Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
08.12.2004 at 00:24 #510430
Sæll Einar.
Ég er búinn að prófa margar gerðir af viðgerðarefnum bæði til sjós og lands og það efni sem ber af að mínu viti og hentar frábærlega í viðgerðir á tönkum hvort heldur sem baukurinn er úr málmum eða plasti heitir TEROMIX 6700 og er frá Teroson.
Þetta er tveggja þátta Polyurethan "lím" og ef ég man rétt þá er Esso að selja þetta efni.
Kveðja.
Elli
05.12.2004 at 09:54 #498853Sælir
Hiclone er að koma vel út í 4L vélinni, sérstaklega í High Output vélinni. Togið eykst, eyðslan minnkar (m.v.sambærilega keyrslu, Þar sem að þú ert farinn að auka eldsneytismagnið með breytingu á tölvunni þá veitir ekki af eins góðu mixi og hægt er, Hiclone bætir þar úr.
Kveðja.
Elli
28.10.2004 at 20:44 #507264Sæll Jón Skjöldur.
Fínar myndir hjá þér og eflaust mjög góð ferð hjá ykkur.
Því miður gat ég ekki verið með en hlakka til þeirrar næstu nk. nóvember.Vil einnig benda á myndir sem Adam Óskarsson tók í þessari ferð. Slóðin er "deildir" "Eyjafjarðardeild" "októberferð" "myndir úr ferðinni"
Kveðja
Elli
A830
24.10.2004 at 23:29 #506694Sælir félagar.
Kasta hér fram hugmynd um að flytja inn einn gám af GM 6,5L túrbó með skiptingu, vatnskassa, rafagnslúmi og því sem til þarf ef nógu margir hafa áhuga á því.
Hér heima gætum við fengið tilboð í breytingakit fyrir alla bílana og jafnvel tilboð í að skipta vélbúnaðnum út.
Þetta yrði trúlega ódýrasti kosturinn ef um eitthvað magn yrði að ræða.
"bara hugdetta"
Kveðja
Elli A830.
24.10.2004 at 23:19 #506522Sælir félagar.
Eins og fram kom hjá Benna þá var farin smá prufutúr á heiðina í dag. Við keyrðum hlið við hlið og mældum síðan dýptina sem dekkin mörkuðu í fönnina.
LC 120 á 39,5" 4 psi ca: 2350 kg. risti 16 cm.
Patrol á 38" 4 psi ca: 2650 kg. risti 25 cm.Þetta var nú ekki mjög vísindalegt en til samanburðar förum við aftur í vikunni þegar Patrol verður kominn á 39,5".
Kveðja.
Elli.
21.10.2004 at 00:38 #506470Þessi dekk komu nú í haust og er GV að selja þau. Verðið er ca: kr.39.900.-
Bestu kveðjur
Elli A830
20.10.2004 at 23:23 #194699Sælir félagar.
Ef til vill eru komin á markaðinn dekk sem leysa í flestum tilfellum 44″ dekkin af hendi ef bíllinn er undir ca: 2800 kg að heildarþyngd. Þarna á ég við 39,5 x 13,5 x 15″ Super Swamper Irok radialdekk. Við Benni (Benedikt) á LC 120 fórum upp á Vaðlaheiði í gærkvöldi í fínan snjó og prófuðum þessi dekk SS 39,5 R og virkuðu þau mjög vel. Í 2 psi flöttuðust þau svipað og Mudder eða Ground Hawg við 4 psi. Sporlengdin á þessum dekkjum var greinilega að gefa gott flot og virkuðu þau mjög vel.
Eitt er svolítið undarlegt við uppgefnar tölur frá framleiðendum.
38″ Mudder 15,5″ er á breidd ca: 28 cm.
39,5″ Irok 13,5″ er á breidd ca: 29 cm.Mæli með að menn skoði þetta og gefi okkur álit á þessu.
Bestu kveðjur
Elli A830
15.03.2004 at 18:41 #491620Sæll Indriði.
Skruppum nokkrir félagar í gær í góða veðrinu aðallega til að prófa RAM á 49". Það er frekar magurt á heiðinni en hægt að keyra svolítið um. Í gær var frosin skán ofan á hveiti og ekki gott að keyra í hjólförum eftir aðra.
Kveðja Elli.
15.03.2004 at 18:41 #498637Sæll Indriði.
Skruppum nokkrir félagar í gær í góða veðrinu aðallega til að prófa RAM á 49". Það er frekar magurt á heiðinni en hægt að keyra svolítið um. Í gær var frosin skán ofan á hveiti og ekki gott að keyra í hjólförum eftir aðra.
Kveðja Elli.
15.03.2004 at 18:29 #491600Sælir.
Nýbúinn að setja LC80 púða að aftan og reyna á þá, virka fínt.
Kveðja Elli.
15.03.2004 at 18:29 #498599Sælir.
Nýbúinn að setja LC80 púða að aftan og reyna á þá, virka fínt.
Kveðja Elli.
13.02.2004 at 16:09 #193753Sælir félagar.
Er að fara fund með 4×4 áhugamönnum í Bretlandi í næstu viku. Þeir hafa áhuga á að ég kynni fyrir þeim vetrarferðir á Íslandi eins og við í klúbbnum erum að fara.
Getur einhver bent mér á góðar greinar á netinu um vetrarferðir (þurfa ekki að vera langar)á ensku, svona til stuðnings. Einnig ef til eru greinar á ensku sem lýsa sportinu okkar í hnotskurn.
Með fyrirfram þökk.
Elías.
