FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Elías Þorsteinsson

Elías Þorsteinsson

Profile picture of Elías Þorsteinsson
Virkur síðast fyrir 9 years, 1 month síðan
  • Prófíll
  • Groups 1
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 521 through 540 (of 625 total)
← 1 … 26 27 28 … 32 →
  • Author
    Replies
  • 13.10.2005 at 18:10 #529258
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    ………….að nota þessar upplýsingar.

    Ég hef reyndar alltaf ætlað að fá upp slitþol sverari kaðla en það er nú eins og það er.

    Lofa sjálfum mér því hér og nú að fá meiri upplýsingar.

    Kveðja.
    Elli.





    13.10.2005 at 17:33 #196450
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir.

    Á fundi hjá okkur í Eyjafjarðardeild hélt Þórður Helgason hjá Sjóbúðinni á Akureyri fyrirlestur um kaðla og hér að neðan er smá fróðleikur um nokkrar gerðir þeirra.

    Slitþol ÓSKEMMDRA kaðla í tonnum.

    28 mm teygjuspotti 15,8 (tognun yfir 30%)
    28 mm gleipniskaðall 12,0 (grænn með hvítum þráðum)
    28 mm krafttóg 11,0 (hvítt með rauðum þræði)
    16 mm krafttóg 5,0 (tognun ca. 5%)
    28 mm Dynex 48,0 (ofurtóg)
    16 mm Dynex 19,0 (tognun ca 3%)
    28 mm PPF 11,0 (þessi blái ódýri)
    16 mm PPF 5,0 (tognun ca 15%)
    18 mm kollína 5,0 (rauð/hvít)

    .
    Splæs rýra slitþol kaðla aðeins um ca. 10%

    .
    Hnútar hverskonar, þmt. pelastikk rýra slitþolið um 30 – 50%, og því meira sem meiri teygja er á kaðlinum. Kaðallinn einfaldlega bráðnar í hnútnum.

    Datt í hug að setja þetta á vefinn þar sem að hnútakvöld verður í Mörkinni í kvöld.

    Kveðja.
    Elli.





    13.10.2005 at 12:10 #529206
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sæll.

    Ég er búinn að eiga marga jeppa í gegnum tíðina og í öllum tilfellum hef ég sett 2falda liði á drifsköftin við hækkanir, enda ekki lent í brasi með þá. má nefna Ford, Scout, Willys, Landcruser, Blazer og Patrol.

    Kveðja.
    Elli.





    13.10.2005 at 12:04 #527062
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    ………að setja inn hnapp fyrir DEILDIR t.d. á milli
    "Aðalsíða" og "Klúbburinn", og þá liti efsti "barinn" svona út.

    .
    .
    Aðalsíða – Deildir – Klúbburinn – English – Hafa samband

    .
    .
    Undir deildir kæmi t.d. "rúllugardína" með deildunum sem hægt væri að smella á og þá beint inn á heimasíðu hverrar deildar.

    Mér finnst einnig að t.d. Litla deildin ætti að vera þar.

    Á landsfundinum um síðustu helgi var þetta rætt manna á meðal og fannst mönnum þetta alveg nauðsynlegt og sjálfsagt.

    Kveðja
    Elli.





    12.10.2005 at 23:10 #529168
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Það er 30 daga skilafrestur á Hiclone og full endurgreiðsla ef kaupandinn telur að Hiclone virki ekki í bílnum, þannig að áhættan er engin fyrir viðkomandi.

    Kveðja
    Elli





    12.10.2005 at 22:53 #529166
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Í mínum huga er eðlilegt að einungis þeir sem hafa prófað Hiclone finni muninn, hinir að sjálfsögðu ekki.

    Annars eru ýmsar prófanir gerðar af viðurkenndum prófunarstofum í Bretlandi sem koma fram á heimasíðu Hiclone.is

    Enn sem komið er, er aðeins ein prófun til sem gerð var hjá Tækniþjónustu bifreiða í Hafnarfirði, en það er af Patrol 2,8L TDI. og útskrift úr tölvunni þeirra er [url=http://www.hiclone.is/images/patrol1.jpg:33s0x6qn]hér[/url:33s0x6qn]

    Kveðja
    Elli





    12.10.2005 at 22:09 #529160
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    ……….. til að byrja með er að setja Hiclone í bílinn.
    Kemur vel út í Toyotu eins og margir félagar hafa reynt.

