Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.01.2004 at 00:57 #483986
Vondar sögur…
Ég fór þrisvar á Snæfellsjökul hérna eitt árið og þeir litu á mig eins og ég væri einhver leiðinda kall. En þegar ég sagði [i:ykh4lp52],,Góðann daginn, er ekki gott færi á jöklinum? Veistu hvar er best að komast upp?“[/i:ykh4lp52] Þá kom allt annað hljóð í starfsmanninn og hann sagði mér fréttir af sprungum og snjóarlögum. Bað hann mig góðlega að keyra ekki yfir hina troðnu braut sem óvana sleðafólkið fer til að komast upp á jökul. Mér fannst ekkert sjálfsagðara.
Ég held að þetta fari svolítið eftir því hvernig farið er að fólki. Með góðu og þægilegu viðmóti er oftast hægt að komast hjá leiðindum.
Kveðja Fastur
05.01.2004 at 14:37 #483336Ég hef séð eytt hvell springa.
það rifnaði 3/4 af hringnum.
Kveðja Fastur
05.01.2004 at 11:02 #482988Sæll jk
Ég hitti einu sinni mann á Hveravöllum sem ég spurði hvort að hann ætlaði ekki inn í skála til að gista. Þá sagði hann[i:3llhe8f5] "Nei nei ég er á þessum (og bennti á svakalega stóra toyotu). Á hvaða bíl ert þú?"[/i:3llhe8f5] og þá sagði ég [i:3llhe8f5] "Ég er á þessum blá wrangler þarna."[/i:3llhe8f5] og þá mælti hann þessu fleygu orð [i:3llhe8f5] þú ert einn af þeim já" [/i:3llhe8f5]. Þegar ég fór að grenslast fyrir um hvað var að vera einn af þeim þá sagði hann [i:3llhe8f5]" þegar maður er einhvað að dunda sér áfram koma þú og þínir líkir alltaf á einhverju farti og hverfa síðan bara meðan maður lullar áfram."[/i:3llhe8f5]
Sem er alveg rétt. Ég var í var farþegi í hóp á dísel bílum á leið eftir langjökli þegar við sáum svona koma við hliðina á okkur nokkra wrangler/willys jeppa og ég hugsaði með mér. Það verður gaman að heyra hvaðan þeir komu. En viti menn þeir þutu framhjá okkur langt fyrir framan og okkur. Við sáum þá bara í smá stund.En annars helstu kostir við willys/wrangler er yfirleitt að hann er léttur og sterkur. Það er ekki mikið mál að breyta honum fyrir hvaða dekkjastærð sem er og það er endalaus reynsla í því hverju á að breyta og hverju ekki.
Mikil kostur er síðan að þessir bílar eru með 242 (4L) vélum eða stærri sem gerir þá að skemmtilegum leiktækjum. Maður hefur heyrt um að menn fari þetta á TDC 2.4 dísel bara á lullinu en það er bara ekki jafn gaman að ég held. Síðan virðist virka mjög vel í brekkurnar að geta sparkað bílnum af stað upp. þessir löngu bílar fara betur með farþegana en ef maður vill að manni líði rosalega vel getur maður bara verið heima.
Já og svona smá grobb.
Ég var á ferð með góðum 2.4 dísel félögum eftir langjökli í blíðskapar veðri og allt gékk í lyndi. Og ég hélt svona sæmilega áfram ekkert að flíta mér. Þegar ég tók allt í einu að vinir mínir í speglinum voru orðnir pinku littlir svartir depplar. Ég var að bíða dá góða stund eftir að þeir náður mér. Þetta var ekki í fyrsta skiptið sem þetta gerist.
Síðan hef ég lennt í því líka að vera með ekki nógu langann bíl og ekki nógu niðurgírað og aflvana vél til að komast áfram.
Þannig í mínum augum er þetta spurningin um hversu gaman á að vera á fjöllum.
Kveðja Fastur
02.01.2004 at 16:31 #483186Hvernig er það verða spíssar í bensín bílum eins við aldur?
Bara svona af því bensín vélar bila aldrei því enginn nema ég er á bensín bíl.
Kveðja Fastur.
01.01.2004 at 21:52 #483126Á hvernig bíl ertu?
Ef þú ert á wrangler/cherokee með wacum loku.
Láttu þá vita svo ég geti gefið þér nokkra punkta til að vinna út frá.KVeðja Fastur
01.01.2004 at 17:27 #483166Kæru félagar
Ég vill óskar ykkur gleðilegs nýs árs og vona að þið getið skemmt ykkur á fjöllum sem allra mest á nýja árinu.
Kveðja Fastur
29.12.2003 at 15:48 #482646Ef enginn þorir að segja frá þessu hérna getið alveg sent mér prívat póst og sagt mér frá þessu.
