Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.03.2007 at 10:16 #583402
Sæll Þórir.
Er búinn að keyra á 41" (ónegld en microskorin í miðju) sl. sumar og fram yfir fyrstu snjóa í vetur.
Dekkin bældust nokkuð vel undir Pattanum mínum sem er reyndar um 3 tonn fulllestaður.
Hef trú á að þau séu full stíf fyrir 2,2 tonna bíl. Keyrði mikið í 6-7 psi á fjallvegum í sumar vegna þess hve stíf þau voru.
Flotið liggur á milli 39,5" Irok og 44" DC. Svona sem viðmið þá hefur oft verið sagt að flotið í 44" byrji í 4 psi og m.v. það byrjar flotið í 41" í 2,5 psi (allavega nýjum)
Það er heldur léttara að keyra á þeim en 44" DC á auðu malbikinu sem ræðst trúlega af minni radíus. Viðmiðið mitt er ca. 26 psi í 41" en ca. 22 psi í 44" DCÞað er gríðarlega gott grip í 41" miklu betra en í 44" DC.
Samanburður á drifgetu er alltaf erfiður og einstaklingsbundinn. Ég kem til með að keyra 41" lengri tíma á ári en t.d. 39,5" en auðvitað verður 44"DC mín aðal vetrardekk.Eg er með dekkin á 15" breiðum felgum. Hef keyrt á þeim í 0,5 psi í hliðarhalla og allavega aðstæðum og upp í 60 km hraða og engin vandamál.
Sauð góða kanta bæði að innan og utan og lét heitgalvanhúða þær. Þegar dekkin voru sett á felgurnar fóru 2 dekk uppá í ca 47 psi og eitt dekkið í 48 psi og eitt í 50 psi. þannig að þau eru bara föst á felgunum.
Kveðja.
Elli
28.02.2007 at 22:10 #582538Viltu segja okkur þetta á SI máli og gjarnan með Íslenskum skýringatexta.
Kveðja
Elli
28.02.2007 at 22:06 #582482þakka svarið, en getur þú sagt okkur eitthvað meira.
Hvenær verður þessi vinna búin þannig að hægt verði að nota hana á eðlilegan hátt?Kveða.
Elli.
27.02.2007 at 22:07 #199807Það hlýtur að vera eitthvað að síðunni okkar. Hún er mjög hæg og stundum þannig að maður nennir ekki að bíða eftir að síður opnist.
Getur vefnefnd gefið einhverjar skýringar á þessu.
Kveða.
Elli.
23.02.2007 at 23:58 #582054Er"tu" með kyn"bundna"fordóma?
Kveðja
Elli.
23.02.2007 at 23:48 #581960Gaman að heyra að við höfum svipaða reynslu af þessu hvort sem snjórinn er norðan eða sunnan megin.
Kveðja
Elli.
23.02.2007 at 23:43 #582052er líka sprækur en afskaplega lélegur utan malbiks þó Quattro sé. Ta Co Me Be Fo Be Ca.
Kveðja
Elli
23.02.2007 at 23:36 #581924Það er nú ekki nóg að hafa vél það þarf líka að hafa BÍL.
Kveðja
Elli
23.02.2007 at 23:31 #581938frá Leirunesti kl 10:30 í dagstúr norður í Fjörður.
Þeir sem ætla að koma með eru beðnir um að mæta ekki seinna en kl 10:15 laugardagsmorgun þann 24.feb.2007.Muna bara eftir, nesti, góða skapinu og nægjanlegu eldsneyti og þá mun verða gaman.
Kveðja.
Elli.
23.02.2007 at 23:25 #581956Vefurinn okkar er orðinn mjög hæggengur, minnir mig á LC 80 með brotið framdrif, reyndar frekar að það minnir mig á það þegar að ég var með einn LC 80 og annan Lc 90 í eftirdragi.
Kveðja
Elli.
22.02.2007 at 23:52 #581934Reiknum með að fara seinnipartinn á morgun, gistum einhversstaðar, en framhaldið ræðst af veðri og vindum.
Setjum inn á þennan þráð á morgun þegar ákveðið verður hvert farið verður.
Kveðja.
Elli.
10.01.2007 at 21:15 #574732að minna á þrettándagleðina og ef einhverjir eiga gítara, munnhörpur eða píanó þá meiga þeir koma með hljóðfærin með sér.
