FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir
You are here: Home / Olgeir Örlygsson

Olgeir Örlygsson

Profile picture of Olgeir Örlygsson
Not recently active
  • Prófíll
  • Groups 0
  • Forums
  • Topics Started
  • Replies Created
  • Favorites

Forum Replies Created

Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 183 total)
1 2 … 10 →
  • Author
    Replies
  • 22.11.2012 at 22:55 #224985
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Góða kvöldið

    Nú þarf ég að fá mér ný dekk undir Mússóinn minn.

    Ég er að spá í Maxxis Buckshot Mudder MT-754

    Hafa menn einhverja reynslu af þessum dekkjum ?

    Og ef menn eru í góðu svarstuði þá er ég að velta Micro skurði fyrir mér.
    Hvaða skoðun hafa menn á Micró skurði í samhengi við endingu dekkja ?
    Hafa menn borið saman grip fyrir og eftir Micro skurð og hvað finnst mönnum ?

    Þau dekk sem ég keyri um á núna eru Bfg A/T (9 ára gömul og fúin). Þau lét ég Micró skera á sínum tíma um miðjan vetur. Þá fannst mér grip munurinn minni en ég átti von á, jafnvel bara sálrænn munur :)

    Öll svör vel þegin

    Með bestu kveðju
    Olgeir





    21.10.2012 at 20:30 #224710
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Komið þið sæl

    Er það það ekki rétt hjá mér að vegur sem merktur er ófær er ekki lokaður ?

    Ég ætlaði að skreppa upp að Einhyrnig í gær, farið inn úr Fljótshlíðinni á Emstru leið.
    Við Þórólfsá, fyrsta sprænan á leiðinni eru skilti sitt hvoru megin við veginn með upphrópun og áletruninni Impossible, á milli er strengd keðja með skilti sem á stendur Ófært.
    Þarna er færð fín í það minnsta inn að Einhyrning og sjálfsagt lengra,enda þurtt og frost.

    Nú langaði mig að forvitnast hvort einhver vissi hvort maður sé í órétti að keyra þarna eða er bara verið að fæla frá bílaleigubíla túrista ?

    Með bestu kveðju
    Olgeir Örlygsson





    03.07.2012 at 23:23 #755539
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll

    Húsráð segirðu. Svona fóðringa skipti hafa nú yfirleitt komið hjá mér með slaghamri, réttu rörbútunum, úrekum, flatslípuðum meitlum, snitttein með rörbút og nokkrum skinnum og slatta af frjóu hugmyndaflugi.

    Annars ætlaði ég að segja frá svona aukahljóði í hjólabúnaði sem kom í Mússóinn minn í fyrra. Þetta voru smellir sem ukust með með auknum hraða og komu aftan úr bílnum að því virtist. Ég taldi þetta koma úr bremsubúnaði og var búinn að tví rífa allt og skoða. Skipta um boltana sem dælurnar renna á. Prófa að spenna teygjur í bremsudælurnar, því ég taldi að hljóðið kæmi út frá titring eða einhverju tengdu því en ekkert breyttist.
    Fyrir einhverja rælni þreifaði ég á 100g ballanseringar blýi innan á annari aftur felgunni. Þá var það aðeins laust og náði að rugga örlítið og banka í felguna. Þetta var það sem myndaði hljóðið, sem náði að magnast ótrúlega upp.

    Kveðja
    Olgeir Ö.





    26.01.2012 at 12:39 #748399
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll

    Ég er búinn að vera með einn Mússó, árgerð 1998, í þrjú ár. Skipti um afturhjólalegur í 200þ km. Annars bara keyrt vandræðalaust.
    Eyðslugrannur, sá eyðslugrennsti jeppi sem ég hef átt.
    Gott að keyra.
    Gott pláss.
    Ódýrir varahlutir.
    Ódýrir í innkaupum.

    En þeir hafa örugglega einhverja annmarka og sumir geta gengið frá öllu.

    Kv. Olgeir Ö.





    30.08.2011 at 23:13 #735585
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Komið þið sæl

    Viðbótarskráning.
    Ég er skráður einn í ferðina en við verðum tveir, þannig að það má bóka það.

