Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.01.2006 at 18:23 #540034
[url=http://www.olafurgislason.is:28bb8eii][b:28bb8eii]www.olafurgislason.is[/b:28bb8eii][/url:28bb8eii] Þessir selja slökkvitæki með bílfestingum.
kv, Ásgeir
23.01.2006 at 14:39 #539902Það eru Auto lokur í honum,
og já ég skal tjékka á bremsunum, gæti verið að pinnarnir sem halda dælunni leyfi henni ekki að ganga til, þá finnst mér samt skrýtið því þá ætti að ískra í þeim…!?
kv, Ásgeir
23.01.2006 at 13:59 #539896engar hugmyndir eða ábendingar þetta gæti verið? Millikassinn? Drifskaftið? Handbremsan? Bremsurnar? Legurnar? Hásingin?
kv, Ásgeir
22.01.2006 at 20:34 #197131Sælir,
Ég er með 93 árgerð af Patrol í pössun, þannig er mál með vexti að þegar honum er startað á morgnanna eftir kannski 10 tíma hvíld og svo ætlar maður að aka af stað þá er hann rosalega tregur af stað, það er eins og það sé einhver spenna í afturdrifinu. Svo þegar hann er orðinn heitur og maður er á ágætri ferð þá kemur smellur sem heyrist greinilega og þá hverfur allt í einu þessi spenna og bíllinn lætur eins og ekkert hafi verið að. Það virðist ekki skipta máli hvort hann er í 4×4 eða afturdrifinu. Hann er heldur aldrei í handbremsu yfir nótt.
Einhver sem getur bent mér á hvað ég ætti að skoða? Mig persónulega grunar að læsingin sem er orginal sé eitthvað bögg í henni en hún hefur ekki virkað í eitt ár. Eða eitthvað annað…endilega kommentið á þetta.
kv, Ásgeir
20.01.2006 at 01:10 #539440Hvernig er það? Fær mamma að fara þótt hún sé ekki konan mín og við erum ekki í staðfestri sambúð? Eða er bíllinn kannski of ljótur til að fá að fara með…ég vissi það…hann er ekki nógu kvennlegur
kv, mömmustrákurinn
18.01.2006 at 15:45 #197095Jæja þá er enn ein umræðan um veltigrindur í jeppa, þetta er nú bara komið út af því að nú hefur einn af okkar bestu alþingismönnum prófað að rúlla nokkra hringi án veltibúrs í 6m kr jeppa í ónefndri bíltegund.
Svona lítur svo bíllinn út eftir nokkrar veltur og þykir mildi að ekki fór verr. En svo var það annað sem mér fannst áhugavert var það að loftpúðarnir sprungu ekki við velturnar! Er það ekki frekar skrýtið í svona fínum jeppa? Og að þakið skuli ekki vera sterkara en þetta að það leggst gjörsamlega saman við nokkra hringi?En ég vill óska Steingrími hröðum og góðum bata. Þú ert flottastur 😉
kv, Ásgeir
18.01.2006 at 13:03 #539416Þarf að vera í klúbbnum til að fara í þessa ferð?
Mömmu langar að fara á Scoutinum mínum.
Annars eru þessar konur workaholics þannig að þetta er ekki á kláru…bara pæling hjá henni.
kv, Ásgeir mömmustrákur
16.01.2006 at 12:10 #538948það hefur allavega verið þannig frá því að ég fæddist, lengri flækjur…meira tog, er þetta búið að ganga aftur?
kv, Geirinn
13.01.2006 at 16:25 #538906já 4,7 vélin er rosalega skemmtileg…skítvinnur í Wrangler jeppa(hvítur að lit) sem ég ferðaðist einu sinni með. áttu ekki myndir til að deila með okkur bensinhausunum?
kv, Ásgeir
13.01.2006 at 13:22 #538684mæli með að þú kíkir í bílabúð benna og skoðir IPF kastarana þar, allavega er ég mjög ánægður með mína.
kv, Ásgeir
13.01.2006 at 13:00 #538902ég var í sömu sporum og þú fyrir ári síðan, ég fór til Einars áttavillta og hann sagði mér að það kostaði 65.000kall að smíða þessar flækjur(fyrir 8 cyl), ég pantaði þetta bara á summitracing, og svo lét ég sigga í bjb gera rest flækjur(25.000)+púst(18.000)=43.000fyrir allt systemið er skárra heldur en 65þús bara fyrir flækjurnar. Siggi í BJB er líka einn sá allra besti í bransanum að mínu mati…og ekki skemmir að verðin eru mjög góð miðað við aðra.