Kveðja.
Elli.
09.01.2007 at 23:10 #199330Þrettándagleðin í Réttartorfu er um næstu helgi. Einn hópur ætlar að leggja af stað frá Leirunni kl. 18:00 á föstudagskvöldið og annar á laugardagsmorgun kl. 11:00. Á laugardeginum er hugmyndin að athuga hvort hægt sé að lagfæra vantslögnina aðeins þar sem hún liggur í læknum og er því tilvalið að fólk taki með sér stígvél, járnkalla og skóflur. Að öðru leyti er dagskráin sú að þegar menn hafa lokið vinnu og leik á laugardag grilla menn saman (hver sér um sinn mat) og síðan verður brenna, flugeldar og gleði. Frekari upplýsingar fást hjá þeim Elíasi formanni skálanefndar og Erlingi ferðanefndamanni.
Elías: elias@idnval.is GSM 894 4722
Erlingur: erlingur@unak.is GSM 864 8442Gaman væri að sjá félaga úr öðrum deildum en Eyjafjarðardeild.
Kveðja.
Elli.
30.12.2006 at 19:36 #572662til allra sem þátt tóku í brennuferðinni.
Um 50 manns mættu á 23 bílum og er það nýtt met í brennuferð.Bestu kveðjur.
Elli.
29.12.2006 at 10:29 #572658Ég vil minna menn á að þeir geta fengið efni hjá Tætingu ehf til að fara með upp í Réttartorfu.
Hleðsla í bílana byrjar kl 16:00 í dag.
Kveðja.
Elli.
27.12.2006 at 18:14 #572654Var að tala við Guðrúnu í Svartárkoti og sagði hún að aðeins væri snjór í lægðum og einhverjir skaflar á stöku stað.
Sennilega er bara næstum sumarfæri og þá spurningin hvernig fljótið er. Um daginn kom krapastífla í fljótið og þegar hún brast varð 871 m3 rennsli um tíma en fór þó fljótt í normalrennsli, sennilega hefur fljótið flætt upp á veg að austan og tekið með sér jakahröngl svo og í bökkunum á vaðinu er sennilega jakahröngl.
Það væri bara fínt ef einhverjir vildu fara könnunarleiðangur á föstudag til að skoða það að fara með brennuefnið (kerrur) yfir fljótið á laugardag.
Bestu kveðjur.
Elli.
27.12.2006 at 17:54 #572652Mætum hjá Tætingu kl 16:00 föstudaginn 29. des og hlöðum bílana.
Tæting ehf er efst við Súluveg rétt hjá bílavoginni.
kveðja.
Elli.
26.12.2006 at 21:39 #572646vegna þess að félagarnir á Dalvík Óskar, Mási og fleiri koma með 2 kerrur og verða á Akureyri á milli 9 og 10.
Það er nægur tími og langskemmtilegast ef allir halda hópinn.
Stefnum að því að fara frá Fosshóli kl 11:00.
Vonast til að sjá Fugla og félaga með flullt af efni.Munið! að nú á brennan að verða stóóóóór.
Bestu kveðjur.
Elli.
26.12.2006 at 19:40 #572632Meiningin var sú að menn finndu sér efni t.d. deginum áður og lestuðu. Stebbi. heyrðu í Jörundi hjá Tætingu, hann er með eitthvað efni.
Baldur. það er sennilega svipað snjómagn á leiðinni í Réttartorfu og á Reykjaheiðinni. Ég fór upp í "Torfu" um daginn þegar að snjóaði og helgina eftir uppi á Þeystareyki, Þá var svipað snjómagn á báðum stöðum.
Hinsvegar eru meiri og stærri skaflar í hrauninu á Stórutunguleið en sennilega allt hart.
Gaman væri að þið í Húsavíkurdeild slægjust í för með okkur uppeftir verðum sennilega hjá Fosshóli um kl 11.00. og að sjálfsögðu væri smá brennuefni vel þegið.
Kveðja
Elli.
26.12.2006 at 16:28 #199234Hin árlega brennuferð Eyjafjarðardeildar í Réttartorfu verður farin laugardaginn 30. desember.
Farið verður frá Leiru kl. 10:00.
Félagar beðnir um að fjölmenna og taka eins mikið af brennuefni með sér sem þeir geta.
fh. skálanefndar.
Elli Þorsteins.
-
AuthorReplies