Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.09.2009 at 01:31 #655892
Nobiltech er fínnt forrit til að keyra eftir.
En besta ferla/keyrslu forritið sem ég hef prufað er maxSea það er bara skrambi dýrt.
06.08.2009 at 13:10 #653384Í mínum ferða hóp virðist jeppamenskan ekki vera að detta upp fyrir enda lítið um kúlulán og aðrar slíkar hamingjur þar á ferð.
Fyrst menn eru að væla undan bensínverðinu þá kostar helling líka að gista lengri tíma í skálum á veturnar og allt þetta blessaða grill stand kostar líka sinn aur.
Það má ná niður þessum kostnaði með því að vera í f4x4, útivist og FÍ. Ég held ég hafi sparað 20-30 þúsund á viku ferðalagi með því að vera gildur limur í þeim.
Kveðja, Fastur
04.08.2009 at 19:58 #653022Ekki ætlarðu að fara að hreyfa trukkinn þinn?
05.05.2009 at 23:05 #640702Hann ofsi er svo jákvæður að manni verður stundum íllt af því að umgangast hann.
Trú hans á vefmálum er slík að maður tárast við að hlusta á hann.
Ofsi sem forseti…
12.03.2009 at 21:05 #643184Varðandi aksturslag:
Einn í bíll… Allur farangur í loftinu á fleygi ferð tilbúinn að verða fastur, brjóta allt og bramla. Stoppað til að gista og millfæra bensín.
Með kærustunni… hægar sem hellings ferð og fjör farangurinn oftast á golfinu í skottinu. Stoppað til að éta nesti.
Með soninn með… Keyrt varlega eins og ég sé að fara um svæðið í fyrsta skiptið. Farangurinn flýgur ekkert. stoppað á 1-2 klst fresti. Í staðinn hlæja allir ferðafélagarnir góðlátlega að mér og spyrja hvort ég sé lasinn.
Til að byrja með valda þau ekki haus og þá skorðar maður hann létt í stólnum og hagar akstrinum þannig að þau sitji vel og kjurr. Síðan þola þau meiri og meiri hossing eftir því sem þau eldast.
En varðandi Reykjavík-Akureyri þá eru gjarnan vegirnir upphækkaðir og skurðir meðfram þeim. Þar rekst ég oftast á bíla sem eru búnir að lenda út af og oftar en ekki ofan í þessa frábæru skurði til að ræsa tún.
Maður metur síðan ferðirnar og reddar sér pössun ef stefnan er á háskaför í brjáluðu veðri.
11.03.2009 at 11:24 #643140Maður verður að meta þetta.
Við erum stór hópur og höfum verið með litlubörnin á ferðalagi niður undir 3ggja vikna.
Eftir því sem ég best veit eigum við öll börnin enþá.
Hvað með öll börnin sem fara Reykjavík til Akureyrar án stopps?
Kveðja, Fastur sem er farinn að telja börn
28.02.2009 at 21:39 #639566Það ku hafa verið hrikalega gott veður á jöklinum í dag.
Frúin bjallaði og sagðist síðan ekki nenna að tala við mig því það var því að það var of gott veður til að hanga inni í bíl.
Kveðja, Fastur
17.02.2009 at 16:50 #640480Ég hef heimildir því að meira hafi gerst í að klippa fyrir dekkjum.
Er ekki málið að setja myndir af því á netið?
10.02.2009 at 19:38 #640492Ef maður er með þannig settup að maður getur aftengt hliðarstífuna er þetta á 4,5 link ?
10.02.2009 at 19:29 #640488Ef þú ætlar að nota þrýstinginn á kútnum til að fá ARB loftlás til að læsa ca 8 bar.
Annars bara svona 6-7.
10.02.2009 at 16:37 #640478Ég hef það eftir traustum fréttum að hann verði á chrome felgum á beadlocks .. af því beadlock eru svo 2008.
[img:1ga9p7f1]http://image.4wheeloffroad.com/f/9227910/131_0609_01_z+interco_54_inch_tire+kid.jpg[/img:1ga9p7f1]
02.02.2009 at 22:22 #638026Teddi þetta eru flottar myndir hjá þér.
takk fyrir að skella þeim á netið..
01.02.2009 at 21:35 #638008Þá er liðið sem fór heim sólheimahöfðann komið í bæinn.
Ég þakka öllum fyrir frábært blót.
Pottþétt stemmingin og allir í sínu besta formi.Sungið, dansað og spjalla langt fram undir morgun.
Allir ræstir kl 10:30 og byrjað að skúra 11:00 allir farnir ca 12.
Ef að þorrablótin ætla að fara að ganga svona vel verður að fara að endurskoða þetta fyrirkomulag.
Kveðja, Fastur.
30.01.2009 at 11:32 #638004Jæja fyrst lotan er alveg að fara að leggja af stað.
Ég hef það reyndar fyrir víst að það sé ekki gott að leggja svona snemma af stað. Þeim mun fyrr sem menn hafa lagt af stað með matinn hefur gengið verr á leiðinni.
Bara sem betur fer er Teddi á toyotu ofur trukk þannig að það ætti að vera snjólaust þegar hann er búinn að fara yfir. Því slíkur ku hraðinn vera á kvikindinu að kjöldsogið hafi með sér allann snjóinn uppeftir. Og ekki verður það vera fyrst Maggi GO4IT veður að spyrna við hann.
Kveðja, Fastur
30.01.2009 at 09:41 #639064Er svo mikil kreppa að þeir sem vældu undan því að hafa ekki efni á bensíni til að komast í Setrið, hafa heldur ekki efni á því að komast á höfðann.
Mér finnst þetta magnað.
Kveðja, Fastur sem er búinn að pakka í bílinn og bíður eftir því að klukkan slái 12
28.01.2009 at 16:25 #637992Já við förum úr bænum þá….
Stefnum að því að sníkja kaffi í Knarrarholti á leiðnni.
Kveðja, Fastur
28.01.2009 at 15:42 #637988Miðað við aflið í ykkur gæti ég þurft að leggja af stað í kvöld svo við getum rennt saman í hlaðið á Hrauneyjum.
En við leggjum af stað ca kl 12 á föstudaginn.
Þannig að svona 92% niðurskrúfun væri fín svo við héldum að við ættum einhvern séns í ykkur .Kveðja, Fastur
28.01.2009 at 12:01 #637982Uss það er ömurlegt að sjá allt þetta hvíta úti um allt.
Maður er að verða vitstóla úr ferðalöngun, maður er meira að segja byrjaður að týna til ferða dótið.
Ég er alveg viss um að bæjarblótsfararnir séu farnir að hugsa til Strætisvagna ehf. nú þegar.
Kveðja, Fastur
27.01.2009 at 12:55 #639102Takk kærlega fyrir að láta mann vita. Mig hefur oft vantað að komast inn í smá stund og alveg verið til í að borga fyrir það.
Er þetta svona bil inni þannig að maður er þurr og ekki að frjósa?
Kveðja, Fastur
27.01.2009 at 11:05 #637976Vegna hættu á blíðviðris vil ég benda mönnum/konum/börnum á að hafa með sér sólvörn.
Skv vedur.is þá lýtur þetta ekki ílla út
[img:n7g26r0a]http://birkir.nt.is/myndir/stakar/setur-vedur.png[/img:n7g26r0a]
og snjódýptin ætti ekki að vera neitt rosalega að stríða okkur
[img:n7g26r0a]http://www.vedur.is/athuganir/sjalfvirkar/setur/snd_1d.gif?[/img:n7g26r0a]
Kveðja, Fastur blótsfari..
-
AuthorReplies