You are here: Home / Garðar Árnason
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Veit einhver hvað 5,7 bensín vélin í Ram 1500 er að súpa mikið?
Ég hef verið að velta fyrir mér að láta spauta jeppann, því það er nóg eftir af honum en þar sem þetta er Hilux þá mætti alveg hressa uppá hann. Getur einhver mælt með einum stað frekar en öðrum? Bæði hvað varðar gæði, þjónustu og verð (maður vill auðvitað fá allt fyrir ekkert)? Og hvað haldiði að maður ætti að búast við háum reikning, ef vel á að vera?
Kv.
Ég er með Toy Hilux og það er frekar pirrandi vandamál að hrjá hann. Þurrkurnar ganga ekki í „letingjanum“ en hinir tveir hraðarnir virka, nema að ég þarf að stoppa þær sjálfur til þess að leggist á botn gluggans. Einhver ráð um hvar ég ætti að leita að bilun?
Halló!! Ég er með Hilux 92 2,4 bensínbíl. Hann er að hegða sér undarlega, Hann kokar og allur kraftur deyr niður þegar ég gef honum inn, hikstar og hóstar útúr sér svörtum reyk. En malar eðlilega í lausagangi. Ég lullaðist heim í lágadrifnu á gönguhraða, því annars stoppaði hann. Hvað haldiði að þetta geti verið?