You are here: Home / Einar Þór Bjarnason
![]() |
FERÐAKLÚBBURINN 4X4 |
|||
Menu |
Var með 35" sjsk Trooper. Minnir að hann hafi verið ca. 2200 kg. Þetta er mjög góður ferðabíll og hann komst drjúgt á 5p en í snjó vantaði tilfinnanlega læsingar framan og betri að aftan (diskar sem alltaf sviku þegar áreyndi) og svo er hann framþungur. Mjög lipur í bæjnum ;=) ef það er atriði…
/etb
Var að skoða 2000 árg. af Patta í sumar þar sem eigandinn hafði fært loftinntakið úr innrabrettinu yfir í húddið með því að bora gat á þilið milli húdds og innra brettis (í raun innrabrettið) þar sem loftinntakið liggur. Hann lokaði gamla inntakinu þ.a. núna sogar vélin loftið um húddið (rétt aftan við miðju).
kv.
etb
Búinn að eiga sjsk. Trooper 35" í næstum 3 ár og er ánægður. Mjög góður ferðabíll. Eyðslan í langkeyrslu hefur farið niður í tæplega 12 l/100km á sumrin en verið ca. 15-16 á veturna. Ekki heyrt af vandræðum með varahlutaþjónustu enda er mikið til að þessum bílum og þeir enn tiltölulega nýlegir. Flestir bílar af 2000 árg. voru kallaðir inn í turbínuskipti held ég.
Frétti að það væri væntanlegur nýr Trooper til USA í sumar – veit einhver meira um það eða er þetta gömul og þreytt "frétt"?