Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
29.11.2006 at 07:57 #569342
Nú ert þú að leggja mér orð í munn, varðandi Stórutunguleið. Stórutunguleið er aðalleiðin upp í Réttartorfu. Ég hef hinsvegar sagt að á vetrum er þetta með erfiðari leiðum að fara og alls ekki fyrir ókunnuga ef eitthvað er að veðri.
Fljótið er auðvitað mikið farið en er ekki alltaf fært.
Kveðja
Elli
28.11.2006 at 22:09 #569330Lestu þráðinn betur. "rétt skal vera rétt"
Veit ekki um færð þann 30. des en vertu velkominn.
Kveðja.
Elli.
28.11.2006 at 20:36 #569326Í þræðinum hér að ofan er gert að því að eini alvöru jeppamaðurinn að norðan hafi farið í þessa Trúðaferð. Að sjálfsögðu velja menn sér aðstæður og ferðir miðað við getu. Þeir norðanmenn sem ekki treysta sér að keyra í erfiðum snjó fara að sjálfsögðu í léttara færi og um helgina síðustu var jú ekki mjög erfitt að fara í Setur um Kjöl.
Þeir norðanmenn aðrir en þeir sem ferðuðust um helgina með Trúðagenginu tókust meðal annarra ferða á við mjög erfiða ferð í Réttartorfu. Snjóalög voru með þeim hætti að skriðgír einn dugði til að koma sér áfram um hraunið þar sem að var allt að 4 metra snjódýpt. Tók ferðin um 7 klst að fara 21 km. frá Stórutunguafleggjaranum og inn í Réttartorfu. Á heimleiðinni um Svartárkotsleið sem er 13,5 km vorum við um 5 klst.
Það er alltaf gaman að segja frá sínum ferðum en fullyrðingar fyrr á þræðinum stangast á við raunveruleikann.
Spurningin hvort landsbyggðaráð fari að hugsa um alvöru vetrarferðir, e.t.v. á Norðurlandi, .. Já því ekki.
Lýsi hér með vantrausti á formanninn okkar vegna yfirlýsinga á þræðinum þar sem að hann hefur greinilega ekki kynnt sér aðrar ferðir klúbbfélaga.
Kveðja.
Elli A830.
05.11.2006 at 20:43 #566762Bestu þakkir fyrir fína árshátið frá okkur Siddu.
Kveðja.
Elli
A 830
07.09.2006 at 21:30 #559368Feðgarnir á Trukknum fóru upp í Réttartorfu í kvöld með rörin. Fóru þeir fljótið en lítið var í því og allt gékk vel.
Nú vantar bara ca 5 í viðbót uppeftir svo að áætlun haldi.
Bestu kveðjur.
Elli.
05.09.2006 at 23:12 #559362Uppfærsla á mætingalista:
Þeir sem að búnir eru að skrá sig eru:
1. Elli Þorsteins
2. Elli Harðar
3. Grétar formaður
4. Jón Skjöldur
5. Jói Björgvins
6. Sveinbjörn á Trukknum
7. Óskar á Dalvík
8. Garðar gröfumaður
9. Brynjólfur Eyjólfs
10. Áki Áskels
11. Björn Pálsson
12. Örlygur
13. Tryggvi í Sandblæstrinum
14. Örvar
15. Adam
16. Bjössi í Réttarholti
17. Hinrik
18. Anton
19. Benni Sigurgeirs
20. Guðni Þórólfs
21. Viðar
22. Bjössi Páls
23. Palli Trausta
24. Einar Hermanns
25. ————–Nú vantar bara herslumuninn, vantar ca 5 í viðbót.
Munið að hafa með ykkur stígvél eða vöðlur, ál eða járnkarla og skóflur.
Kveðja.
Elli.
04.09.2006 at 23:00 #198490Farin verður vinnuferð í Réttartorfu helgina 8-10 september og lögð ný vatnslögn frá lind að skála.
Við þurfum að fá 25-30 félaga uppeftir til vinnu á laugardeginum.Farið verður frá Lindinni kl 18:00 á föstudag. Þeir sem geta ekki komið fyrr en á laugardagsmorgunn leggi af stað kl 07:00 frá Lindinni.
kvöldverður á laugardagskvöld verður í boði klúbbsins.
Þeir sem ætla að koma tilkynni þáttöku á e-mail elias@idnval.is eða í síma 894-4722, einnig verður tekið við skráningu á fundinum annað kvöld. (þriðjudagskvöld)
Þeir sem að búnir eru að skrá sig eru:
1. Elli Þorsteins
2. Elli Harðar
3. Grétar formaður
4. Jón Skjöldur
5. Jói Björgvins
6. Sveinbjörn á Trukknum
7. Óskar á Dalvík
8. Garðar gröfumaður
9. Brynjólfur Eyjólfs
10. Áki Áskels
11. Ingimar Árna
12. Örlygur
13. Tryggvi í Sandblæstrinum
14. Örvar
15. Adam
16. Plastsuðumaður frá Sæplast
17. Bjössi í Réttarholti
18. Benni Sigurgeirs
19.
