Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
07.12.2006 at 17:43 #199115
Langar til að óska klúbbnum til hamingju með nýja samninginn við Skeljung. En hvernig hafa menn hugsað sér notkun á samningnum þegar verslað er í sjálfsölum eins og t.d. hjá ORKUNNI og hjá SHELL eftir lokun. Verður félagskortið notað sem viðskiptakort og greitt eftirá eða fyrirfram???
27.12.2004 at 03:25 #511746Sæll Siggi
Þetta var eins í patrolnum hjá mér á auto lokunum. Voru orðnar slitnar. Fékk mér manual lokur í Bílanaust og hafa þær reynst vel. Einnig voru "drunu´r" í bílnum hjá mér sem komu frá tvöfalda liðnum í framskaftinu. Strákarnir hjá Stál og Stönsum skiptu um liðinn fyrir sanngjarnt verð.
Með ferðakveðju
Einar Vals
04.12.2003 at 00:07 #481970Góða kvöldið félagar. Mikið er nú gott að heyra að seðlarnir fari að mæta. Í fyrra tók það mig 5 mánuði að fá að greiða gjaldið og nýtt félagsnúmer. Í ár er ég búinn að senda póst á gjaldkerann og hann sendi hann áfram í bankann sem sér um seðlana en enn er ekkert farið að gerast. Ég er ekki hissa á að illa gangi að innheimta gjöldin með þessum hætti. En þetta er mjög bagalegt fyrir þá sem nýta sér afslætti sem klúbburinn hefur samið um fyrir félagsmenn. T.d. fékk ég ekki afslátt hjá Bílanaust í gær þar sem ég var ekki kominn með nýtt skírteini og ekkert þýddi fyrir mig að koma með skíringar á málinu.
Vona að þetta fari að komast í lag svo maður þurfi ekki að vera að nöldra á hverju ári til að fá að borga.
Þetta er eitthvað öfugsnúið – Yfirleitt er það vandamálið að fá menn til að borga.Með félags og ferðakveðju
Einar H. Valsson
R-2900
27.02.2003 at 10:13 #469472Sæll Jóhann
Það er gott að greiðslustða félagsmanna er góð.
Enda klúbburinn góður – Bestur – Erfitt að segja.
En þar sem ég kemst ekki á fimmtudögum niður í Mörk, verður brugðið á það ráð að senda "betri" helminginn til ykkar í kvöld og redda gjaldinu.Bestu kveðjur
Einar R-2900
26.02.2003 at 09:58 #469466Sæll Siggi F.
Greiðsluseðillinn sem þú hefur fengið að borga í bankanum
gildir sem félagsskírteini og er gilt ef að hann er stimplaður af banka.Og þú hefur uppl. um þá aðila sem veita afslátt aftan á skírteininu.
Kv. Einar H.
25.02.2003 at 22:39 #192239Heilir og sælir félagar. Ábending til stjórnar.
Einhverstaðar sá ég á spjallinu um daginn að það væru dræmar heimtur á félagsgjöldum (aðeins um 300 af 1000) í janúar.
Ég gekk í klúbbinn á síðasta starfsári og gekk nokkuð vel að greiða félagsgjöldin. (enda ekki hægt að komast í nýliðaferð án þess að vera búinn að gera upp). Síðan tók nokkra mánuði að fá félagsnúmer. Í fyrra var ég svo kominn með 2 félagsnúmer. Engan fékk ég greiðsluseðilinn í haust og fór að grenslast fyrir. Fékk nú loks seðilinn sendann á nýja númerinu en get ekki með nokkru móti fengið að greiða seðilinn í banka (eins og krafist er til að fá stimpil og skírteinið gilt). ég er búinn að fá uppl. hjá félaga um reikn.nr. o.fl. en ekkert gengur. Það vantaði nefnilega allar uppl. á seðilinn nema nafnið mitt og félagsnr.
Ef eins er farið um fleiri félaga og greiðsluseðla er ekkert skrítið þó að gjaldið skili sér illa.
En örvæntið ekki – Reynt verður til þrautar að koma félagsgjaldinu til skila.
Með ferða og félagskveðju. Einar R-2900
-
AuthorReplies