 21:43 #556788Bílaleigurnar reyna að gera sitt til að koma anti-utanvegarakstursáróðri til skila. Það liggja miðar á afgreiðsluborðum þar sem málið er útskýrt á ensku, máske mætti bæta við fleiri tungumálum og jafnvel líma aðvörun á mælaborð bílanna.
Ég held að útlendingar geri sér hreinlega ekki grein fyrir skaðanum sem þeir geta valdið á náttúrunni. Þeir sem á annað borð eru komnir hingað til að berja landið augum hafa líklega engan áhuga á að skemma það í leiðinni. Þessi vandamál eru bara ekki til staðar í löndum þar sem "ósnortin náttúra" er fjarlægt hugtak og þess vegna kannski ekki skilningur á vandanum hjá erlendum ferðamönnum.
-
AuthorReplies