Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
04.12.2005 at 21:49 #534916
og um leið stuðninginn vegna þess að allt skiptir máli í þessu sambandi.
Þannig er að þetta er eini bíllinn sinnar tegundar á landinu og sá eini einnig með þessa útfærslu af aðalljósum, þannig að þetta er ekki til á partasölum.
Það að bíllinn sé ekki jeppi (er reyndar 4×4) finnst mér ekki skipta máli í þessu tilfelli. Ég kom með þennan þráð þar sem að ég er félagsmaður og er sammála Einari að svona mál eru hagsmunamál okkar allra þ.e.a.s. viðskipti okkar við tryggingarfélögin sem og viðskipti við bifreiðaumboð og þjónustuaðila almennt.
Kveðja.
Elli
04.12.2005 at 01:22 #534900…….og þakka þér ábendinguna.
Eftir því sem mér er sagt er allt heila klabbið sambyggt.
Í öllum öðrum gerðum Audi er hægt að fá perur sem sjálfstæðan varahlut og þá með þeim lit sem fyrir er.Þetta eru einungis upplýsingar frá Heklu.
Mun hafa samband.
Kveðja.
Elli.
04.12.2005 at 01:09 #534738Nei; ég reikna ekki með kúlu í þessu samhengi.
Sporbaugslagað form er ekki fráleitt vegna lögun landsins þ.e.a.s. fleiri km milli A og V en N og S.
Svo er náttúrulega hvernig við reiknum flatarmálið okkur til tekna sem viljum færa punktinn "naflann" til.
Ef við ætlum að finna massamiðju Íslands eins og Freysi er að pæla í þá er vert að skoða eðlisþyngd steinefna fjallanna og einnig eðlisþyngd jökla í því samhengi.
Kveðja.
Elli.
04.12.2005 at 00:57 #534736að Tröllaskaginn vegur nú einhver kg í þessu efni.
Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 21:45 #534716Eins og landakortið okkar lítur út þarf að setja það í ákveðið "prospektiv" form sem við verðum að ganga út frá. Elipsa eða sporiskjulagað form hentar vel til að finna miðju Íslands út frá ystu nesjum.
Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 21:28 #534714Já Skúli.
Nú hittir þú naglann á höfuðið.
Auðvitað er Setrið "nafli" Íslands. Annað eins hefur nú í gegnum tíðina verið "feikað" til.Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 21:25 #534712Sæll Freysi
Ef þú tekur ystu nes og eyjar, flytur flatarmál þeirra inn á flóa og firði, aðalega NV-lands og V-lands færðu punkt sem er eitthvað nálægt þeim sem ég gaf upp.
Þetta er að sjálfsögðu bara álit "dómnefndar" og þarf ekki endilega að endurspegla álit þjóðarinnar.
Kveðja
Elli
03.12.2005 at 21:03 #534702Miðja Íslands er m.v. elipsulagaðan miðpunkt 4,92 km hávestur af Hásteinum.
GPS.
N 64.77,827
W 18.90,402Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 20:06 #534936Er ekki Tundran bara "Buggy of LC 100" þ.e.a.s. pallbíll útfærsla í 100 seríunni.
Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 20:00 #534694Álít að nafli Íslands sé 4,9 km vestur af Hásteinum.
Kveðja.
Elli.
03.12.2005 at 19:47 #534894Takk Birgir. Bað gaurinn að senda mér á e-mail staðfestingu á höfnun með tilvitnun í tryggingarskilmála.
Þetta var á fimmtudaginn og ekki hefur hann sent staðfestinguna nú þegar að þetta er skrifað.
Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 18:47 #534890Þakka fyrir góðan punkt varðandi mislit ljós í reglugerð.
Ég er sannfærður um að ef þið félagarnir "kommentið" á einmitt svona punkta þá styrkist staðan.
Kveðja
Elli.
03.12.2005 at 18:44 #534888Þakka þér fyrir.
Ef til vill er þetta ekki réttur vettvangur fyrir svona mál, en mig langar að heyra ykkar álit og/eða ef einhver hefur lent í sambærilegum málum.
Ég hef ekki nefnt tryggingafélagið ef hugsanlega þeir skiptu um skoðun varðandi þetta mál.
Jú mikið rétt, oft er það að sá stóri sem "valtar" yfir þann litla.
