FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Grétar G. Ingvarsson

Grétar G. Ingvarsson

Profile picture of Grétar G. Ingvarsson
Virkur síðast fyrir 8 years, 11 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 1
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 13 replies - 81 through 93 (of 93 total)
← 1 … 4 5
  • Author
    Replies
  • 18.03.2003 at 22:56 #470648
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Ozi notar sömu kortin og Nobeltec forritið, þ.e. NOS skrárnar, sem eru einhvers konar myndaformat. Þegar valið er Import NOS gerir forritið eigin skrár fyrir hvert kort með upplýsingum um vörpun, staðsetningu horna og fl. Þannig er hægt að samnýta kortin fyrir bæði forritin án þess að þurfa að hafa tvö sett á harða disknum.
    Að mínu áliti er megin kostur Ozi fram yfir NavTrek/VisualSeries, fyrir utan það að kortin eru skírari, að það er hægt að vinna með punkta, leiðir og ferla engu síður en með Gartrip eða MapSource. Nobeltec forritin eru nær ómöguleg til slíkra hluta, auk þess sem fara verður í allra nýjustu útgáfur af VisualSeries til að þau geti sótt og sent gögn í nýrri Garmin tækin, en Ozi leikur sér að því og spjallar líka við Magellan.
    Ástæðan fyrir hörmulegum samsetningum á 250000 kortunum er trúlega vörpunarmál, eins og Helgi bendir réttilega á. Nobeltec er gert fyrir kort með Transverse Mercator vörpun (sjókort) og 50000 kortin eru þannig, en 250000 kortin eru með keiluvörpun. Að hluta til er þetta vegna þess að sum kortin, sérstaklega gamla Mið-Austurland, eru vitlaus, maður er keyrandi upp um alla fjallatoppa á þeim.

    Kveðja, Grétar





    01.01.2003 at 18:42 #465914
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Athyglisvert er að flestir framleiðendur aukaefna í eldsneyti og olíur hafa orðið fyrir ákúrum frá Samkeppnisstofnun þeirra Kana, FTC. Sjá t.d. athyglisverðan lista sem fæst á http://www.ftc.gov/search þegar skrifað er er inn oil additives og ýtt á search





    13.12.2002 at 16:24 #465390
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Sælir
    Á síðunni http://www.waypoints.com/popups/nobeltecgps.html eru ýmsar upplýsingar um samskiptamöguleika Visual Series og NavTrek’97 við ýmsar gerðir GPS-tækja.

    Kv. GGI





    08.12.2002 at 20:27 #465094
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Sæll
    Mér skilst að þennan staðal getir þú fengið hjá honum NMEA sjálfum, http://www.nmea.org/pub/0183/index.html, en hann kostar helling af krónum. Þar er líka tekið fram að þetta sé "kópírætid" plagg, svo varla er hægt að búast við að finna það í heilu lagi á vefnum.
    Á http://www.gpstom.de/GPS/NMEA.htm má finna eitthvað um hvaða setningar ýmis GPS tæki senda frá sér og forrit vilja fá og upplýsingar um setningar í prótókollinum (ekkert tekið fram um útgáfur) er að finna á undirsíðum http://vancouver-webpages.com/pub/peter … eadoc.html
    kv. GGI





    22.10.2002 at 21:42 #463584
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Sælir

    Einmitt þegar verið er að ræða um Hveravelli hér á spjallinu kemur RÚV með frétt um málið (tekið af vefsíðu RÚV):

    "22.10.2002 17:05
    STARFSEMI FÍ Á HVERAVÖLLUM LOKIÐ
    Hveravallafélagið hefur tekið við rekstri ferðaþjónustunnar á Hveravöllum og þar með lýkur þar ríflega 70 ára starfsemi Ferðafélags Íslands.
    Eignir félagsins hafa verið afhentar Hveravallafélaginu en eigendur þess eru Bjarki Kristjánsson Svínavatni, Björn Þór Kristjánsson Húnsstöðum og Svínavatnshreppur. Ráðgert er að á Hveravöllum verði reist ný þjónustumiðstöð."
    Skv. upplýsingum heijo er það Björn sem er forsvarsmaður félagsins.