Bestu kveðjur
Elli Þorsteins.
27.07.2006 at 11:48 #556904að redda þessu.
Fh. ferðalanga.
Elli
25.06.2006 at 02:00 #555114Það er nú bara einfaldlega þannig að það er ábyrgð á öllum vélbúnaði í 1 ár frá söludegi samkvæmt lögum og ef umboðin veita lengri ábyrgðartíma gildir það jafnt yfir óbreytta sem breytta bíla ef að hluturinn sem bilar í bílnum er óbreyttur.
Látið reyna á þetta við kaup, Það er þá seljandans að hafna sölunni.
Kveðja
Elli.
22.06.2006 at 01:40 #5550545 gír í Patrol er ca 0,862. þannig að á 2750 snúningum með 4,10/1 hlutföll og á 44" er bíllinn á ca 165 km/h hraða.
(veit ekki hvort 4,10 sé til í Patrol)
Kveðja.
Elli.
22.06.2006 at 01:19 #555050er ekki kominn tími til að t–sofa.
Annað sem ég tók eftir í myndasafni er að í nýjustu myndum sitthvoru megin við hraðamælamyndina eru myndir annarsvegar frá 10. okt. 2002 frá Jóhanni K Kristjánssyni og hinsvegar frá Degi Bragsyni frá 15 nóv. 2005. —– er myndaalbúmið gengið aftur? eða hvað?
Kveðja.
Elli.
22.06.2006 at 00:53 #555024Almenna reglan er sú að draga sjálfskiptan bíl á hraða ekki á yfir 35 km/klst sé dælan ekki virk í drætti.
Ýmsir sjálfskiptir bílar, aðalega af nýrri tegundum eru þannig búnir að í lagi er að draga þá á þess vegna 100 km hraða þar sem að dælan er tengd afturdriföxli sem snýst þá með í drætti.
Bílaumboðin ættu að geta svarað því hvaða takmarkanir eru á einstaka tegund.
Kveðja.
Elli.
12.05.2006 at 19:07 #550990Það vill svo til að ég er afi langveiks barns.
Framtak sem þetta, er svo ótrúlega mikils virði og að mínu mati kemur klúbbnum okkar á nýtt tilverustig.
Ég vil þakka ykkur öllum frábærar undirtektir varðandi ferðina.
Bestu kveðjur.
Elli
05.05.2006 at 17:32 #552030Mæli með að menn létu Kjalveg eiga sig í bili. Gunnar skálavörður er farinn til byggða og Hveravellir verða ekki opnaðir aftur fyrr en í byrjun júní.
Þó svo að lokunarmerki frá Vegagerðinni sé ekki komið á Kjalveg er byrjað að blotna og akstur þar veldur bara skemmdum.
Kveðja.
Elli
28.04.2006 at 19:40 #551152Hvar var þetta.
Kveðja
Elli
24.04.2006 at 23:34 #550690vestan Tungnaárjökuls, sjá [url=http://gallery.vma.is/elias/Afmaelisferd_mars_2006/DCP_3780.JPG.html:yz4dotja]hér[/url:yz4dotja]
21.04.2006 at 20:47 #550202Við keyrum ekki á vegum sem eru blautir.
Vil biðja alla félaga að virða aksturstakmarkanir á fjallvegum þegar þær koma og svo á meðan frost fer úr jörð.Sýnum náttúrunni virðingu og verðum í fararbroddi með því að aka ekki á "blautum" vegum.
Kveðja.
Elli.
18.04.2006 at 22:38 #549846Þið bræður í Toy bullið bara eins og venjulega.
Ég vil ráðleggjja fyrirspyrjenda að fara í túr með félögum á mismunandi bílum og fá þannig eigin reynslu. Síðan er að taka ákvörðun sem þú ert sáttur við.Kveðja.
Elli.
18.04.2006 at 22:23 #549842Viltu skýra okkur patrolmönnum, hvað þú átt við með þessu síðasta innleggi þínu.
Kveðja.
Elli.
31.03.2006 at 18:32 #197658Föstudaginn 24 mars fórum við í 2 hópum upp í Nýjadal og gistum þar í eldri skálanum. Einhverjir höfðu komið að Nýjadal og brotið rúðu í nýja skálanum til að komast inn. Ýmsir hlutir voru á tjá og tundri í skálanum, snjór inn um allt og skálinn vægast sagt óbúandi. Við tókum þá ákvörðun að laga aðeins til og loka sem við best gátum og gista í þeim gamla. Á Laugardagsmorgni keyrðum við austur Gæsavatnaleið og upp í Vonarskarð. Skoðuðum Snapadal og Hníflana fórum yfir Köldukvísl og upp Köldukvíslajökul upp á Hamarinn og niður aftur í Hamarslón og inn í Jökulheima þar sem við gistum. Á sunnudeginum keyrðum við suður Breiðbak, í Glaðeima og upp í Hrauneyjar, norður Sprengisand og niður Kerhólsöxl og heim til Akureyrar.
Myndir eru [HTML_END_DOCUMENT]hér
Royal kveðja.
Elli.
-
AuthorReplies