    Kv. Olgeir Örlygsson





    12.06.2011 at 22:14 #731743
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Ég er með 2,9 dísel, beinskiptan, á 35". Hann er í blönduðum akstri að eyða 11.4 l/100km. Hef farið í 9,8 l í langkeyrslu við góð skylirði.
    Miðað við þyngd er þetta eyðslugrensti bíll sem ég hef átt um æfina :)

    Kv. Olgeir Ö.





    22.08.2010 at 13:37 #700340
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Ég fór að prófa hvernig bíllinn fjaðraði í kross hjá mér og sé að það verður mitt fyrsta verk að aftengja ballansstangirnar, í það minnsta að framan. Enda er ballansstönginn að framan ótrúlega sver og gefur bara ekkert eftir.
    Ég ætla einnig að prófa að stilla klafana í þá afstöðu sem Addi gefur upp hér að ofan.
    Varðandi góða og slæma vindustanga fjöðrun í hinum ýmsu bílum þá hlítur að ráða miklu hvort vindustangirnar eru stuttar og sverar eða langar og mjóar. Langar og mjóar ættu að gefa míkri fjöðrun en stuttar og sverar. Hef svo sem aldrei borið þetta vísindalega saman milli bíla en finnst þó að það sé töluverður munur milli tegunda.

    Þakka fín ráð
    Kv. Olgeir Ö.





    18.08.2010 at 23:03 #700332
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Slæir og takk fyrir svörin

    Bíllinn hjá mér er hækkaður á yfirbyggingu um 4" og sennilega breytt þegar hann var nýr.
    Undir gormum að aftan eru 3cm klossar og afstaða á klöfunum og öxlum er góð, það er lítið skrúfaður upp að framan.

    Mig grunar helst að dempararnir séu of stífir, þarf að losa þá frá við tækifæri og prófa þá.

    Mbk Olgeir Ö.





    17.08.2010 at 12:23 #214036
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Hvernig finnst mönnum fjöðrun í Musso í samanburði við aðra jeppa ?

    Ég er með 98′ árgerð af Mussó 2,9 dísel á 35″ og finnst hann frekar hastur, jafnvel í samanburði við blaðfjaðrajálka sem ég hef átt áður.
    Hafa menn eitthvað verið að eiga við fjöðrunina í þessum bílum ?
    Getur hugsast að gormar og vindustangir hjá mér séu orðanar þreyttar og búnar að missa eiginleika sína ?
    Hafa menn reynslu af að taka burtu ballansstangir ?

    Með von um fróðleg svör
    Kveðja Olgeir Ö.





    16.08.2010 at 10:27 #700148
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Ég var einmitt að kíkja á dagatalið og sá að þar er ekki stikuferð á dagskrá. Er búið að afleggja þær þörfu ferðir ?

    Kv. Olgeir Ö.





    13.08.2010 at 22:27 #699912
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll

    Kúplingar (hraðtengi) á loftslögurnar færðu t.d. í Landvélum og örugglega víðar, þar gæturðu fengið loka líka.
    Svo gætirðu örugglega fengið ódýrt í verkfæralagernum svona byssu með mæli og gikk og mixað það á endan á slöngunni.

    Kv. O.Ö.





    16.03.2010 at 22:50 #687220
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Ég á svona vél og hún hefur bara reynst alveg ágætlega.
    Þetta er náttúrulega al ódýrasta og einfaldasta sort og flokkast örugglega sem drasl, en hún er búin að marg borga sig sem bílskúrsreddingavél hjá mér.
    Það á það sama við með þessa suðu og allar aðrar, það er hægt að sjóða falllega með henni ef maður eyðir smá stund í að stilla hana, hafa spíssinn hreinan og ekki of krappar beyjgur á barkanum.

    Kv. Olgeir Ö.





    30.10.2009 at 23:53 #664330
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll

    Suzuki GTI 1300 101 hestafl og fislétt. Veit um eina svona súkku 410 með svona vél og á 33" sú virkar vel.
    Allt volvó dótið er dálítið þungt þótt það sé gott.

    Kv. Olgeir Ö.