kv, Ásgeir
11.01.2006 at 16:12 #538488ég myndi mæta ef slíkt námskeið væri haldið. Og já endilega henda þessu á .pdf
kv, Ásgeir
11.01.2006 at 01:36 #538462ég fór uppá lyngdalsheiði á sunnudagsnóttinni að ná í bilaða Toyotu, það var enginn snjór þarna að viti, bara drulla og leiðindi. Gæti hafa skánað síðustu daga, það var ansi heitt þarna um helgina.
kv, Ásgeir
09.01.2006 at 18:48 #197012Jæja elskurnar mínar…smá status tjékk…hvað er að frétta? Eitthvað í gangi þessa dagana? Eitthvað nýtt í gangi? Eitthvað sem við getum gert?
Annars langaði mig til að viðra villu sem ég fékk þegar ég gleymdi einum gæsalöppum og spjallið leyfði mér ekki að laga það
Ferðaklúbburinn 4×4 – 7010891549 – Pósthólf 8948 – 128 Reykjavík – 5684444
Geðveikt góð síða!
09.01.2006 at 18:42 #538294Hvernig er það Baldur, ef ég panta þetta á netinu…fæ ég þá móðurborðið sent til mín með nafninu þínu á því eða er það aukahlutur 😉 Sjá myndina [url=http://www.foo.is/gallery/ecu/mspcb0001:wl7ad5zu][b:wl7ad5zu]Hérna[/b:wl7ad5zu][/url:wl7ad5zu]
Er þetta ekki örugglega móðurborðið? eða er þetta einhver heimatilbúinn processor?
kv, Ásgeir
09.01.2006 at 18:36 #538292Hvernig er það Baldur, ef ég panta þetta á netinu…fæ ég þá móðurborðið sent til mín með nafninu þínu á því eða er það aukahlutur 😉 Sjá myndina
09.01.2006 at 15:32 #538218Mér finnst það frekar asnalegt að slíkt sé bannað því það stendur í reglum að þú verðir að vera með stöðuljós á bílnum, hins vegar stendur líka að það sé bannað að keyra með kastara með engri hlíf yfir innanbæjar.
En nú er annar hver flutningabíll með svona kastara með stöðuljósi. Nú eru þeir ekki stoppaðir hvorki fyrir þetta né það að vera með kastara á þakinu.
Af hverju er bara verið að væla í okkur jeppamönnum?
09.01.2006 at 14:59 #538214Þar sem ég er með 30 ára gamlan bíl þá eru voðalega fá lög sem ganga yfir hann.
Annars nota ég þennan jeppa bara þar sem löggan er aldrei 😉
En takk fyrir þetta Kári ég býst við að flytja þetta bara inn sjálfur vegna verðs í OkurNaustikv, Ásgeir
08.01.2006 at 18:15 #538288…er bara tölvustýrð innspýting sem þú býrð til sjálfur, þú kaupir bara móðurborð og skynjara og svo prógrammar þú sjálfur loftflæði, bensínflæði, kveikjunni svo dæmi séu tekin, svo tengiru bara fartölvuna við megasquirt móðurborðið og getur haft nokkrar stillingar á hversu kraftmikinn þú villt að bíllinn þinn sé. Svo geturu keypt þér bara lítinn skjá sem þú hefur í mælaborðinu sem kallast MegaView þar sem þú sérð nákvæmlega hvað allir skynjararnir segja eins og t.d súrefnisástand, kveikju og hita. Sem sagt segir þér hvernig vélinni líður.
Þetta er algjör nördabúnaður og mig langar bara að læra hvernig þetta virkar og setja þetta í jeppann.
Þetta er svona í megindráttum það sem megasquirt gerir en það er til alls konar dót í þetta.dótakveðja, Ásgeir
08.01.2006 at 02:16 #538284þetta á að fara á elsku 318 vélina sem ég er að gera upp, ég er að skipta um allt í henni og langaði að prófa innspýtingu. Ég verð vonandi með MSD kveikju.
kv, Ásgeir
-
AuthorReplies