    Skoðaðu [url=http://www.hiclone.is:16vgayhv]Hiclone[/url:16vgayhv] heimasíðuna.

    Kveðja
    Elli





    12.10.2005 at 17:54 #529126
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Já Benni minn,

    Það er sennilega eina leiðin til að fara upp á Lúthershól á Vaðlaheiði að þú járnir Toyotuna þína.

    Frétti það að Lúther hefði rutt slóð fyrir þig megnið af leiðinni, Pattinn í 10 pundum en Toyotan í 2 pundum.

    Járnaðu tréhestinn þinn þannig að þú komist eitthvað.

    Kveðja
    Elli





    12.10.2005 at 09:10 #529114
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir.

    Hér eru 4×4 rásirnar eins og þær eru í dag en einhver breyting verður gerð á næstunni.

    kveðja
    Elli.

    4×4 rásir

    Rás tegund staðsetning

    42 endurvarpi

    ——– Snæfell
    ——– Háskerðingur
    ——– Tröllakirkja

    44 endurvarpi

    ——– Strútur
    ——– Drangajökull
    ——– Vaðlaheiði
    ——– Húsavíkurfjall
    ——– Gagnheiði
    ——– Fjórðungsalda
    ——– Bláfell

    45 bein spjallrás

    ——– veiði

    46 endurvarpi

    ——– Bláfjöll
    ——– Þrándarhlíðarfjall
    ——– Svínahnjúkar
    ——– Náttmálafjall
    ——– Vaðalda
    ——– Grímsvötn
    ——– Hrafntinnusker

    47 Almenn rás
    48 Almenn rás
    49 Almenn rás
    50 Almenn rás

    51 Spjallrás Vesturland
    52 Spjallrás Norðurland
    53 Spjallrás Austurland
    54 Spjallrás Suðurland

    82 endurvarpi öfugur við 42
    86 endurvarpi öfugur við 46
    88 endurvarpi öfugur við 44





    11.10.2005 at 19:37 #529094
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Skoðaðu þráðinn "landsfundur" þar kemur eitthvað fram.

    Núna snjóar um norðan og austanvert landið og í fréttum voru snjóamyndir frá Hellu.

    Þegar við fórum á sunnudag úr Setrinu var snjólaust á miðhálendinu norður undir Nýjadal. Sennilega verður breyting þar á í vikunni.

    Kveðja.
    Elli





    10.10.2005 at 12:51 #529004
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sammála Einari, fínn fundur, þurfum að vinna áfram í slóðamálum og auka kynningu á fjallvegum.

    Við úr Eyjafjarðardeild fórum heim með Austurlandsdeild og Húsvíkingum Þingmannaleiðina og yfir Sóleyjarhöfða, austari állinn var þurr en smá krapaburður í vestari álnum.

    Komum við í Páfagarði þar sem að við hittum félaga að austan og sunnan, austan menn fylgdu okkur áfram niður Sprengisand með kaffipásu í Sandbúðum.

    Svolítill snjór er kominn á norðanverðum Sprengisandi aðallega norður af Kiðagilsdrögum.

    Engar bilanir eða bras.

    Þakka góðan fund.
    Elli.





    10.10.2005 at 11:10 #528658
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sæll Benni_LC90

    Fékk þessar leiðbeiningar frá vefnefnd.

    Leiðbeiningar

    Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar hvernig þetta á að gerast.

    – Skráir þig inn á vefinn.

    – Velur "Myndasafn".

    – Velur flokk undir "Flokkar myndasafnsins" sem passa myndunum.

    – Þá undir "Aðgerðir" velur þú "Nýtt myndasafn"

    – Þá byrtist fyrri af tveim gluggum til að setja inn myndir.

    Sá fyrri til að búa til safn (albúm) og sá seinni til að tína inn myndirnar í safnið, ath. það verður að skrifa í gula reitinn ("Titill") annar komast menn ekki áfram.

    Sendu póst á [HTML_END_DOCUMENT] ef þetta virkar ekki.

    Kveðja

    Elli





    07.10.2005 at 11:32 #528464
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir félagar.

    Nú rétt fyrir kl 10 fannst bíllinn í Hafnarfirði. Sveinbjörn eigandi bílsins er búinn að staðfesta að bíllinn sé hans en byrjað var að rífa hann í Hafnarfirði.

