FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Ásgeir Halldórsson

Ásgeir Halldórsson

Profile picture of Ásgeir Halldórsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 381 through 400 (of 472 total)
← 1 … 19 20 21 … 24 →
  • Author
    Replies
  • 05.05.2004 at 02:19 #501307
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sælir,

    Ég telst vera ungur, en er reyndar að mínu mati frekar reyndur. Það er gamla kallinum að þakka og er greinilegt að þeir hafa ekki fengið álíka uppeldi og ég og er greinilegt að þeir hafa enga þekkingu í þessum "bransa".
    Við sem erum á milli 17 til 20 og teljumst því ungir horfum ekki á fréttirnar eins og þið flestir, en þessi lokun var einmitt bara auglýst hér, vef vegagerðarinnar og í fréttum í útvarpi og sjónvarpi. En þetta skilti þarna sem þeir keyra framhjá og sumum fannst vera ófyrirgefanlegt höfum við hérna flestir keyrt framhjá enda er þetta skilti þarna alltaf yfir vetrartíman og meiripart sumars.

    Ég tel að það sé hægt að ná tali af þessum hópi sem er að byrja í þessu, en þessi hópur hlustar ekki ef það er gert með hótunum um að hengja þá á kúlunni eins og einn skrifaði. Þið verðið að taka soldið tillit til þess að við erum ungir og vitlausir og hugsum um fátt annað en stelpur og áfengi. Þið hljótið að kannast við þetta sjálfir. Einhvertíman hljótið þið að hafa verið ungir, óupplýstir og á 200km hraða inní ellina!

    En það er bjartara hinumegin við hæðina og það er hægt að koma í veg fyrir þetta.

    Kv, Ásgeir





    04.05.2004 at 01:59 #501160
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Pff ótti minn! Þú varst að kaupa þér pjattrollu númer 2 fyrir örstuttu síðan og svo núna viltu fá annan!

    En hvað um það! Ég er einmitt í svipuðum hugleiðingum en ég er samt að fara að kaupa mér Benz. Það sem ég ætla bara að gera er að fljúga til köben eða london með ónefndu lággjalda flugfélagi og þaðan tek ég lest til Þýskalands. Kaupi bílinn og keyri svo til Noregs og tek Norrænu! Þetta er LANG ódýrast og ekki amalegt að fá að prófa tækið á Autoböhnonum svona áður en maður missir teinið hérna á klakanum…samt langar mig ekkert að keyra Patrol á Autobahna 😉

    kv, Ásgeir





    04.05.2004 at 01:04 #501109
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sæll,

    Þetta er ábyggilega gaffallinn eða stýringin eða hvað sem þetta heitir nú! En ég myndi bara rífa hann úr og þá kemstu fljótt að því. Það er minnsta mál að rífa þetta í sundur!

    kv, Ásgeir





    01.05.2004 at 23:00 #500752
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Auðveld leið til að fjarlægja ryð:

    Skref 1: Ef þetta er bara smá ryðbóla sem er að myndast er best að kaupa bara stykki með járnþráðum sem passar á borvél og mökkpússa helv… ryðblettinn þangað til að þú sérð EKKERT ryð þá er ég að tala um að þú verður að pússa þetta þangað til að járnið líti út eins og nýtt!

    Skref 2: Taka juðara og pússa ennþá meira og lakkið í kring.

    Skref 3: Ef þú vilt ekki sprauta allan boddíhlutinn skaltu afmarka svæðið og teipa dagblöð við boddíið og þá búa til ferhyrnt svæði í kringum fyrrv. ryðblett 😉 …

    Skref 4: Sprauta grunn á…2-3 umferðir

    Skref 5: Sprauta lakki á…3 umferðir

    Skref 6: Sprauta glæru á minnstakosti 5 umferðir ef þú ert bara með spreybrúsa!

    Þarna ertu kominn með þetta í grófum dráttum svo massabónaru bara samskeytin ef þú sprautar ekki allan boddíhlutinn og það tekur enginn eftir þessu 😉

    Vona að þið hafið skilið þetta 😉

    kv, Geiri Gúrka





    28.04.2004 at 19:08 #500291
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Mér finnst að félagsgjöld allra ættu einmitt að fara í hendurnar á Patrolman!





    28.04.2004 at 19:05 #500341
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Daginn,

    Icemoto: Mér finnst nú erfitt að standa með krosshjólamönnum þegar maður les fréttir dag eftir dag um að löggan hafi verið að stoppa krosshjólamenn í akstri utanvega og að þá hafa þeir flest allir stungið af án þess að taka afleiðingunum eins og menn!

