FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Frank Þór Franksson

Frank Þór Franksson

Profile picture of Frank Þór Franksson
Virkur síðast fyrir 10 years, 4 months síðan
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)
  • Author
    Replies
  • 26.01.2015 at 14:56 #776310
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Ég talaði við Gumma hjá Esjugrund og hann smíðaði lofttjakk aftan á læsibúnaðinn í staðinn fyrir vakúmdósina. Þetta virkar alveg frábærlega, það þarf bara eina loftslöngu en það er gormur sem smellir gaflinum til baka þegar þrýstingur er takinn af. Slangan á myndinni er bara til að prófa hvort læsingin virkaði eftir að ég setti þetta saman, ég á eftir að ganga frá loftlögnum.

    Verð á svona búnaði frá Esjugrund er 50.000 kr + VSK en þeir partasalar sem ég talaði við vildu fá 40-80.000 kr fyrir orginal vakúmbúnaðinn.

    Ef þið eruð einnig í vandræðum með þennan vakúmbúnað, prófið þá að tala við Gumma í Esjugrund, http://www.esjugrund.is

    Viðhengi:
    1. DSC_0353
    2. DSC_0363




    29.12.2014 at 20:02 #775489
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Ég er með Y60 Patrol og afturlæsingin er að hrekkja mig. Þegar ég tengi vakum slöngu beint inn á aðra slönguna að læsingu þá fæ ég sog úr hinni. Þ.e.a.s. það er væntanlega komið gat á membruna í dollunni á hásingunni. Mér tókst reyndar með nokkru brasi að setja læsinguna á en ætlaði aldrei að ná henni af aftur (þurfti að blása til að ná henni af).

    Ég er búinn að leita eins og óður hjá ebay og Ali en finn ekki svona membru. Væntanlega er ómögulegt að finna aðra nema á partasölu. Hvað hafa menn verið að gera þegar þessi membra gefur sig? Hefur einhver sett lofttjakk eða annan skemmtilegan búnað fyrir læsinguna? Hefur einhver reynslu af svona?





    20.01.2014 at 13:02 #444415
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Það vantar stk hjá mér. Ég tek eina stöð.





    20.12.2013 at 14:55 #442071
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Ég rakst á Icom stöð á ebay sem kostar 79 dollara og frí heimsending. Ég fór á reiknivélina hjá tollur.is og sá þar að innflutningur á talstöðvum væri háður leyfi Póst&Fjarskiptastofnunar. Ég hringdi í þá til að athuga hvað þyrfti að uppfylla. Stöðin virðist vera amatörstöð og sögðu þeir að ég þyrfti að fá notkunarleyfi en það væri bara eyðublað sem ég þyrfti að fylla út. Þar fyrir utan þyrfti stöðin að vera CE merkt, annars yrði hún endursend.
    Ég sendi því fyrirspurn til kínverjanna, hvort stöðin væri CE merkt. Þeir svöruðu strax:

    Dear customer
    Thank you for your email .
    We can mark that for you .
    Any questions pls feel free to contact us .
    Best wishes
    Zoe

    Ég er enn að hugsa málið :)

    http://www.ebay.com/itm/THE-NEW-ICOM-IC-V85-7W-VHF-136-174MHz-Two-way-radio-Handheld-transceiver-/221262836589?ssPageName=ADME:X:eRTM:US:1123





    17.10.2013 at 16:02 #379338
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Það sem gerir jarðstreng svo miklu dýrari er m.a. að setja þarf upp búnað á tíu kílómetra fresti. Þetta er fyrirferðalítill búnaður og getur vel verið niðurgrafinn, a.m.k. að hluta. Það þarf að vera gott aðgengi að þessum búnaði vegna viðhalds o.þ.h. og þess vegna þarf að vera vegur eftir strengnum. Það má heldur ekki gleyma því að það þarf að gera veg til að leggja strenginn sem er fær flutningabílum o.s.frv. Sá vegur yrði svo þjónustuvegur strengsins.
    Kannski snýst lagning línu yfir hálendið m.a. um það að koma orku frá virkjunum á suðurlandi að stóriðju á Bakka. En hún snýst líka um rekstraröryggi dreifikerfisins.





    15.10.2013 at 09:30 #379412
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Tryggingafélagið hlýtur að þurfa að sýna fram á „stórkostlegt gáleysi eða ásetning“ og þar með að sanna að bíllinn sé ekki valtari en aðrir bílar.
    Sá sem höfðar mál þarf að sanna sitt mál. Það segir sig sjálft að það er ekki hægt að fara í mál við einhvern og heimta bætur, og ætlast svo til þess að hinn aðilinn afsanni kröfuna.





    18.02.2013 at 08:44 #763703
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Ef þig langar sérstaklega í Mobil 1 olíu á þá sá ég þannig í Bauhaus mun lægra verði en annarsstaðar. Mig minnir að þetta hafi verið Long Life útgáfan.





    07.01.2013 at 21:14 #762399
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Ekki í fyrsta skipti sem maður sér Patrol ryðja leiðina fyrir Landcruiser og örugglega ekki það síðasta :)





    22.05.2012 at 16:30 #754371
    Profile photo of Frank Þór Franksson
    Frank Þór Franksson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 27

    Ég er nýgenginn í klúbbinn og tók þessum afslætti fagnandi. Ég hef keypt dísil hjá Orkunni og fengið umræddan afslátt. Hinsvegar keypti ég 95 oktan bensín á annan bíl sem ég á hjá Skeljungi við Vesturlandaveg í gær. Þegar ég er að keyra frá dælunni þá dettur mér í hug að sannprófa afsláttinn…

    …og afslátturinn var 1 króna, þetta er ekki stafsetningarvilla, verðið á dælunni var einni krónu lægra en verðið á skiltinu við veginn..!!!!!





  • Author
    Replies
Viewing 9 replies - 1 through 9 (of 9 total)

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.