    Árvökull starfsmaður Hitaveitu Hafnarfjarðar tók eftir bílnum og lét lögregluna vita.

    Þar sem að búið var að rífa vinstra brettið, snorkelið, kastaragrind og kastara ásamt þakbogum og einhverju fleira utan af bílnum ásamt símanum, GPS tækinu svo og númeraplötum, þarf því bíllinn í tæknirannsókn lögreglunnar. Flestir hlutir sem búið var að taka af bílnum var í honum en brettið er ófundið.

    þjófurinn er ófundinn nú þegar að þetta er skrifað. Talið er að þetta sé atvinnuþjófur og að þetta sé ekki fyrsti bíllinn sem hann stelur.

    Í svona kvikindi þarf að græða GPS tæki sem vaktað er af lögreglunni, svona eins og þeir gera fyrir vestan haf.

    Kveðjur.
    Elli





    05.10.2005 at 23:56 #528454
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Ágætu félagar.

    Vinsamlegast hafið augun opin ef að þið rækjust á þennan bíl. Látið vita hið snarasta ef þið hafið grun um að verið sé að vinna með bílinn.

    Þessi bíll er í eigu f4x4 félaga í Eyjafjarðardeild og það er ljóst að þjófurinn er á höfuðborgarsvæðinu.

    Svona þjófnaður getur hent okkur alla og nú er mál að linni, stöndum saman um uppræta svona glæpamenn sem stela eigum okkar.

    Kveðja
    Elli





    03.10.2005 at 06:25 #528408
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Þakka þér Glanni.

    Kveðja
    Elli





    02.10.2005 at 22:24 #528404
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir.

    Endilega að láta mig vita um ástand Kjalvegar sunnan Hveravalla ef þið hafið keyrt hann í dag.

    Kveðja
    Elli





    02.10.2005 at 22:22 #528438
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Næstkomandi þriðjudagskvöld verður félagsfundur í Eyjafjarðardeild. Fundurinn hefst kl 20:00 í húsi Súlna við Hjalteyrargötu.

    Mættu á staðinn, þar verða tekin fyrir ferðalög á næstuni.

    Kveðja
    Elli





    02.10.2005 at 16:29 #196374
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Sælir félagar.

    Eru einhverjir sem vita um færð á Kili nú sunnudaginn 2. október.

    Reikna með að fara í 4×4 rútu suður kjöl í fyrramálið og allar upplýsingar þess vegna vel þegnar.

    Sá reyndar á korti vegagerðarinnar að leiðin er rauðmerkt frá Hveravöllum og eitthvað suðureftir en á föstudag var leiðin merkt greiðfær.

    Kveðja.
    Elli.





    27.09.2005 at 23:38 #528062
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Fékk þessar leiðbeiningar frá vefnefnd.

    Leiðbeiningar

    Hér fyrir neðan eru leiðbeiningar hvernig þetta á að gerast.

    – Skráir þig inn á vefinn.

    – Velur "Myndasafn".

    – Velur flokk undir "Flokkar myndasafnsins" sem passa myndunum.

    – Þá undir "Aðgerðir" velur þú "Nýtt myndasafn"

    – Þá byrtist fyrri af tveim gluggum til að setja inn myndir.

    Sá fyrri til að búa til safn (albúm) og sá seinni til að tína inn myndirnar í safnið, ath. það verður að skrifa í gula reitinn ("Titill") annar komast menn ekki áfram.

    Sendu póst á [HTML_END_DOCUMENT] ef þetta virkar ekki.

    Kveðja
    Elli





    27.09.2005 at 17:54 #528048
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    Er ekki tími til kominn að fá flýtihnappa fyrir þá sem að eru í vandræðum.

    Þá meina ég að ef einhver er í neyð þá sé hægt að kalla til byggða og biðja viðkomandi að fletta upp á old.f4x4.is og síðan smella á "hjálp" eða eitthvað annað lykilorð sem auðvelt er að útskýra.

    Vel á minnst. Að fara inn á deildir er allt of löng leið.
    Ég minntist á það fyrir nokkrum mánuðum að stytta þessar leiðir og ennþá vonst ég til að vefnefnd taki það til greina.

    Bestu kveðjur
    Elli





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 521 through 540 (of 625 total)
← 1 … 26 27 28 … 32 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.