Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
01.11.2010 at 12:16 #708592
Fyrir nokkrum árum lagaði ég svona bíl með svipaðan kvilla,í honum var það bara stífluð olíusía.
19.10.2010 at 12:38 #706608Þakka fyrir góð svör og ráðleggingar,það er verið að smíða nýjan tank fyrir mig úr stáli,tók þessa ákvörðun eftir skoðun á gamla tanknum held bara að álið sé ekki alveg að gera sig í þessu,svo eru líka tólf ár síðan hann var smíðaður og komin reynsla á tankasmíði á þeim tíma.Hann verður festur að aftan eins og hinn þ.e. boltaður fastur í tvö eyru en að framan er eitt eyra fest í grindarbita með mótorpúða á milli.
15.10.2010 at 10:25 #215201Ég er með aukatank í L/C 90 sem koma sífellt sprungur í og hann fer að leka.Tankurinn er smíðaður úr áli og tekur 90 l.Smíðaður af Prófílstál 1998.Þeir eru margsinnis búnir að sjóða fyrir mig í þessar sprungur en það dugar skammt,sérstaklega ef keyrt er á grófum fjallvegum.Hann er með tveimur festingum að aftan en einni að framan þannig að hann vinnst ekki með bílnum.Tankurinn er mishár þ.e. afturhlutinn er töluvert hærri og sprungurnar myndast alltaf í hverkinni ofan á tanknum þar sem hann hækkar.Nú er spurning hvort menn hafa lent í þessu og hafa góð ráð.
Kv. Eirikur Sig.
14.10.2010 at 13:44 #706392Greinilegt að það á að fara loft inn um þetta,dettur helst í hug hattur af lofthreinsara á einhverri vinnuvél.
22.09.2010 at 18:09 #703656Ég ætla að mæta í Vonarskarðið á jarðarför,finnst þetta gott frammtak.Tetta byrjaði allt saman 1969 þegar byggður var skáli í Jökuldal (er stundum uppnefndur Nýidalur)þá var komin jeppaslóð inn allan Jökuldal inn að Kaldagili sem var lokað,og þikir mér það afar sorglegt,þarna er fallegur dalur gróinn að hluta sem fólki er bannað að sjá og njóta.Svo var lokað fyrir bíla í skálann í Hrafntinnuskeri,ég lenti illa í því vissi ekki að þetta væri lokað,keyrði uppeftir að sumarlagi og það hreinlega varð allt vitlaust,landverðir hreinlega gengu af göflunum.Ég var að trússa göngufólk um Laugaveginn,en þarna lentum við í vondum málum þannig að það var ekkert um annað að ræða en leysa upp hópinn og fara heim.Þannig fór það.
Nú er verið að loka veginum um Vonarskarð,þarna finnst mér of langt gengið,við eigum þetta land og getum ekki látið öfgasinnaða umhverfissinna slá eign sinni á landið með því að banna alla umferð.Ég held að sumt af þessu liði hafi ekki komið á þessa staði og viti ekki alveg hvað það er að gera,er aðallega að keyra milli Rykjavíkur og KeflavíkurBaráttukveðja Eirikur Sig.
.
08.09.2010 at 19:57 #214410Vita menn hvort búið er að opna nýja veginn yfir Lyngdalsheiði ?
15.06.2010 at 14:25 #696404Fór um helgina uppí Hveravelli,vegurinn var nýheflaður og mjög góður,bara eins og skemmtlegir malarvegir eru.
Kv. Eirikur Sig.
28.02.2010 at 17:21 #684548Ég er með 15" stálfelgur,12" breiðar,er að spá hvort ég fái ekki meira flot ef ég breikka þær í 14".Er með 38" mudder og bíl sem er c. 2,6 t.með öllu í ferð.
03.08.2009 at 12:22 #205541Er að spá í að endurnýja 35″ dekk þ.e. sumarkeirsludekk á 90 crúser,hvað halda menn að komi best út ,m.v.verð, mýkt, á malarvegum,og endingu og séu vel sívöl. Kv. Eirikur Sig.
10.05.2009 at 13:12 #647398Ég er með 38" mudder undir 90 crúser.Á malbiki er ég venjulega með 25 pund, en á grófum malarvegum eða fjallvegum 12 jafnvel 10,þessi dekk þola mjög vel að vera ekki með mikið loft.
kv. Eirikur Sig.
30.10.2008 at 13:25 #631932Lyklar
20.09.2008 at 13:57 #629650Keypti í Vélaveri Krókhálsi nagla sem eru skrúfaðir í dekkin,keirði á þessu í firravetur,virkar fínt,fékk mér svo fleiri núna var að bæta í dekkin.Fást 15mm,18 og ég held 24mm langir
04.03.2008 at 19:49 #616080Ég er með
03.03.2008 at 22:14 #615998Sæll Brynjar,stýrisdælan í bílnum er tannhjóladrifin þannig að þú þarft ekki að strekkja á neinni reim,svo er heldur ekki neinn dempari nema þá eitthvað mixað,lýkleast er að stýrisdælan sé að svíkja hún hefur verið að eyðileggjast í þessum bílum. kveðja Eirikur Sig.
22.01.2008 at 21:28 #611160Lenti í þessu sama,fór norðuryfir Sprengisand milli jóla og nýárs fyrir tveimur árum,keypti olíu í Hrauneyjum,eftir það fór bíllinn mest í 3000 sn.vann ekki rassgat,þannig fór ég norðuryfir sprengisand í -16°c frosti og suður malbikið,hélt að olíuverkið væri bilað.Svo skipti ég um olíusíu,fór prufutúr uppá Hellisheiði,óþekkjanlegur bíll enda tæmdist olíutankurinn í ferðinni.
26.11.2007 at 17:38 #602962Bara að leiðrétta smá villu, ég er annar tveggja sem komum í Árbúðir á laugardagshvöld,búnir að fara í kerlingafjöll og gekk mjög vel,ekkert mál að fara yfir ánna við Gíjarfoss.
04.11.2007 at 22:45 #601854Bjartsýnisbúðir og Slakki er einn og sami skálinn,staðsettur nyrst á Hraunárdal
16.02.2007 at 12:25 #580644Sammála síðasta ræðumanni,á 90 cruiser 98 model ég skipti um vatnskassa fyrir einu og hálfu ári síðan hann var þrælstíflaður,fékk sendan vatnskassa til Egilstaða með flugi bara 1,2og3,þökk sé Grettir vatnskössum
22.12.2006 at 22:19 #572276Ég er með 90 cruiser frá 98 á 38 tommu,búinn að keira 150 þús.rétt tæp aldrei litið á drifin enginn söngur í þeim ekkert svarf í olíunni,að sjálfsögðu með 4,88 hlutföll beinskiptur bíll ætti að reyna meira á þau en í sjálfskiptum bíl,þessi hlutföll sem menn kaupa í dag hljóta einfaldlega að vera drasl,þetta er ekkert eðlileg ending
14.10.2006 at 17:45 #563404Ég er búinn að líma þetta í mínum ,virkar fínt,bara passa að bilið á milli seglanna sé rétt,mynnir að ég hafi notað pakkningalím,passa svo að kítta öll samskeiti vel svo þetta verði vatnsþétt.Svo bilaði snúrustubburinn frá læsingu og uppí grind,fékk hana hjá Jamil,virkar fínt,kveðja Eirikur
-
AuthorReplies