Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
14.10.2008 at 18:07 #631080
Ok, ég hélt þetta væri eins og í 2.4L bílnum. En jæja.
14.10.2008 at 17:33 #631076Sæll.
Bara benda á einfalt trikk þangað til þú færð skynjara til að prófa:
Prufa að kippa honum úr sambandi með bílinn í gangi, ef gangurinn breytist eitthvað, þá er hann amk að gefa eitthvað merki, ef hann breytist ekki, þá er hann líklega ónýtur.
Kannski ertu þegar búinn að þessu?
Annars sé ég að þú ert með K&N síu og helsti eiginleiki hennar er því miður að rústa loftflæðiskynjurum.Gangi þér vel,
Gísli Sveri
24.09.2008 at 19:10 #629628Það er sumsé svona kantur sem mig vantar, að aftan á gamla vitöruboddíið, nema hægra megin (myndin sýnir vinstra megin).
sjá hér:
https://old.f4x4.is/new/files/photoalbums/6279/52993.jpg
18.09.2008 at 23:47 #202935Man einhver hvar 33″ brettakantar fyrir Vitöru fást, þ.e. svoldið gömul hönnun sem var skrúfuð í að utanverðu og svo plasttappar settir yfir skrúfurnar?
Held ég sé að lýsa þessu rétt.kveðja,
Gísli
18.09.2008 at 21:54 #628926Mældi loksins bensínþrýstinginn í dag. Hann reyndist bara 22psi þegar hann átti að vera 34-38psi. Vonandi er þetta lausnin. Spurning hvort það er dælan sjálf eða rafmagnið að henni, kemur í ljós annað kvöld.
Afhverju það var svona mikið óbrunnið bensín hlýtur að skýrast af því að kveikjan er í rugli, eftir mikið fikt.
Svo er ekki loku fyrir það skotið að þetta sé þrýstijafnarinn, en ég hringdi í Suzuki í dag og þeir sögðust aldrei hafa selt svoleiðis, svo það er þá ekki svo líklegt að hann sé farinn.
kveðja,
Gísli Sveri
10.09.2008 at 18:10 #629004Minn var reyndar á 32", kannski munar það því, þau eru tommu breiðari líka.
10.09.2008 at 07:27 #629000Þegar ég stóð í þessu, þá voru það hækkunarklossar fyrir afturgorma í vitöru sem pössuðu allan hringinn í jimny. Prófaðirðu bæði fyrir ofan og neðan gorma hvort það passaði?
Í sambandi við stífurnar, það er ekkert stórmál að síkka þær, og trúðu mér, á þessum bíl munar það MIKLU upp á rásfestu, þ.e. spindilhallinn.
Demparana að framan lengdi ég með því að setja langa ró ofan á snitteinin ofaná demparanu, sem var svo með öðrum teini ofaná. Það þarf að vera góð skinna á nýja teininum, og langa róin ca. 4cm löng, málið leyst.
Gangi þér vel,
Gísli
08.09.2008 at 19:11 #628918Tók pústið í sundur fyrir framan hvarfakút en það breytti engu. Og líklega er nægur bensínþrýstingur, því hann var settur í mengunarmæli í dag og þá kom í ljós að það er óeðlilega mikið óbrennt bensín í pústinu. Blandan er því of sterk hvað sem veldur því.
08.09.2008 at 08:34 #628912Það kæmi þægilega á óvart ef það væri hvarfakúturinn, þarf að skipta um pakkningu fyrir framan hann þannig að næsta mál er að rífa þetta í sundur og prófa.
Það er búið að fara allan skalan með kveikjuna, hann skánar ef ég sný henni öfgamikið til vinstri (veit ekki hvort það er að flýta eða seinka) en þá gengur hann 2500rpm í lausagangi, svo það er líklega ekki skýringin.
07.09.2008 at 22:57 #628908Fékk lánaðan loftflæðiskynjara úr bíl í fullkomnu lagi, hafði ekki erindi sem erfiði. Ætla að reyna að koma honum í tölvu. Kannast enginn við þessa bilanalýsingu?
07.09.2008 at 10:02 #628906Takk fyrir góðar hugmyndir og svör.
Björgvin:
Kertaþræðirnir eru splunkunýjir og vandamálið var til staðar áður en skipt var um þá. Svo er annað mál að gangurinn breytist ekkert eftir því hvort bíllinn er heitur eða kaldur.
Sigurdurhm:
Búinn að ganga úr skugga um að það er fínn bensínþrýstingur, alveg inn í spíssareilið, svo ég hugsa að dælan sé í lagi. Búinn að prófa þetta með bensínlokið.
Elmar:
Kveikjulokið er nýtt, pússaði samt sem áður snertlurnar, breytti því miður engu.
Baldur:
Þegar ég hugsaði betur út í þetta, þá er K&N sía í bílnum, en þær eru þekktar fyrir að rústa loftflæðiskynjurum. Mér finnst þetta langlíklegasta skýringin.Þá er önnur spurning. Getur einhver lánað mér svona skynjara í 5 mínútur til að prófa, svo ég geti keypt hann með góðri samvisku á mánudaginn?
