Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
09.05.2006 at 22:05 #552256
Í lögum félagsins stendur:
13. grein.
Stjórn félagsins er heimilt að standa í vegi fyrir því að einstakir aðilar fái aðild að
félaginu og að vísa félagsmanni úr félaginu, ef sýnt þykir eða sannað að framkoma
viðkomandi samræmist ekki markmiðum félagsins. Sé manni meinuð aðild að
félaginu getur hann borið mál sitt undir almennan félagsfund.Eins og uppbyggingu klúbbsins er háttað eru menn hér komnir á grátt svæði. Ég efast þó um að stjórn landsbyggðardeildar geti rekið menn úr félaginu, kannski úr deildinni en ekki úr klúbbnum sem slíkum.
Það er hins vegar alveg ljóst að almennur félagsfundur getur ekki vísað manni úr klúbbnum, eins og hér var gert, en félagsfundur virðist hins vegar hafa neitunarvald á brottrekstur stjórnar á félagsmanni.Mín skoðun er því sú að séu formsatriðin skoðuð sé þessi meinti brottrekstur ólöglegur og ómarktækur.
Auk þess þurfa að mínu áliti að koma til mjög veigamikil rök til þess að hægt sé að reka félagsmann. Að hann sé leiðinlegur eða ósammála sumum eða öllum öðrum stjórnarmönnum dugar ekki sem brottrekstrarsök.
06.04.2006 at 11:48 #548550Þessir bílar eru standard með diskalæsingu (LSD) að aftan og engar lokur að framan (öxullin kemur í flangs sem er boltaður við náið). Lengri öxullinn að framan er í tvennu lagi og er læst saman með vakúmstýrðum hólk, þegar bíllinn er í framdrifinu, en er án sambands við hjólið ef hann er í afturdrifinu.
Davíð, þú er líklega með rafmagnslás úr Hælúx.
Eina vakúmstýrða læsingin sem ég veit um í þessa bíla er Algrip, en sé hún notuð er hólkurinn festur í læstri stöðu og vakúmkerfið fjarlægt. Einnig eru settar handvirkar framdrifslokur. Sjá [url=http://kliptrom.is/algrip_vorur.htm:29i8hzcs]hér.[/url:29i8hzcs].
16.02.2006 at 19:28 #542938er að mínu áliti tóm vitleysa. Klúbburinn getur ekki átt allt efni sem á vefinn fer, en samt ekki borið neina ábyrgð á því og vísað henni á þann sem setti efnið inn. Það er ekki hægt að éta kökuna og eiga hana.
Ég skil ekki til hvers þessi grein er sett þarna.
Á síðunni er smávegis af upplýsingum um klúbbinn og fréttum og þar sem það er fólk á vegum stjórnar sem setur það inn er eign klúbbsins á því efni sjálfgefin.
Í annan stað er spjallið, sem engin eign er í og stjórnin vill ekki bera ábyrgð á, en hlýtur að gera það ef það er eign hennar.
Í þriðja lagi eru myndir sem félagar hafa sett inn. Ég sé því ekki betur en þessi grein sé sett til að slá eign klúbbsins á myndirnar, en í því hlýtur þá að felast að klúbburinn eigi "kópírætinn" og þeim sem settu myndirnar inn þar með ekki heimilt að birta þær nema með samþykki hans! Á hvaða annan hátt getur klúbburinn "átt" myndirnar í safninu?
26.01.2006 at 00:06 #540282Ég get nú ekki séð að það sé rétt hjá Ofsa að Moggi skrifi undir nafni, nema að hann heiti Alma Guttormsdóttir. Ég dreg það mjög í efa og minnir að á einhverju stuttu tímabili hafi hann heitið Björgvin.
