Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
27.03.2007 at 23:01 #586026
Önd, um Önd frá Endi til Enda.
Kveðja:
Erlingur Harðar
27.03.2007 at 22:55 #586278Já Lella, það rifjaðist upp fyrir mér að ég hef fengið hraðasekt á Pattanum. Það var um 80 metrum austan við sjoppuna (þessa einu) á Vík. Ég gat þó ekki annað en gagnrýnt lögguna fyrir að væna mig um að hafa náð 65 km á þessum 80 metrum…
Sibbi, 1.3 lítra!!! Ha, þegar ég var ungur, en það eru um 30 ár síðan, óku menn á amerískum tryllitækjum, 4-5 lítra og jafnvel stærra. Þessu var ekið í misjöfnu ástandi á all nokkrum hraða og aldrei kom neitt fyrir. Núna aka unglingar á Impresum og ráða ekkert við þetta. Nútíma ökukennarar eru bara ómögulegir. (Hvernig var þetta; Róunni kennir illur árari…)Baráttukveðjur.
Erlingur Harðar
Með allt í botni, alltaf…
27.03.2007 at 18:55 #586254Já þetta líkar mér, ekki að láta deigan síga.
Jú Tryggvi það verður eitthvað jeppast um páskana, ætlarðu með okkur? Ég veit ekki hvert verður farið en eitthvað.
Varðandi hraðann þá er það nú bara þannig að Patrolinn er ekki sá bíll sem maður fær hraðasektir á utanbæjar. En á Bimmanum er alveg hægt að keyra og það er gert við góð tækifæri, veðrið skiptir þó meira máli þar.Kveðja:
Erlingur Harðar
27.03.2007 at 18:20 #586246Hvað er í gangi hérna? Eru allir að verða einhverjar kellingar eða hvað?
Það má ekki fara út í vondu veðri.
Það má ekki sprengja dekk á felgu.
Það má ekki keyra hratt.Hvað er eiginlega eftir?
Já og svo er bannað að reykja og drekka bjór…Þetta eru nú bara kellingar hérna, lífhræddir feministar…
Kveðja:
Erlingur Harðar
Sem er ennþá karlkyns!!! (Að ég held)
20.03.2007 at 15:17 #585234Orð í tíma töluð.
Kveðja:
Erlingur Harðar
20.03.2007 at 15:08 #585278Það væri gaman að heyra ef menn vita um eitthvað ódýrara en þessa frá KE. Minnir að ég hafi fengið uppgefið verð 58þús fyrir toppkassa sem er auðvitað mjög dýrt finnst mér.
Kveðja:
Erlingur Harðar
17.03.2007 at 00:40 #584750Já Benni, að líma svoleiðis miða væri snilld. En hvar fást svona 4×4 miðar? Eru þeir til? Ég veit að það eru all nokkrir sem vilja fá slíkan miða ef til væri. Ég er einn af þeim.
Kveðja:
Erlingur Harðar
17.03.2007 at 00:32 #584898Hmm… Benni M. sá ég ekki bílinn þinn á Akureyri í dag á Glerárgötu um kl: 18:00???
Kanski er ég búinn að fá mér of marga bauka…Kveðja:
Erlingur Harðar
Forvitinn!
17.03.2007 at 00:27 #584836Flott video hjá þér Þrándur, hnitmiðað og hæfilega langt.
Kveðja:
Erlingur Harðar
16.03.2007 at 14:30 #584688Eru þetta virkilega stjórnarmennirnir okkar/ykkar?
Kveðja:
Erlingur Harðarson
Sem er hryggur fyrir hönd félaga sinna.
16.03.2007 at 14:19 #584684Nei skýrslan er unnin á vegum RHA og er [url=http://www.rha.is/skrar/File/Rannsoknir/2007/Nyr_Kjalvegur_mat_a_tjodhagslegri_ardsemi.pdf:kak3ji0e]hér[/url:kak3ji0e]
Ég vil enn benda á að Jón Þorvaldur Heiðarsson sem er starfsmaður RHA er sóma maður og stofnun sinni til prýði. Það þýðir þó ekki að ég sé sammála honum.Kveðja:
Erlingur Harðar
16.03.2007 at 13:40 #584678Þetta er einhver aumingjalegasti rökstuðningur sem ég hef nokkurntíman heyrt eða lesið. Að ætla heilli stofnun verk eins manns og verk eins manns heillar stofnunar.