Kveðja,
Gísli
07.09.2008 at 09:48 #628990Jú, ég fékk mína hjá Hellu, reyndar fyrir nokkrum árum, en þá var verðið meira að segja mjög sanngjarnt. Svo verðuru að muna að lengja í dempurum því annars rifna demparafestingarnar af að framan. Persónulega myndi ég líka síka framstífur til jafns við hækkun því það munar miklu um að svona stuttur bíll stýri vel.
Góða skemmtun,
Gísli
05.09.2008 at 15:08 #628892HaffiTopp
Það er auðvitað góð hugmynd að skoða öll lúm, ekki ólíkleg skýring á svona "draugavandamáli". Geng í það mál í kvöld.
dagsform
Var búinn að hugsa út í þetta, finnst þá ekki að hann ætti að drepa á eftir 2 mínútur í gallalausum lausagangi. Þarf samt að rífa hvarfakútinn undan, svo það kemur þá í ljós.
Almar Árnason
Ég er nýbúinn að kaupa bílinn, en ég held að það séu ekki flækjur, 90% viss. Getur það valdið veseni?Annars hallast ég að því að þetta sé bensínblönduvandi, veit bara ekki hvað veldur.
kveðja,
Gísli Sveri
04.09.2008 at 19:32 #628884Einnig væri gaman ef einhver lumaði á varahlutabíl og væri til í að lána mér skynjara til að prófa, s.s. vatnshitaskynjara, loftflæðiskynjara og slíkt.
Hefur einhver tekið eftir því að heimasíða Suzuki er suzukibilar.is ? Mér finnst það ekki gróðavænleg markaðssetning 😀
04.09.2008 at 19:29 #628880Einu sinni hakaði ég óvart við "fela" hakið fyrir neðan textaboxið og skildi svo ekkert í því afhverju ekkert birtist. Það er sumsé til að fela auglýsinguna eftir að t.d. hlutur er seldur, ekki til að fela email eða gsm eins og ég hélt fyrst.
Kveðja,
Gísli Sveri
04.09.2008 at 19:26 #202873Sælir félagar, ég var að velta því fyrir mér hvort þið gætuð aðstoðað við bilanaleit.
Sjúklingurinn er Suzuki Vitara 96 árgerð, 1600cc 16v og beinskiptur. Þannig er mál með vexti að bíllinn fer í gang án vandræða og hægt að taka af stað, en ef gefið er hraustlega inn er eins og hann kafni á inngjöf, drepst næstum á og hann kemst ekki úr sporunum. Með lagni og mjög lítillin inngjöf er hægt að koma honum uppí svona 60 í öðrum gír en ef það kemur brekka þá kafnar hann og maður verður að lulla upp í fyrsta, rétt hraðar en í lausagangi. Ef hann hins vegar gengur lausagang í meira en ca. 2 mínútur, þá drepst á honum og maður verður að pumpa gjöfina til að koma honum í gang.
Búið er að athuga eftirfarandi:
Nýjir kertaþræðir
Nýtt kveikjulok
Ný kerti
Nýr kveikjuhamar
Skipta um bensínlok
Athuga þjöppu á cylindrum, hún var ágæt
Athuga kælivatn, kælivatnsskynjarar eiga víst að geta verið með vandræði ef vantar vatn.
Athugatímareim og skipta um hana.
Skipta um bensínsíu.
Ekki búið að mæla þrýsting frá bensíndælu, en spíssareilið fær þó líklega nógan þrýsting því þar spýtist út bensín ef maður losar endaboltann.
Prófa að tengja og aftengja loftflæðiskynjara, breytti engu.
Það er ekkert ljós í mælaborði.Þannig að við erum eiginlega uppiskroppa með hugmyndir. Þær væru allar vel þegnar.
kveðja,
Gísli Sveri
26.02.2008 at 20:03 #615310Hún er ennþá til, afhendist í Árbæ, Grafarvogi, Hafnarfirði eða Kópavogi, eftir því hvernig klukkan snýr þá stundina.
kv
GS
25.02.2008 at 23:36 #615306það er mikið umhverfisverndaratriði að endurnýta svona bók í stað þess að henda henni í ruslið, hvort sem hún verður lesin eða fjallaskeinir.
En ég gleymdi reyndar bara alveg að pæla í flokknum.
En ef einhver hefur áhuga á þessari skruddu, þá er síminn hjá mér 8211174 og meilið gisli@enta.iskveðja,
Gísli Sveri
25.02.2008 at 18:47 #201952Ég á til wiring diagram manual fyrir Jimny sem ég hef engin not fyrir en finnst leiðinlegt að láta fara til spillis. Ef einhver eða einhverjir vilja hirða þetta, þá er það sjálfsagt, eina skilyrðið er að deila því með öðrum Jimnymönnum eftir þörfum.
Annars bilar rafmagnið í Suzuki auðvitað aldrei, þetta er bara afþreyingarefni
bestu kveðjur,
Gísli Sveri
12.10.2007 at 20:51 #599676Nóg hægt að jeppast án þess að malla í drullu.
fyrir utan: bíllinn hreinn=konan glöð og við getum hrotið í sófanum frekar en að vera útí skúr að sjæna.
kv.
Gísli
-
AuthorReplies