Tel hinsvegar að við félagsmenn ættum að standa saman ef þannig mál koma upp.
Styrkur okkar gæti legið í samstöðu (t.d. það sem við álítum að rétt sé og fram komi í spjalli á vefnum okkar) félaganna, það er að segja ef við teljum réttilega, að okkur sé vegið.
Kveðja
Elli
03.12.2005 at 16:59 #196772Ágætu félagar.
Nú er ég kominn í smá vesen við eitt tryggingarfélagið.
Þannig er að keyrt var á Audi bílinn minn kyrstæðann við bensínstöð í Hveragerði í sumar. Annað ljósið sem er Xenon var eyðilagt. Tryggingarnar keyptu nýtt ljós sem kostar kr. 94.000.- hjá Heklu.
Vandamálið er það, að ekki er til Xenon ljós í bílinn með sama lit og það gamla.
Gömlu ljósin eru með bláum lit en það nýja með hvítum og er blátt ófáanlegt.Ég tel að tryggingarnar verði að skaffa mér bæði ljósin, þannig að bíllinn líti ekki út eins og maður með glóðarauga. (svo að vitnað sé í einhverja samlíkingu) þar sem að þeir geta ekki fengið ljós með sama lit og hitt sem er í bílnum.
Tryggingarnar sögðu mér að þeir hefðu borgað bæði ljósin ef peran kostaði innan við kr. 5000.- en fyrst að peran kostaði kr. 94.000.- borguðu þeir hana ekki.
ÞARNA STANGAST EITTHVAÐ Á.
Semsagt ég á að leggja út fyrir nýju ljósi þó svo að ég hafi verið í 100% rétti.
Þess má geta að í þessari gerð af Audi (S6 plus ABT) er stök pera ekki fáanleg heldur þarf að kaupa peruna, spennirinn og rafmagnslúmið comlett.
Endilega tjáið ykkur hvað ykkur finnst um svona uppákomu. Langar að fá ykkar álit áður en lengra er haldið.
Kveðja.
Elli.
02.12.2005 at 23:35 #534644Værir þú til í að leigja 80 kg konu, mál 90 – 60 – 90 sem væri vel útbúin.
Svarmöguleikar.
1) Já.
2) Myndi skoða það nánar.
3) Nei.
4) Hef konu til umráða.
5) Hef konu til umráða en vil gjarnan skoða það nánar.
Kveðja.
Elli.
02.12.2005 at 23:22 #534642Ég á bágt með að skilja hvernig nemendur í HR ætla sér að fá marktæka niðurstöðu úr skoðanakönnun sem þessari.
Mér finnst einfaldlega að allar forsendur vanti.
Kveðja.
Elli
sem átti einu sinni heima í Reykjavík.
02.12.2005 at 22:14 #534628Er þessi skoðanakönnun hugmyndalega séð frá f4x4 klúbbnum "Reykjavíkurdeild". eða er þessi hugmynd frá Háskólanum í Reykjavík?.. og þá frá hvaða deild og hvað heitir einingin sem þessir nemendur eru að nema?
Kveðja.
Elli.
30.11.2005 at 19:26 #534404Sölvi Sveinsson á þennan bíl. Bíllinn kom á götuna s.l. vetur ef ég man rétt . Hef aðeins keyrt með honum og sýnist mér bíllinn virka þrælfínt.
Sölvi er með 44" DC undir bílnum.
Kveðja.
Elli.
30.11.2005 at 17:33 #534182fyrir 3,3 lítra vél, millikæli sem er með loftrásinni í gegnum kælinn ekki minni en 53 mm að innanmáli og best er að hafa stútana af sömu stærð. Þetta á við túrbínuþrýsting max. 0,7 bar við snúningshraða 3.500 á mín undir álagi.
Kveðja.
Elli.
30.11.2005 at 00:13 #532910Hér á árum áður á áttunda áratug síðustu aldar þegar að við prófuðum 44" mudder á 16,5" felgum urðum við að smíða felgur svo að dekkin héldust á felgunni.
Smíðaðar voru samsettar felgur "boltaðar saman" og rörhólkur settur inn í sem klemmdi dekkin út í felgukantana.
Síðan var neglt með 3strendu nöglunum einir 300 í dekk og allt virkaði fínt (í þá gömlu góðu daga)
Kveðja
Elli
-
AuthorReplies