Verkfræðingurinn hins vegar gæti verið að skrifa undir sínu eigin nafni. Ef svo er, er þetta ekki náunginn sem vann verkefni í HÍ, þannig að hann var að láta GPS stjórna LC60? http://www.hi.is/~johanje/taeknileg_idn … lysing.htm
13.01.2006 at 00:42 #537544Á fimmtudag-föstudag í síðustu viku rauk rennslið í Fljótinu úr ca 40 rúmmetrum upp í 364 rúmmetra. Við þetta brotnaði ísinn allur upp og eru hrannir við bakkana. Enda þótt það sé orðið lagt aftur er spurning með hvað sá ís er sterkur og vafasamt að komist verði fyrir jakahröngli. Ég tel því allar líkur á að Hrafnabjargavað sé gersamlega ófært.
Stórutunguleið var hins vegar fær án úrhleypinga um síðustu helgi. Svartárkotsleið er líka í lagi, það var a.m.k. álit Tryggva í Svartárkoti í gær.
Aðgát þarf að hafa við suðurbakkann á Sandá í nágrenni við vaðið, þar getur brotnað undan bílum. Veit ekki hvernig er að fara yfir eyjarnar.
Mbk,
Grétar
12.01.2006 at 20:42 #53856812.01.2006 at 18:44 #538636Þetta er það sem framleiðandinn Tractech gefur upp á heimasíðu sinni http://www.tractech.com/Products.htm#locking
"Tractech’s locking differentials are the NoSPIN® and Detroit Locker® brands (same product, different market segments), the Detroit E-Z LockerT and Detroit Gearless LockerT brands."
Heitið Detroit Locker er sem sagt vörumerki. Það á aðeins við eina gerð af læsingum, og sú gerð gengur líka undir nafninu NoSPIN (sem líka er skrásett vörumerki)..
05.10.2005 at 00:34 #528686T.d. SeaClear II á http://www.sping.com/seaclear/index.htm". Freeware og vinnur með Nobeltec kortapakkanum.
Nokkur fleiri getur þú lesið um á http://www.forsterlewis.com/soaring/soaring_with_gps/
04.10.2005 at 22:55 #528452Skv. upplýsingum frá eiganda um kl. 21 í kvöld er bílinn ekki fundinn.
03.10.2005 at 22:30 #528446af þessu máli?
19.09.2005 at 21:44 #527090Ég held að skálanefnd hafi séð til þess að það séu lyklar hjá öllum deildum. A.m.k. er ég með lykil að Setrinu og get látið félaga í Eyjafjarðardeild fá. Skálanefnd setur verðskrána og kemur hún fram hér að ofan.
Grétar G. Ingvarsson
15.09.2005 at 23:44 #526922Þekki ekki fjórvörður, en veðurathugunarstöðin var þar sem vegurinn upp úr Eyjafjarðardalnum kemur upp á brúnina. Til skamms tíma voru þar möstur til ísingarmælinga.
10.09.2005 at 23:29 #526450Ef einhverjir vilja kynna sér "skýrslu nefndar um stofnun þjóðgarðs norðan Vatnajökuls", sem Jónas oddviti vitnaði til, er tengillinn [url=http://http://www.umhverfisraduneyti.is/media/Vefutgafa_baeklings/Skyrsla_um_tjodgard_nordan_Vatnajokuls,_og_vidaukar_A_B_C_E_G_vefutgafa.pdf:114cxs5q]hér[/url:114cxs5q]. Í þessum texta get ég hvergi fundið að loka eigi slóðum sem nú eru í notkun, svo ekki styður það mál Jónasar.
Þar segir hins vegar: "Nefndin telur að í megindráttum séu núverandi vegleiðir innan þjóðgarðs góðar og gerir ekki ráð fyrir, jafnvel þegar llitið er til lengri tíma, að breyta þurfi í stórum dráttum vegakerfinu innan þjóðgarðs" (bls 42).
09.09.2005 at 16:54 #526442Satt er orðið. Annað mál: hvað fannst ykkur um þátt Páls Ásgeirs? Mér fannst spurningar hans og efninstök öll miöa að því að gera jeppamenn tortryggilega. Einkum var þetta í viðtalinu við Skúla, í dag þurfti hann svo sem ekki að leggja sig mikið fram, þökk sé viðmælandanum.