    26.10.2009 at 21:52 #663828
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll

    Er þetta ástæðan fyrir þokunni í gömlu Ártúnsbrekkunni um hálf sex í dag ? 😉
    Það var allavegana greinileg smurolíu lykt af skýinu sem leið þar yfir.

    Það er margt sem gæti verið að, allavegana öruggt að það kemmst einhverstaðar smurolía inn í brunann og það í mjög miklu magni, eiginlega meira en út frá brotnum eða föstum stimpilhring eða ventlafóðringu.

    Kv. Olgeir Ö





    27.09.2009 at 21:48 #658780
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Pabbi er á sínum öðrum Starex dísel núna og hafa þeir reynst mjög vel, lítið um bilanir, eytt litlu og komið vel út. Og þetta eru alvöru sjö manna bílar, góð sæti fyrir alla.
    Með breytingar veit ég að þeir hafa verið settir á 32" Þessir bílar eru nokkuð háir orginal og verða bara ágætis jeppar við að rífa undan þeim stigbrettinn og breyta eða fjarlægja plasthlífðarpönnuna undan þeim að framan.

    Kv. Olgeir





    13.08.2009 at 13:07 #653976
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll

    Ég er með einn svona á 31" og Hann hefur reynst mjög vel. 31" kom ég undir á án mikilla aðgerða. Ég setti 3cm klossa, sem ég fékk í Málmsteypunni Hellu, undir gorma að framan og aftan og skar örlítið úr framstuðaranum.

    Það er lítið mál að koma 33" undir, eða bara svipað mál og gert hefur verið við marga Súzuki Vitara. Þessir bílar eru á sjálfstæðri grind og því lítið mál að hækka á yfirbyggingu.
    Eitthvað pláss er til úrklippinga úr brettum, allavegana nóg til að koma 32" dekkjum undir.
    Þessir bílar eru léttir og með tiltölulega öfluga vél (2000 twincam 128 hö) og geta því komist helling á 33"
    Bíllinn hjá mér er með orginal tregðulæsingu í afturdrifi sem virkar bara ágætlega.

    Það er ekki hægt að fá lægri drifhlutföll í þessa bíla. En þeir eru þokkalega lágir í lágadrifinu, mundi alveg sleppa á 33".
    Brettakanntar voru einhverntímann fánalegir, veit ekki hvar. Hef séð þá á þessum fáu bílum sem eru á 33".
    En brettakannta mál er yfirleitt hægt að leysa með hugmyndafluginu.

    Það hafa verið sögur um handónýtar framhjólalegur. Það hefur ekki verið raunin hjá mér. Herti upp á þeim í 55þkm og smurði, er ennþá á þeim sömu 40þkm seinna.
    Afturgormar brotnuðu í 85þkm.
    Þetta eru bílar sem eru ódýrir í innkaupum og standa sig ágætlega, en það þarf náttúrulega að hugsa um þá eins og alla aðra.

    Kv. Olgeir Ö.





    31.07.2009 at 17:32 #652830
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sæll,

    Rakst á í Vörukaup um daginn ódýra flotloka úr kopar sem hafa verið teknir til að mixa og redda gömlum klósettum.

    Kv. O.Ö.





    28.07.2009 at 19:52 #652582
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Ekki veit ég hversu alvarlegur þessi utanvegarakstur var á Sprengisandi.
    En hitt sé ég strax, að þetta er þjóðhagslega haghvæmt og skapar gjaldeyristekjur í erlendri mynt, er það ekki akkurat það sem við þurfum í dag 😉

    Bestu kveðjur
    Olgeir Ö.





    12.06.2009 at 22:37 #649414
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Sælir

    Kannski ekki það besta, en örugglega allt í lagi. Passa bara uppá að láta þá lenda á sveifum sem eru hvor á móti annari, þannig ætti þyngdarmunurinn ekki að valda víbringi.
    Er örugglega sama kollhæð á þeim, mælt frá bolta og upp á topp ?
    Kv. Olgeir Ö.





    11.05.2009 at 21:39 #647410
    Profile photo of Olgeir Örlygsson
    Olgeir Örlygsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 343

    Verslunin Logey í Vesturvör Kópavogi eiga líka ansi mikið af góðum verkfærum.

    Kv. Olgeir Ö.





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 183 total)
1 2 … 10 →

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.