    Deiliskipulagið gerir ráð fyrir að nýta vatn frá Nýjahver. Það verði leitt niður að eldri skála Ferðafélags Íslands og settir þar varmaskiptar sem anni öllum húsum á staðnum. Þetta verk er nú hafið skv. heijo og virðist ekki hafa tekist vel. Einnig er búið að gera ný tjaldstæði norðan við nýja skálann, en hann á að rífa og byggja 640 fm. hús (með aðstöðu fyrir vélsleðaviðgerðir) í staðinn nokkru norðar.
    Hins vegar segir orðrétt í úrskurði Skipulagsins um deiliskipulagstillöguna: "Samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar frá 10. apríl 1997, í máli nr. 66/1996 Svínavatnshreppur og Torfalækjarhreppur gegn Landsvirkjun og íslenska ríkinu, eru Hveravellir ekki háðir fullkomnum eignarrétti. Meðan að löggjafinn hefur ekki mælt fyrir um hvernig eignarhaldi á svæðinu skuli háttað er ekki hægt að heimila framkvæmdir á Hveravöllum."
    Skv. þessu er deiliskipulagið samþykkt, en framkvæmdir ekki leyfðar fyrr en Ríkið er búið að leggja undir sig svæðið?
    ÞÆR ERU SAMT HAFNAR!
    Mér virðist því Svínvetningar standa í framkvæmdum sem ekki hafa verið leyfðar, nema nýrri úrskurðir hafi fallið en sá sem ég er að vitna í (frá 1997). Leiðréttið mig ef þetta er ekki rétt skilið.

    kv. GGI





    22.10.2002 at 14:49 #463578
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Sælir

    Ef ég hef skilið málin rétt þá keypti Svínavatnshreppur eigur Ferðafélagsins og yfirtók þær 1. október s.l. Þeir höfðu síðan hraðar hendur og seldu skálana til einkaaðila í Húnavatnssýslu.
    Ég bendi þeim sem vilja fræðast um framtíðaskipulag á hveravöllum á http://www.skipulag.is/htdocs/Ursk/1997 … 50063.html

    kv. GGI





    30.09.2002 at 19:45 #463372
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Í félagaskrá Skagafjarðardeildar eru frekari upplýsingar:
    http://www.isholf.is/oskarha/4×4/HilmarErl.htm
    Ekki alveg hreinræktuð, eins og ég sagði í pósti nr. 2 á þessum þræði.
    Kv. GGI





    25.09.2002 at 22:12 #463340
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Fyrir áhugamenn um Lödu á stórum hjólum vil ég benda á að í þorrablótsferð Skagafjarðardeildar 2001 var ein á 44" dekkjum. Að vísu var hún víst ekki hreinræktuð.
    Sjá http://www.simnet.is/oskarha/images/tho … rablot.htm





    11.07.2002 at 20:06 #462296
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Sæll Kátur
    Gætir þú lýst nánar hvaða leið þú fórst, eins og Jwolf segir þá passar þessi lýsing alls ekki við Eyfirðngaveg. Ef þú hefur farið Mælifellsdal inn á Eyvindarstaðaheiði hefur þú verið að fara Kjalveg, svipað og hestamenn eru að gera. Þar eru uppbyggðir vegir og brýr. Síðast þegar ég fór þar um varð að vísu að fara bæði Svörtukvísl og Blöndu á vaði. Lýsing þín á vaðinu á Blöndu á hins vegar við vaðið á Eyfirðingavegi.
    Kjalvegur er mjög þægileg haustleið en Blanda og þó einkum Svartakvísl geta verið illar viðskiptis yfir sumarið.
    Kv. Grétar





    02.06.2002 at 13:08 #461416
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Kæri Hlynur

    Þú ættir að lesa betur það sem skrifað er á spjallið áður en þú ferð að sproksetja fólk. Óli sagði ekki orð um rútuslys, það var Páll (Páll Arnarson utanfélagsmaður?) sem minntist á þau í framhjáhlaupi.
    Það er helst á pistli þínum að skilja að þú vitir eitthvað meira um þessi mál, viltu þá ekki ausa af brunni visku þinnar og upplýsa okkur fáfróða og gleymna félaga þína.