Ég skal ekkert gefa upp hverjir þið eru á opinberum vettvangi.
Kveðja Fastur
ps. Lúther varst þú ekki að tala um einhvern sem fór ílla út úr þessu?
29.12.2003 at 15:01 #482894He he..
Ég ætlaði að skjótast í 20 mín í hádeiginu áðan en það lengdist í 2 tíma því að ég varð að draga alla bílana sem voru fastir á leiðinni sem ég þurfti að fara.
En það er skondið hversu margir af nýjum fólksbílum eru ekki með krók að framan. Þetta er einhvað sem fólk ætti að hugsa um þegar það kaupir fólksbíl.
En farið út að leika!!!
Kveðja Fastur
26.12.2003 at 00:57 #482786Var þarna fyrstu og aðra helgina í desember.
Þá var vel fær fyrir flesta bíla.
Ef þú ert ekki á orgina dekkjum ættir þú að komast inn eftir.
Helst væri fyrir þig að bjalla í hrauneyjar og spyrja stúlkurnar hvort það hafi snjóað mikið.
Kveðja Fastur
23.12.2003 at 13:14 #482690Já þetta er með flottari gripum sem maður hefur séð.
En eins og alltaf hefði mátt skella á hann svona eins og fjórum brettaköntum.
Kveðja Fastur
23.12.2003 at 11:26 #482630Eru þær ekki bara allar í pörtum hjá jamel og hinar bilaðar?
Kveðja Fastur
23.12.2003 at 09:55 #482736Sæll Peve
Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að það sé rás 9.
En annars hef ég ekkert meira fyrir mér en það að flestar talstöðvar koma í gang á 9 hafi þær mist straum og af afspurn.Kveðja Fastur
23.12.2003 at 09:52 #482642Það var eins og ég hélt.
Fólk á bensín bílum þarf greinilega ekkert að spá í svona hluti því það er svo gaman að vera á bensín bíl.
Einungis meistara grútarbrennarar lýkt og Teddi Töffari þekkja stemminguna um að láta bílinn sparkast áfram.
Kveðja Fastur
22.12.2003 at 14:12 #193323Sælir félagar
Ég var að velta fyrir mér (aftur) hvort einhver hefði prufað þetta í bensín bíl. Mér er alveg saman hvort grútarbrennandi togítur nái loks í hundrað eður ei. Það er búið að ræða heillmikið um það.
Gaman væri að fá einhverjar tölur eða tilfinningu.
Ég hef lesið um airraid búnaðinn sem á að gera það sama og menn í útlöndum eru ánægðir með hann.Svo ég svari Lúther strax .. meira afl og minni eyðslu bíllinn minn eyðir ca jafn miklu til 10% meira heldur en grútarbrennari í sömu ferð.
Kveðja Fastur
11.12.2003 at 13:53 #482514Theodor
Sæll minn galli ég er búinn að laga netfangið núna.
Nennir þú að senda þetta aftur á:
Kveðja Fastur
10.12.2003 at 16:05 #482486[b:2vo8g10p]Theodor skrifaði
—
[i:2vo8g10p]Uppsetningin var þannig að ég var með of lítin samslátt en núna með 16 cm samslátt og 14 cm í sundur.[/i:2vo8g10p]
—[/b:2vo8g10p]Er samslátturinn með því sem samsláttarpúðarnir leggjast saman?
Það væri gaman að fá 3d og skurðar skrárna á fastur@nt.is
Kveðja Fastur
10.12.2003 at 15:02 #193308Sæll Theodor
Ég var að skoða myndirnar af breytingunni sem þú ert búinn að vera gera á bílnum þín.
Þykist ég sjá að þú hafir verið með loft púða og sért búinn að skipta yfir í gorma.
Er einhver góð og gild ástæða fyrir því að þú gerir þetta eða langar þig bara til að prufa?
Kveðja Fastur
09.12.2003 at 15:23 #482404þarf hann þá bara að vera 2,4?
😉
Kveðja fastur
09.12.2003 at 09:39 #482288Sæll Nonni
Fáðu þér þann geymi sem er stæðstur í amperstundum og passar í geyma sætið hjá þér. Ég keypti mér 110 amperstunda geymi hjá shell. Geymirinn er með einhverju nauti framan á og svín virkar. Hann hefur ekki enn svikið mig í miklum kuldum á fjöllum og fer létt með að snúa 4 lítra línuvél.
Kveðja Fastur
02.12.2003 at 00:33 #481854Hafðu samband við go4it hérna á vefnum.
Hann er búinn að því og segir það svín virka.Kveðja Fastur
-
AuthorReplies