    Þið getið alveg farið í sandgryfjurnar hérna á höfuðborgarsvæðinu og í kring og spurt gæjana sem vinna þar hvort þið megið ekki leika ykkur því ég veit það að þeir leyfa ykkur það ef þið spyrjið og talið við þá eins og menn!

    kv, Geiri Gúrka





    27.04.2004 at 16:55 #500361
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Þessi grein var mér erfið lesturs og ég fór nánast að gráta yfir þessari vitleysu í Hreggvið sem hefur greinilega aldrei stigið fæti í jeppa. Mér finnst nú ólíklegt að umferðarstofa taki nú mark á þessari vitleysu ég held að þeir séu gáfaðari en það. En hver veit…fólk útí bæ trúir öllu sem það les!

    kv, Geiri Gúrka





    25.04.2004 at 04:24 #499780
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sælir,

    Ég er sammála ykkur öllum hérna eins og þið segið allir að við þurfum að eiga fund með öllum sem koma að þessu máli.

    En svo kom Jón Snæland einmitt inná einn punkt sem ég tek alveg ótrúlega oft eftir og tala af reynslu. Það er þetta með túristaökumenn sem eiga 44" Patrol eða Econline. Þeir keyra eins brjálæðingar! Þeir sprauta upp Ártúnsbrekkuna á 110-120km hraða og eru oft allt frá 10-30 bílar og allir í röð! Ég er ekki stoltur að vera jeppamaður þegar ég sé svona! Þetta eru flestir fullþroskaðir karlmenn á aldrinum 30-40 ára og allir greinilega með áberandi lítið sjálfstraust miðað við þessa keyrslu þeirra. Svona "kallar" með svona mikilmennsku brjálæði…mér bara blöskrar við að sjá þetta því ég keyri einmitt sjálfur útlendinga við og við en er ekki í samfloti við þessa egóista!

    Mér finnst ekki skrýtið að fólk stimpli okkur sem einhverja brjálæðinga þegar það sér 44" Patrol bruna framhjá sér á 90km hraða á 2m breiðum malarvegi! Því ég hef sjálfur lent í þessu og voru þeir vel merktir ónefndum fyrirtækjum…en að mínu mati er það ekki góð auglýsing!
    Og svo þegar maður ætlar að tala við þessa kalla þá klóra þeir sér bara í pungnum og gefa í skít í mann! Mér finnst að það mætti alveg taka á þessu vandamáli fyrst við erum að spjalla á þessum nótum!

    Krossararnir aftur á móti munu ávallt nota þá afsökun að það sé ekki til neitt svæði sem þeir mega leika sér á. Þannig að það þýðir ekkert að ræða við þá fyrr en þeir fá sitt leiksvæði.

    Svo er aftur annað mál með akstur á Mýrdalsjökli. Þar er ekkert mál að tala við hann Benna og segja honum hvað maður ætlar sér að gera og hann gefur manni leiðbeiningar því hann tekur ekki mikið pláss þarna á jöklinum og er mjög fínn kall ef maður tala við hann eins og maður.

    En af hverju er ekkert talað um hestamenn þegar talað er um landspjöll? Það fólk sem bendir bara á jeppamenn þegar það er talað um landspjöll, það hefur greinilega ekki farið út fyrir bæjarmörkin því þetta er að mínu mati gífurlegt tjón sem þeir valda!

    kv, Ásgeir
    R-3010





    18.04.2004 at 23:49 #499233
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Já ég er sammála ykkur um það að þetta er hrein og bein árás á okkur jeppamenn og auðvitað er það sorglegi hlutinn af þessu að ókunnugt fólk úti í bæ trúir þessu bulli.

    Þetta með "fúskarana" ég hef ekki orðið var við, að vinir mínir eða aðrir séu að breyta jeppum sínum í einhverju flýti. Því auðvitað gera allir sér grein fyrir því að stærri dekk auka álagið…en auðvitað skiptir maður um það sem maður veit að mun brotna eða þolir ekki álagið! Ekki set ég stýrisdælu úr Suzuki Vitöru í Scoutinn! Því það vill enginn að eitthvað brotni uppá miðjum Langjökli.

    Voðalegar árásir eru þetta á okkur jeppamenn þessa dagana! Hvað gerðum við til að verðskulda þetta?

    kv, Ásgeir kenndur við Agúrku





    16.04.2004 at 18:08 #499045
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sæll,

    Ég notaði bara Mobil 1 á mína pjattrollu. Það virkaði vel hjá mér, ég fann töluverðan mun. Líka endist hún lengur en venjulega olían.

    kv, Ásgeir





    14.04.2004 at 15:54 #498598
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Mitt álit er það að þessi sem spólaði í hring rétt við Langaskafl var líklegast ungur drengur sem er nýbúinn að fá þennan svakalega ameríska kagga og vildi sýna sig.

    Ég á líka amerískan kagga og ekki er ég að keyra utanvegar. En það er af því að pabbi gamli er/var mikill jeppakall og kenndi mér að umgangast móður náttúru!

    Eins og ég segi þessi sem gerði kleinuhringinn við hliðina á veginum er kannski ekki óþroskaður. Frekar skulum við nota orðið fáfróður og vissi ekki betur! Af hverju ekki að leiðbeina og koma þannig í veg fyrir að svona lagað gerist í staðinn fyrir að banna okkur sem ekki erum orðnir 20 ára að eiga jeppa.

