Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
28.03.2011 at 23:41 #725001
Sæll. Svona dekk eru undir Patrol 2006 sem ég keypti í vetur. Búinn að nota hann síðan seint í janúar, svo að reynslan er ekki löng. Dekkin eru mikró skorin í miðju og hafa komið mér nokkuð á óvart, vissi svo sem ekki hverju ég átti að búast við. Á vegi í hálku og snjó er hann býsna stöðugur og á úrhleyptu utan vegar eða á vegslóða hefur verið allt í lagi. Reyndar ekki hleypt meira úr en 4-5 pund, fyrri eigandi bílsins sagðist hafa farið í 2 pund og allt í góðu. Dekkin voru ónegld, en ég lét negla þau.
Kv., Eggert
14.09.2008 at 10:38 #629298Í Kaldalóni.
19.08.2008 at 22:50 #627378Smá leiðrétting við skrif Ofsa frá 14. ágúst. Veit ekki hvort einhv. bilun hefur verið þegar hann var á ferð um Vestfirði, eða hvenær hann var þar á ferð. En, það er ágætt GSM samband á Steingrímsfjarðarheiði allri, frá fjöru til fjöru. (Sömuleiðis á mestum hluta Þorskafj.heiðar) Ekki rétt að flestir firðir í Djúpi séu án GSM, langmestur hluti leiðarinnar Hólmavík-Bolungarvík er í góðu sambandi, fá og smá göt. Barðastrandarsýsla, Bjarkalundur-Flókalundur, þar er býsna götótt, einkum austantil, mun lagast að einhverju leiti í haust. Einnig verða bætur á Dynjandisheiði, Kleifaheiði og Mikladal í haust, sama má segja um leiðina úr Borgarfirði í Dali um Bröttubrekku og um Svínadal. Þetta er prófað með handsíma, ekki útineti.
Eggert
21.03.2008 at 10:08 #605516Sælir félagar.
Ég skildi ekki alveg hvernig þessi afsláttur var, sendi um daginn tölvubréf til Skeljungs og bað um nánari skýringu (eða staðfestingu á því sem ég setti fram). Fékk svar nokkrum dögum seinna:
"Sæll Eggert.Hér eru allir okkar verðlistar.
http://www.skeljungur.is/Pages/370
Diesel kostar 154.60 afsl er 12 kr því er verið til þín 142,60 eins og þú færð út.
Þetta verð átt þú að fá hvar sem þú tekur hjá Shell.Bensínfrelsi" hjá Orkunni er gefa þér 145 kr á Ísafirði.
Það er verið að koma upp þjónustuvef hjá okkur, þar verða þessum málum gerð góð skil.
Endilega hafðu samband ef þessar upplýsingar er ekki nægjanlegar."Þetta var 13. mars kl. 09:54, verðið miðast við þann tíma.
Kv., Eggert, Í1983
02.10.2006 at 23:44 #561872Já, hvaðan er myndin? Ég þykist vera búinn að fara það oft um Þorskafjörð, Steingrímsfjörð og Gilsfjörð til að fullyrða að myndin er ekki úr neinum þessara fjarða. Öðrum stöðum sem nefndir hafa verið er ég ekki nógu kunnugur til að fullyrða neitt. Er þó sammála því að myndin er tekin í vesturátt, skv. skuggum á og við bílinn sem er nær.
Eggert Stefánsson Í-1983
-
AuthorReplies