Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
11.05.2007 at 16:35 #590858
Kemur ekki ályktun um stuðning við þetta (og aðrar framkvæmdir LV) frá Suðurlandsdeild innan stundar?
29.04.2007 at 00:08 #589194Fundurinn er tvímælalaust boðaður með réttum hætti, sem slíkur. Minn skilingur er hins vegar sá, að séu lagabreytingar eða aðrar tillögur ekki boðaðar líka séu þær ekki lögmætar. Formaður segir að fundarboð sé á leiðinni í pósti, svo væntanlega eru þær þar.
28.04.2007 at 18:51 #589186Jæja, nú er vikan liðin og ekki hef ég fengið neitt fundarboð með tillögum og lagabreytingum í pósti. Hins vegar sá ég fundarboð í Fréttablaðinu í morgun, þar er ekki getið um neinar tillögur eða lagabreytingar. Væntanlega er þá ekkert af slíku á dagskrá?
25.04.2007 at 13:45 #589364Fljótshnjúkur er austan Skjálfandafljóts, rétt innan við þann stað þar sem Kiðagilsá rennur út í Skjálfandafljót.
Í sambandi við Rammaáætlun um nýtingu vatnsafls var unnið tilraunamat á 10 virkunarkostum. Þar var kostnaður áætlaður á bilinu 15-25 Mkr/GWh/ár fyrir alla staðina, nema við Fljótshnjúk. Þar er kostnaður áætlaður 38 Mkr/GWh/ár.
Þetta er því einn alóhagkvæmasti virkjanakostur landsins og mjög undarlegt að hann skuli ekki vera afskrifaður í þessari tillögu.
Sjá http://www.landvernd.is/natturuafl/vinn … amat_3.pdf
22.04.2007 at 21:41 #200171Í lögum klúbbsins á netinu stendur:
3. grein.
… Fundurinn [aðalfundur] skal boðaður félagsmönnum skriflega með minnst sjö daga fyrirvara og með auglýsingum í blöðum. Í fundarboði skal greina fundarefni svo og allar tillögur, sem ætlast er til að bornar verði undir atkvæði. …
og (26. grein)
… Tillögur að lagabreytingum þurfa að hafa borist stjórn félagsins í síðasta lagi 15. apríl og skulu þær kynntar í aðalfundarboði. …Nú langar mig að vita tvennt:
a) hvar kemur þessi augýsing til með að birtast.
b) hvar birtist samsvarandi auglýsing í fyrra.Grétar
03.04.2007 at 13:30 #587132Hvað hefur þetta með NMT að gera?
Ég sé ekki betur en að þarna sé verið að bjóða út nýtt GSM dreifikerfi og skilyrðin voru að 60% landsmanna hefðu aðgang að því innan þriggja ára. Þessi prósenta á við íbúa en ekki landsvæði, væntanlega þegar þeir eru heima hjá sér og í vinnu.
E.t.v. býður Svissarinn upp á 95% útbreiðslu innan þess tíma, en ekki gat ég séð það á fréttinn hjá Póst og fjar, þú hefur kannski einhverjar betri upplýsingar.
Nýtt GSM kerfi á 1800MHz bætir fjarskiptastöðu okkar ekki á nokkurn hátt þegar NMT dettur út.
15.03.2007 at 22:15 #584658Þetta er ágæt úttekt hjá þér Jón. Þú hefur þó ekki gert athugasemdir við eftirfarandi, enda kannski ekki neitt sem skiptir megin máli í þessu sambandi en sýnir þó hvers konar vinnubrögð eru viðhöfð.
"Milli Akureyrar og Reykjavíkur styttist leiðin um 47 km, úr 389 km í 342 km.
……
Vegalengdin Egilsstaðir-Reykjavík styttist um 29 km (635 í 606) og Reyðarfjörður-Reykjavík styttist um 37 km (677 í 640)"Þessir 635 km milli Egilsstaða og Reykjavíkur eru um "Öxi, Skeiðarársand, Hellisheiði", skv. upplýsingum á heimasíðu Vegagerðarinnar, og að stytta þá leið um 29 km með nýjum Kjalvegi verður að telja með meiri afrekum í vegagerð, og það jafnvel á heimsvísu!
Þó svo að hér hafi verið gerð mistök og þeir hafi ætlað að setja 653, sem er vegalengdin norður fyrir um þjóðveg 1, er afar undarlegt að leiðin Rvk-AK styttist um 47 km en ef ekið er áfram til Egilsstaða styttist leiðin Rvk-Egilsstaðir um 29 km. Það hlýtur að þýða að með nýjum Kjalvegi lengist leiðin Akureyri-Egilsstaðir um 18 km??!!
Nú, leiðin Rvk-Reyðarfjörður norður fyrir um þjóðveg 1 er 687 km en ekki 677 (það er vegalendin ef farið er um Suðurland). Vegalengdin milli Egilsstaða og Reyðarfjarðar styttist svo um 8 km með nýjum Kjalvegi (nema að alltaf sé verið að ræða styttingu á Suðurlandsvegi með nýjum Kjalvegi).
Í þessum örstutta kafla stendur því ekki steinn yfir steini þegar að er gáð. Annað hvort er hroðvirknin svo mikil að ekki er boðlegt, eða skýrsluhöfundar eru vísvitandi að reyna að blekkja fólk.
Þegar maður sér hvernig farið er með vegalengdir í þessu, á hverju mega menn eiga von með annað, t.d gögn sem allir geta ekki flett upp í?
Heimild:
http://www.vegagerdin.is/vegakerfid/veg … dir?id=152
14.01.2007 at 18:19 #575182Neðri myndin er af Hellukofanum á Hellisheiði.