09.02.2004 at 21:54 #488160Ef þú ætlar að setja höfuðrofa MAN eða AUTO þá rýfur þú raflögnina frá rafgeymum bæði + og – . annars heitir rofinn ekki höfuðrofi.
Ef þú ert með – í stell (jörð) þá rýfur þú plúsinn ef þú villt hafa einfaldann rofa. Ég mæli með tvöföldum rofa sem rýfur báða póla. Athugaðu samt að taka fram hjá rofanum nauðsynlegustu tæki sem þú vilt nota án þess að bíllinnn sé með hleðslu. t.d. GPS, NMT, VHF og Útvarp.
Kveðja Elli.
09.02.2004 at 21:54 #493305Ef þú ætlar að setja höfuðrofa MAN eða AUTO þá rýfur þú raflögnina frá rafgeymum bæði + og – . annars heitir rofinn ekki höfuðrofi.
Ef þú ert með – í stell (jörð) þá rýfur þú plúsinn ef þú villt hafa einfaldann rofa. Ég mæli með tvöföldum rofa sem rýfur báða póla. Athugaðu samt að taka fram hjá rofanum nauðsynlegustu tæki sem þú vilt nota án þess að bíllinnn sé með hleðslu. t.d. GPS, NMT, VHF og Útvarp.
Kveðja Elli.
29.01.2004 at 23:36 #486398Komdu sæll
Hér á árum áður þegar við félagarnir vorum að brasa með Rússa jeppana og willysana eða Ford herjepana þá slógum við upp fjaðrirnar til að gera þá stinna og pattaralega á fjöðrum. Þessi aðgerð kostar ekkert nema smá vinnu. (eitt kvöld)Kveðja Elli
15.11.2003 at 16:18 #193181Sælir félagar.
Mig langar að fá álit ykkar um hvernig sé best að hækka Patrol ´96 upp um ca 5 cm. Minn bíll er breyttur fyrir 38″ og er upphækkun nú ca. 10 cm, öll á undirvagni.
Til að koma 44″ undir bílinn er spurningin hvort rétt sé að færa gormaskálar og stífur meira niður ( ca 5 cm ) eða að hækka boddy um 5 cm.
Með von um góðar ráðleggingar.
Kveðja,
Elli.
13.11.2003 at 00:19 #480168Sæll Axel.
Þú getur fengið prufusett hjá Iðnval ehf. Sendu fyrirspurn á e-mail: elias@idnval.is og þér verður svarað um hæl.
kveðja,
Elli.
12.11.2003 at 19:33 #480164Sæll Kalli
Ég bjó til festingu fyrir Fini dæluna aftan við afturhjólskálina hægra megin inni í Pattanum mínum. Það eru ca 15 cm frá gólfi upp í pallinn fyrir dæluna. neðan í pallinum er pressostat sem ég get stillt bæði útslátt og differens. Neðan í pallinum er einnig þokusmurtæki sem ég get sett frostlög á ef þurfa þykir.
Það er loftkútur í mínum bíl svo að það pirrar mig lítið þó að dælan fari í gang í 20 sek. og þegi síðan í 20 mín. (fer eftir hvað maður notar læsingarnar mikið)
Ég ráðlegg þér að kaupa segulloka "Normal Open" og tengja hann á milli dælu og einstefnuloka.
Áður en ég setti þennan loka átti dælan til að sprengja 80 Amp. öryggið í starti. (start á 7 bar / stopp á 8 bar)
Kveðja
Elli
12.11.2003 at 19:18 #480160Sælir.
Það þarf 2 stk. í Patta. 1 stk. kostar 11.600.-
2 stk. með 4×4 afsl. kosta kr. 20.880.-kveðja.
Elli
12.11.2003 at 02:45 #480146Sæll aftur Lúther.
Var aðeins of fljótur á mér.
Framhald af niðurstöðum Dynatests.Án HICLONE
Afl 78,3 kW
Tog 238 NmMeð HICLONE 1 fyrir túrbínu og annað fyrir soggrein
Afl 93,8 kW
Tog 251 Nm.Túrbínan byrjar að bústa í um 1700 sn/mín með HICLONE en byrjaði áður í um 2100 sn/mín
Það eru um 25 Pattar komnir með HICLONE og virkar búnaðurinn mjög vel í þeim.
Ein af forsendum fyrir því að auka við olíuverk er að sjá til þess að loftflæðið sé nægjanlegt til vélarinnar.
Ef það er ekki gert þá eykst afgashitinn meir en góðu hófi gegnir.Niðurstöður prófana á Nissan Patrol GQ Diesel 4200 cc án túrbínu var eftirfarandi:
Ný vél, dregið úr reykútblæstri um 45%
vél keyrð 200,000km reykútblástur minnkar um 55%
Þetta kemur heim og saman við það sem menn taka eftir á flestum bílum sem komnir eru með HICLONE.Ég er sammála því að stækka vatnskassann um eina röð ef ekki tvær. Ég hef það fyrir sið að skoða alloft hvort ég tek eftir leka t.d úr vatnsdælu o.s.frv. vegna þess að mér virðist sem dexilið sé einna hæðsti púnkturinn í kælikerfinu, en þar myndi ég halda að loft safnaðist fyrir ef eitthvað vantaði af kælivökva.
Varðandi millikæli, sverara púst, K&N síu og aðra þarfa hluti sem þú átt eftir að fá þér með tímanum, þá tel ég að HICLONE skili þér mestu fyrir minnstan pening, og svo er pay back á því (fer að vísu eftir notkun og akstursmáta hver tíminn er)
Kveðja
Elli
-
AuthorReplies