    Bensínkveðja, Ásgeir





    11.04.2004 at 17:29 #498004
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Hugi.is





    11.04.2004 at 16:57 #497986
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Það er eitthvað sem þið ættuð að hugsa um því þetta tekur tíma að laga og ekki fær hann borgað fyrir þessa vinnu! Það eru páskar og því ætti hann(vefstjórinn) eins og allir aðrir að fá að vera í fríi því það deyr enginn þótt þú setjir ekki myndirnar þínar inn í dag!

    Mér finnst hann standa sig ágætlega miðað við allt það álag sem við leggjum á þennan vef með endalausum skrifum og myndaáfyllingum!

    Sýnið aumingja manninum smá tillitsemi þótt hann taki sér frí eins og þú og allir aðrir eiga rétt á!

    kv, Ásgeir





    04.04.2004 at 01:26 #495343
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Ég skora á ykkur alla að senda henni Sif okkar Friðleifs email siv@althingi.is ég er búinn að gera það og ég vona að ég verði ekki sá eini því annars tekur hún ekkert mark á mér!

    kv, Ásgeir





    04.04.2004 at 01:26 #502672
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Ég skora á ykkur alla að senda henni Sif okkar Friðleifs email siv@althingi.is ég er búinn að gera það og ég vona að ég verði ekki sá eini því annars tekur hún ekkert mark á mér!

    kv, Ásgeir





    03.04.2004 at 16:27 #495523
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Þetta er alveg satt hjá ykkur. Þótt ég sé sjálfur á bensínbíl þá kemur þetta líka niður á mér því ég ætlaði að setja díselvél í kaggann í sumar en núna er ég ekki á þeim buxunum.

    Glanni: Ég átti líka Patrol óg það var það besta við þetta er að dagstúr eða helgartúr kostaði ekki nema 5000 kall, þá var maður að sprauta upp á fjöll án mikils fyrirvara. Núna þurfiði að fara inná heimabankann og kanna hvort þið eigið efni á því að eyða 20.000kalli í helgarferð.
    En jú fólksbílum með díselvélum eiga eftir að fjölga um helming um leið og þetta frumvarp verður samþykkt. Og á móti fækkar jeppum uppá fjöllum sem að mínu mati er hræðilegasti hlutur í heimi og það að menn eins og þú Glanni þurfi að hætta í þessu sporti vegna þessa.

    Væri ekki málið að safnast saman í miðbænum og loka á alla umferð í kringum Alþingi það myndi koma okkur í sögubækurnar!

    kv, Geiri Gúrka





    03.04.2004 at 16:27 #502849
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Þetta er alveg satt hjá ykkur. Þótt ég sé sjálfur á bensínbíl þá kemur þetta líka niður á mér því ég ætlaði að setja díselvél í kaggann í sumar en núna er ég ekki á þeim buxunum.

    Glanni: Ég átti líka Patrol óg það var það besta við þetta er að dagstúr eða helgartúr kostaði ekki nema 5000 kall, þá var maður að sprauta upp á fjöll án mikils fyrirvara. Núna þurfiði að fara inná heimabankann og kanna hvort þið eigið efni á því að eyða 20.000kalli í helgarferð.
    En jú fólksbílum með díselvélum eiga eftir að fjölga um helming um leið og þetta frumvarp verður samþykkt. Og á móti fækkar jeppum uppá fjöllum sem að mínu mati er hræðilegasti hlutur í heimi og það að menn eins og þú Glanni þurfi að hætta í þessu sporti vegna þessa.

    Væri ekki málið að safnast saman í miðbænum og loka á alla umferð í kringum Alþingi það myndi koma okkur í sögubækurnar!

    kv, Geiri Gúrka





    01.04.2004 at 18:58 #495139
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sælir

    Ég býð mig fram ég er með einn nýlega kominn úr breytingu…það er Opel Corsa breytt fyrir 44" mjög öflugur bíll með 1400 kúbikk vél og togar circa 2500Nm við 1000snúninga! Sem sagt mjög öflugur bíll

    Jæja Benni láttu mig bara við hvort að ég hafi náð inn sendu mér mail á geðklofi@kleppur.is

    kv, Geiri Gúrka





    01.04.2004 at 18:58 #502460
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sælir

    Ég býð mig fram ég er með einn nýlega kominn úr breytingu…það er Opel Corsa breytt fyrir 44" mjög öflugur bíll með 1400 kúbikk vél og togar circa 2500Nm við 1000snúninga! Sem sagt mjög öflugur bíll

    Jæja Benni láttu mig bara við hvort að ég hafi náð inn sendu mér mail á geðklofi@kleppur.is

    kv, Geiri Gúrka





    28.03.2004 at 20:47 #194094
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Ég var að lesu um þetta á mbl.is, þar stendur að jeppi hafi oltið á Veiðivatna- og Jökulheimavegi.

    Hafiði heyrt eitthvað meira um þetta slys?





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 381 through 400 (of 472 total)
← 1 … 19 20 21 … 24 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.