    21.04.2002 at 11:39 #460530
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Ég skil nú ekki þennan póst frá Jóni, það vantar allt samhengi í hann. Helst dettur mér í hug að hann telji það aumingjaskap ef menn ferðast ekki hvert sem er hvenær sem er og við hvaða aðstæður sem er (skítt með allar reglur og ástand landsins). Er þetta rétt túlkun Jón?





    14.12.2001 at 00:02 #458106
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Gauijul segist ekki vera að ásaka klúbbinn og það má satt vera, enda vandséð hvaða ástæður eða rétt hann hefur til þess, hann er hins vegar að koma óorði á hann viljandi eða (vonandi) óviljandi!

    Ég vil rökstyðja þessa fullyrðingu með eftirfarandi:

    Gaui telur að einhverjir félagsmenn hafi komið illa fram við hann, hann skrifar samt ekki pistil hér á vefspjallið og hellir þar úr skálum reiði sinnar, sem væri rétt og eðlilegt, heldur allt annars staðar. Það er vegna þess að jong sér þessa umræðu og vekur athygli á henni að gaui fer að skrifa hér á vefspjallið.

    Í pistlinum á hugi.is tekur hann sérstaklega fram hvað eftir annað að félagar í 4×4 hafi verið á ferð, dæmi: "8 jeppar á vegum Ferðaklúbbsins 4×4 keyrðu framhjá okkur og hjálpuðu okkur ekki", "varð skálavörðurinn reyndar mjög hissa á þessari framkomu 4×4 manna". Hann virðist sem sagt leggja sérstaka áherslu á að þetta hafi verið félagar í 4×4 og lætur beinlínis að því liggja að þeir hafi verið í ferð á vegum klúbbsins.
    Samt virðist hann ekki einu sinni vera alveg viss um að þessir menn hafi verið í klúbbnum, því á einum stað skrifar hann "mér er sagt að þetta hafi allt verið menn úr Ferðaklúbbnum 4X4"!

    Það stendur heldur ekki á viðbrögðum vina hans á huga.is.
    "jebb, maður hefur nú ekki heyrt margar góðar sögur af 4×4", "Ef 4×4 hagar sér svona eru þá þetta ekki Jeppaaularnir sem koma slæmu orði á aðra Jeppamenna" og sv. frv.

    PS á Huga.is er því haldið fram að þarna hafi hjálparsveit klúbbsins verið á ferð, hvað segja þeir um málið?





    13.12.2001 at 22:55 #458088
    Profile photo of Grétar G. Ingvarsson
    Grétar G. Ingvarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 184

    Þetta er ágæt lýsing hjá jong, nema að vakúmkerfið í Lappanum verkar reyndar þveröfugt við það sem hann segir. Ef ekkert sog er á kerfinu heldur gormur bílnum í framdrifinu, ef sogið er á vinnur það gegn gorminum og opnar drifrásina. Þetta þýðir að ef sogið bilar á framdrifið að fara á, sama gerist þegar drepið er á vélinni eða slangan tekin af millikassanum (eða sogventlinum millikassa megin). Ef sett er í lága drifið kemur framdrifið alltaf inn, óháð stöðunni á soginu.
    Ef setja á bílinn í framdrif á ferð vera lokurnar að vera á 4×4 sé hann með framdrifslokur, annars er allt í voða.





  • Author
    Replies
Viewing 13 replies - 81 through 93 (of 93 total)
← 1 … 4 5

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.