Ætli hann sé sár útí 4×4 vegna samkeppninnar frá Ofsa?
07.09.2005 at 19:21 #526416Sé túlkun oddvitans rétt sé ég ekki annað en allir bændur, sumarbústaðaeigendur o.sv.frv. verði að fá framkvæmdaleyfi ef þeir ætla að setja niður girðingarstaur. Ætli bændur í Ásahreppi viti af þessu?
24.05.2005 at 17:16 #523232Sæll Jón
Það er ekki bara 50cm ákvæðið sem er vont í þessari reglugerð, skilgreiningin á náttúruspjöllum er með þeim hætti að ekki er hægt að keyra nema á algreinilegustu slóðum. Undanþáguákvæðið fyrir rannsóknir, verktöku og bústörf er bundið því skilyrði að ekki sé hægt að vinna störf nema með hjálp ökutækja. Í flestum tilfellum er það hægt með öðrum hætti.
Ég vildi fá ALLA þessa 4. grein út fyrir þá gömlu!Spurningin er hvað er best að gera. Eru mótmæli formannsins nægjanleg? Eigum við að senda inn undirskriftalista til að fylgja þeim eftir og væri hefðbundinn pappírslisti þá e.t.v. betri? Ættum við að fá fleiri aðila með okkur?
Ég ekki viss um að 100 pistlar með mótmælum hér á vefnum hafi svo mikinn slagkraft, sér í lagi þar sem í þessu félagi eru á annað þúsund manns, sem ég tel að séu allir á móti þessari grein. Mér finnst að við þurfum að vera öflugri ef við förum á stúfana með mótmæli, annars gæti litið út fyrir að það væru aðeins lítill hluti félagsmanna á móti þessu.
Fjöldi stjórnarrmanna á listanum þínum segir mér bara það að stjórnin þarf að koma saman og taka sameiginlega afstöðu. Ætli það sama gildi ekki líka um umhverfisnefndina.
Kv,
Grétar
06.05.2005 at 17:43 #521724Öll kortin í Nobeltec pakkanum eru með Hjörsey sem datum, nema 1:500 000, þar er datum sagt óþekkt.
01.05.2005 at 22:42 #520962Reglugerðardrögin getur þú skoðað á [url=http://this.is/rotta:sdmewb7o]Rottusíðunni[/url:sdmewb7o].
10.04.2005 at 14:16 #520746Er formaðurinn með einhverja sérþjónustu?
Myndakerfið er í algeru bulli. Burtséð frá skipulagi þess, sem er vonlaust eins og er, er ekki hægt að búa til nýtt albúm. Þetta er a.m.k. reynsla mín og fleiri. Ég get að vísu bætt inn myndum en ekki fjarlægt myndir og síðan er málið með diskplássið. Éf maður sendir ínn myndir í fullri upplausn eru gerðar úr myndinni tvær myndir í minni stærðum, en upprunalega myndin geymist líka! Enda þótt enginn geti séð hana er hún látin liggja þarna og taka pláss. Albúmið hjá mér verður fullt eftir 8 – 10 myndir, nema að myndirnar séu minnkaðar áður en þær eru sendar inn.
16.03.2005 at 10:42 #518554Við getum vafalaust deilt um það hvort deildirnar eigi að taka það upp hjá sjálfum sér, án þess að fá ábendingu frá aðalstöðvunum, að senda svona lista suður.
Mér virðist hitt vera á hreinu eftir lestur þessa þráðar að Suðurnesjadeild, Suðurlandsdeild og Vesturlandsdeild, auk okkar hér í Eyjafjarðardeild, hafa ekki gert það. Það er helmingur deildanna samkvæmt mínum reikningum.
Yfirlýsing Emils um að flestar deildir hafi sent inn þessa lista óumbeðnar stenst því ekki.
-
AuthorReplies