16.12.2006 at 13:53 #571420Mér finnst menn tala dálítið í kross hér. Megin punkturinn í málinu virðist mér að verið er að færa kostnað frá einstökum félagsmönnum yfir á klúbbinn, sem þýðir aukin útgjöld klúbbsins um 4-500 þús.
Það er alger óþarfi að utanfélagsmenn séu að nota rásir 4×4 og er í raun ólöglegt, en ekki er víst að grisjunin sem Ofsi hyggst fara í skili klúbbnun fé sem neinu nemur. Auk þess lækkar greiðslan ekki um krónu þótt einhverjir utanfélagsmenn séu með rásirnar.
Spurningin er þá hversu bregðast skuli við, á t.d. að hækka félagsgjöldin sem þessu nemur? Á að innheimta aukagjald hjá þeim félögum sem eru með VHF?
Teljið þið að það væri möguleiki að fá opinbert fé til reksturs endurvarpakerfisins, væri það opið eins og talað var um hér áðan? Klúbburinn þyrfti þá aðeins að greiða af beinu rásunum, sem er e.t.v aðeins fjórðungur af heildarupphæðinni, skv. reikningum Einars.Að lokum vil ég lýsa yfir eindreginni andstöðu við þá hugmynd Ofsa að aðeins starfsmenn (er það Agnes?) klúbbsins megi setja rásirnar í stöðvar. Þarna finnst mér Ofsi ekki sjá útfyrir borgarmörkin.
Mér finnst eðlilegra að söluaðilarnir verði að hafa samband við forsvarsmenn klúbbsins á hverjum stað eða skrifstofuna, ef komin væri miðlæg félagaskrá, og fá leyfi fyrir ísetningu.kv, Grétar
02.11.2006 at 20:13 #566014Þegar menn hætta að skiptast á skoðunum um umræðuefnið og fara að gera lítið úr persónu viðmælandans er umræðan komin út í skítkast.
02.11.2006 at 18:36 #566010Sé þessi texti ekki persónulegt skítkast veit ég ekki hvað það er. Ef Vefnefnd lætur svona óátalið, þykir mér bleik brugðið.
27.10.2006 at 15:04 #564694[img:u241oetx]http://www.siminn.is/servlet/file/Nmt_utbreidsla.gif?ITEM_ENT_ID=18959&COLLSPEC_ENT_ID=7[/img:u241oetx]
03.10.2006 at 23:07 #561898Ekki líst mér á að þetta sé Meðalfellsvatn, tekið til vesturs. [url=http://www.nedrias.is/A/Skyrslur/Forsidur/Medalfellsvatn%202004.GIF:3nvlnrky]Hér[/url:3nvlnrky] er mynd tekin í þá átt. ekki er það líkt.
29.09.2006 at 16:21 #561816Skv. bókinni "Á Öræfum" var ferðin farin 1952. Þar segir líka "Og nokkru fyrir rökkurbyrjun beygðum við út af þjóðleiðinni hjá Kollabúðum í Þorskafirði inn á hinn nýgerða akveg yfir Hjallaháls til Djúpafjarðar"
29.09.2006 at 16:11 #561998Inni á [url=http://gps.snjallt.net:jf8idwuo]gps skránni[/url:jf8idwuo] eru m.a. vetrarferlar af þessari leið frá HS (væntanlega Hlynur Snæland)
27.09.2006 at 10:47 #561458Fyrirgefðu Klaki, ég las textann ekki nægilega vel hjá þér, þú ætlar félagsfundi að vera með þrýsting á stjórnina, ekki ákvarða þetta upp á eigin spýtur.
Rétt í þessu var Eik að setja upp undirskriftalista og þar gefst mönnum færi á að sýna stjórn afstöðu sína. Slíkt hlýtur að vera gott veganesti fyrir ákvörðun stjórnar í málinu.
27.09.2006 at 10:38 #561456Það er í sjálfu sér styrkur fyrir stjórnina að fá slíka áskorun. Ég fæ hins vegar ekki betur séð en að þessi málsmeðferð sem Klakinn stingur upp á standist ekki, það sé stjórnar að reka menn úr félaginu, ekki félagsfundar. Viðkomandi getur skotið máli sínu til félagsfundar sem sker síðan úr með brottreksturinn.
13. grein.
Stjórn félagsins er heimilt að standa í vegi fyrir því að einstakir aðilar fái aðild að félaginu og að vísa félagsmanni úr félaginu, ef sýnt þykir eða sannað að framkoma viðkomandi samræmist ekki markmiðum félagsins. Sé manni meinuð aðild að félaginu getur hann borið mál sitt undir almennan félagsfund.
26.09.2006 at 11:12 #561436Þú reynir að verja [url=http://www.simnet.is/ggi/johannes.htm:x2bs9cj0]Verkfræðinginn[/url:x2bs9cj0] og félaga með því æpa "skítkast" þegar Jón og Skari segja frá gerðum þeirra og aðrir lýsa yfir stuðningi við Jón og stjórnina. Að mínu áliti eru með þessu að lýsa yfir stuðningi við þá, er þú kannski sjálfur hluti af þessum "heila hópi"?
08.06.2006 at 10:37 #554014svaraði ekki Réttartorfu í vetur en um síðustu helgi var ekkert mál að opna hann.
A-705
22.05.2006 at 11:10 #553094Ég hef ekkert fundarboð fengið, og hafi þetta fundarboð verið í Setrinu þá hef ég hvorki fengið það eintak né það næsta þar á undan.
Grétar A-705
-
AuthorReplies