You are here: Home / Eyjólfur Ísfeld Eyjólfsson
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Er virkilega þannig að menn eru ekki að panta varahluti í bíla á erlendum síðum. T.d. orginal hluti í Land Cruiser. Ég hefi haldið að það væru fjöldi aðila sem hægt væri að panta varahluti hjá fyrir Toyota bíla.
kv
sælir,
Þjónustan við Cruser-inn hefur versnað að undanförnu hjá umboðinu, þannig að varahlutir eru ekki að fást nema með bið og veseni. Þá er alveg jafn gott að bíða eftir þessu að utan – og þá er spurningin – hvaða vefsíður og tengla eru menn að nota til að panta venjulega hluti í Toyota bíla. Það fást heilmikið af hlutum í bílinn í Usa og líka evrópu.
kv
eyjolfur
Spilið hefur ekki verið hreyft í einhvern tíma. Þegar á að hreyfa það á heyrist góður smellur í stjórnboxinu en spilið hreyfist ekki, og mér finnst það grunsamlega dautt. Ég get heldur ekki komið því úr gír, ég næ að snúa litlu sveifinni líklega hálfa leið. Ég var að spá að tengja rafmagn beint á spilið til að fara framhjá stjórnboxinu til að vera viss hvort væri bilað. Það eru 3 tengi á spilinu og ég finn ekki hvað á að tengja til að fá straum beint inn á mótor. Hann er ekki brunnin því þetta var í lagi síðast þegar það var notað. Veistu hvaða tengi taka + og – .
kveðja
eyjolfur
Ég þarf að finna einhvern sem kann á warn spil og gæti fundið út hvers vegna það er ekki að vinna hjá mér. Hver gæti verið öflugur í bilanagreiningu ?
kveðja
eyjolfur
Ég þarf að selja 4 negld og microskorin mudder dekk, hálfslitin – og fékk bara léleg tilboð í þau. Hvað getur verið eðlilegt að biðja um fyrir svona dekk. Var að spá hvort ég væri of bjartsýnn.
kv.
eyjolfur