Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
17.11.2005 at 22:29 #532688
…það er kolatogara útgáfan sem er 86hö. Bensín (alvöru) útgáfan er heil 128hö. En ég er sammála Skúla í því að það er framleitt of lítið af alvöru jeppum og of mikið af snobbdósum.
17.11.2005 at 22:14 #532670Það hefur aldrei verið framleiddur bíll sem er bæði sparneytinn OG skemmtilegur
17.11.2005 at 14:02 #532660Þessi Bronco var í eigu Kolbeins Pálssonar ef ég man rétt.
16.11.2005 at 23:38 #532656Þessir mótorar voru í fullvöxnum 10 hjóla Ford vörubílum sem komu til landsins upp úr 1970. Þær voru ótrúlega fyrirferðarlitlar og gjörsamlega hurfu í húddinu á þessum Ford-um. Á þessum tíma var mikið gert af því að setja mótora úr vörubílum í stóru amerísku bílana, Bronco, Blaser, Ramcharger og samsvarandi pickup-a. Það var verið að nota Trader, Bedford og Perkings ásamt fleiri vélum oftast 6 sílendra línur. Og í stað þess að vera með lóló var verið með gírkassa með mjög láum fyrsta gír. Ég man eftir gömlum Dodge pickup með Trader vél sem var þannig að þú gast lagt gírstöngina rólega í fyrsta gír án þess að kúpla og hann small í gírinn án þess að busta tennur og lagði af stað.
16.11.2005 at 01:22 #531738…er tímasóun
13.11.2005 at 20:49 #532208Allavega er tæplega helmingur þeirra sem taka þátt í könnuninni að velja baráttuna fyrir jeppabreytingum og ferðafrelsi sem er einmitt þeir tveir þættir sem að voru grunnurinn að þessum klúbbi þegar hann var stofnaður.
13.11.2005 at 20:32 #519736Sælir Bronco menn. Hef nú aldrei átt svona hest sjálfur en þegar ég var yngri voru þetta aðal tækin og kunningjar mínir hafa átt marga og ég hef ferðast með þeim nokkrum. Einn sá atyglisverðasti sem ég hef komist í í kynni við er sextíu og eitthvað módel sem Hjörleifur Ólafsson úr Vík í Mýrdal (hann er núna fluttur austur á land) lengdi og setti skúffu fyrir aftan húsið og bjó til svona "double cab" úr honum. Því miður á ég engar myndir af honum en kannski hafið þið séð hann. Gaman að sjá að einhverjir eru enn að halda þessum höfðingjum við.
10.11.2005 at 19:13 #531696…hefur ekki ferðast!
08.11.2005 at 01:18 #531554Þó að þeir séu ferlegir ökumenn þá hafa þeir vit á bílum. Ég var í Kína í maí, það er talsverður fjöldi af JEEP þar, bæði Cherokee og Grand Cherokee, þeir eru víst með stóra verksmiðu þarna. En eftir að hafa séð umferðina í Bejing þá koma þessar myndir ekki á óvart. Umferðin þarna er ævintýri líkust og íslenskir ökumenn myndu vera fljótir að lenda í vandræðum þar.
05.11.2005 at 18:41 #531274Þessi hlýtur að vera áhugaverður kostur fyrir jeppamenn ef hann kemst í framleiðslu, ennþá er hann bara hugmyndabíll. Eins og stendur í greininni er hann byggður á Dodge Ram 2500 og með 325 hp Cummings diesel og orginal á 37"
04.11.2005 at 23:42 #531260Held að það skipti engu máli hvaða vél er valin í þessum bílum, það er enginn þeirra leiðinleg, léleg eða kraftlaus. Hvað hásingar varðar eru þær örugglega ekki þær sterkustu á markaðnum en þær eru heldur engir aumingjar og ef menn brjóta þær eða beyja er það væntanlega frekar aksturslagi um að kenna. Ég hef heyrt af bognum framhásingum og séð síðan myndir af sömu bílum í flugtakstöðu fyrir langstökk. Chrysler hefur sem betur fer farið þá leið með þessa bíla að halda sig við stærðina og jeppaeiginleikana í þess að vera sífellt að stækka þá og gera þá að meiri fólksbílum eins og margir aðrir framleiðendur.
04.11.2005 at 21:59 #531254Það er til skemmtileg útgáfa af Grandinum sem er með 5.9L (360) vél. Hann var bara framleiddur 1998 í u.þ.b. 5000 eintökum. Ég veit að hann er með öflugri afturhásingu (dana 44) og mig grunar að fleira sé öflugra í honum heldur en 4L og 5.2L bílunum. Það eru nokkrir svona bílar til hér á landi og þeir þekkjast meðal annars á loftrásum á húddinu og öðruvísi grilli.
04.11.2005 at 21:02 #531290…fyrir skjót og góð viðbrögð
04.11.2005 at 10:46 #531282Ég gekk upphaflega í klúbbinn vegna þess að ég vildi styðja samtök sem héldu á lofti hagsmunum eigenda breyttra jeppa og hef þess vegna engan möguleika til að haka við í þessari könnun. Ég held að það sama gildi um marga gamla félaga.
03.11.2005 at 23:10 #531248Mjög ánægður með minn Grand, 96 Laredo með línu 6-u 4 lítra.Hef átt hann í 2 og hálft ár, ekið honum á þeim tíma 44þ. km. engar alvarlegar bilanir. Hann er ennþá óbreittur en það kostar ca. 900.000 + læsingar og dekk að breyta honum fyrir 35" eða 38" í Mosfellsbænum. Minn er ekki frá USA heldur Austurríki smíðaður í Graz eins og flestir bílarnir sem voru fluttir inn af Jöfri á sínum tíma. Allir diesel bílarnir eru Austurrískir, svoleiðis hefur aldrei fengist í ameríku.
27.10.2005 at 21:20 #530050Mig minnir að gamli International Scout sem var óneitanlega stór, grófur alvöru jeppi hafi fengist með millikassa án lágadrifs og gömlu Bantam/Ford/Willis voru nú ekki sérlega stórir bílar þó að þeir séu undanfarar allra síðari tíma jeppa. Þannig skilgreiningin verður væntanlega alltaf erfið og óljós.
19.10.2005 at 23:16 #529694…..hætti við það þegar ég settist inn í hann og komst að því að ég hafði ekki pláss fyrir hnén í nasaholunum!!!
28.09.2005 at 23:09 #528230Mér finnst það lámarkskrafa að þeir sem skrifa hér á vefinn séu ekki einhverjir huldumann og það sé hægt að láta menn standa við orð sín. Mér er slétt sama þó að það kosti það að það verði aðeins færri póstar hér, það verður þá kannski meira vit í því sem eftir er.
21.09.2005 at 23:22 #527260Mér er eiginlega nokkuð sama hvað bíllinn heitir, ef hann er keyrður 300.000km+ þá er hann kominn vel á seinni hluta sinnar ferðar og þó að það sé svo sem hægt að láta bíla ganga lengur en það, þá kostar það heilmikið vegna þess að ALLT er orðið slitið og ALLT getur bilað, ekki bara vélin.
28.07.2005 at 14:23 #525214Ég fór þarna fyrir þremur árum á óbreittum Range Rover með þriggja metra langa kerru fulla af farangri í trússferð fyrir gönguhóp og það gekk vel en nafnið segir allt, þetta er óttalegur skælingur.
-
AuthorReplies