Ég geri ekki ráð fyrir að niðurstöður rannsókna endurspegli skoðun þess fyrirtækis sem framkvæmir rannsóknina.Ég held bara að þið Jón Snæland og Þorgeir Egilsson ættuð að skrá ykkur í Leikskóladeildina. Bara svona til að ná einhverri glóru í hausin á ykkur, það er alveg ljóst að þar er myrkur.
Kveðja:
Erlingur Harðar
16.03.2007 at 11:26 #584666Án þess að hafa lesið skýrsluna, er ég á móti norðurvegi eins og hann er kallaður.
Ég get þó alls ekki fallist á ljót ummæli Ofsa í garð Háskólans á Akureyri. Þetta er nákvæmlega það sem hann hefur sjálfur varið, þegar einhver utanaðkomandi dæmir alla jeppamenn fyrir gjörðir eins. Í okkar hóp eru örugglega einhverjir slúbertar, eigum við að dæma allan hópinn eftir honum og vorkenna formanninum? Nei aldeilis ekki, þessi ummæli Ofsans gera allan hans málflutning ótrúverðugan. Ég hef í gegnum tíðina lesið þá pósta sem hann sendir með athygli en sé núna að það er ekkert að marka manninn.
Þvílíkir sleggjudómar.Ég vil þó undirstrika að ég er fullkomlega ósammála Jóni Þorvaldi Heiðarssyni í kynningu hans á Norðurvegi
Kveðja:
Erlingur Harðarson
Kerfisstjóri Háskólans á Akureyri
10.03.2007 at 12:47 #583664Heyrði í Skildi nú fyrir skömmu og sagði hann að ferðin hefði gengið hægt í gærkveldi. Mannskapurinn var ekki kominn í Snæfell fyrr en um 06:00 í morgun. Þar sváfu menn í 2 tíma og síðan aftur af stað.
Kveðja:
Erlingur Harðar
10.03.2007 at 00:14 #583662Jæja, var að heyra í Ella vini mínum Þorsteins og Grétari formanni. Þeir eru á leið í Snæfell og fóru ekki léttustu leið. Þeir fóru um Möðrudal og Sænautasel í Hrafnkelsdal um Aðalból og gekk ferðin nokkuð vel. Snjór nokkuð þungur en allt í lagi samt. Áttui um 20km í Snæfell en voru þó í seinna holli og höfðu ekki heyrt í því fyrra.
Kveðja:
Erlingur Harðar
Sem vildi vera með…
02.03.2007 at 14:05 #582946Sælir drengir, sá sem fann þetta upp á heiður skilið. Ég hef ákveðið að flytja svona græju inn sem gengur á 12 voltum og kann að opna bílrúðu. Ég vil því bjóða ykkur að skrá ykkur fyrir eintaki strax. Þetta verður ekki dýrt aðeins um 5k$ en ef við söfnumst saman þá ætti fluttningskostnaður að lækka. Fyrstir koma þyrstir fá.
Innfluttningskveðjur:
Erlingur Harðarson
25.02.2007 at 02:56 #581942Jæja, þá er það Lambi á sunnudag. Mæting klukkan 13:00 við Hrísalund.
Kveðja:
Erlingur Harðar
25.02.2007 at 02:45 #581968Kútarnir mínir, takk fyrir þetta.
Kveðja:
Erlingur Harðar
24.02.2007 at 22:52 #581962Æi sorry en ég verð að taka undir titil þráðarins; "Helvítis síða". Ég ætlaði að reyna að setja inn myndir á myndasafnið mitt hér á f4x4 en ég man þetta ekki. Þetta er eins og með aukastafina á PÍ, þú þarft bara að vita þetta þar sem síðan heldur þessu mjög fyrir sig. Er ekki tími til kominn að serja inn einhverja hjálp svona til að rifja þetta upp með okkur?
Svo er síðan hræðilega hægvirk.Kveðja:
Erlingur Harðar
(sem er þó nokkuð slyngur í tölvum…)
23.02.2007 at 19:42 #581936Sælir allir, ég mæli með Langjökli strax í fyrramálið. Hvað segja menn um það? Endilega tjáið ykkur!
Kveðja:
Erlingur Harðar
-
AuthorReplies