Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
13.11.2006 at 00:17 #567692
Seturðu ekki myndirnar þínar inn fljótlega?
12.11.2006 at 23:22 #567682Hvað var þetta með að slökkva á símanum í gær og breiða yfir haus? Hélstu að Mikki gæti þetta ekki eða hvað? Ég er pínu sár….
12.11.2006 at 22:53 #567676Eru á leiðinni
12.11.2006 at 22:30 #567672ekki frekar 😉
En Mikki refur stóð sig vel og ég skemmti mér konunglega. Frábært að ferðast með ykkur öllum á heimleiðinni. Og kærar þakkir fyrir helgina allir sem þar voru.
12.11.2006 at 22:17 #567662En svona var það, enda ég klárlega á langlélegustu dekkjunum þarna…….
Ekki það, ég myndi halda að á svona helgi væri bara nokkuð gott fyrir nýliðann að þurfa bara einu sinni að hanga aftaní….Ég setti þó einhvern annan í ferðinni aftaní bílinn minn oftar…. 😉
12.11.2006 at 22:10 #567654Það var bara smá leikur, þegar menn festa sig þá fer ég framhjá
12.11.2006 at 22:04 #567650Mikki refur (MUSSO) var dreginn einu sinni, Þorgeir tók hann í tog upp hluta af Mosaskarðinu þar sem hann komst ekki upp þó læstur væri í bak og fyrir (ég kenni lélegum dekkjum um…..) en elsku karlinn… Hvað lentir þú oft í spottanum???
10.11.2006 at 09:52 #564208í ferðina
08.11.2006 at 10:47 #564198Aðeins 223 klst í ferðina……
07.11.2006 at 14:22 #564190Ég er sko búin að gefa upp á bátinn að krossa yfir dagana á almanakinu og farin að telja klukkustundir. Finnst allt of langt að bíða fram í enda næstu viku.
07.11.2006 at 14:19 #567102Það er fín hugmynd, það er t.d. myndavél á Hveravöllum. Eina problemið er, hvernig koma á gögnunum úr henni til byggða
06.11.2006 at 16:28 #562244Ég er búin að vera að keyra IE7 bæði í vinnu og heima og á ekki í vandræðum með innskráninguna. Hefurðu athugað að liðirnir Innanfélgasmál fá önnur nöfn þegar þú ert innskráður? Nöfnin á þeim sjást ekki fyrr.
06.11.2006 at 13:31 #564178alltaf góður
06.11.2006 at 11:52 #564170Tryggvi, verður tertan ekki örugglega nógu stór fyrir allan þennan hóp?
06.11.2006 at 09:55 #566770Þetta var bara biluð skemmtun, hélt að ég myndi drepast úr hlátri yfir honum Bjarna. Frábærlega vel skipulagt hjá skemmtinefndinni.
04.11.2006 at 14:27 #566460Að Breytismenn séu búnir að vinna baki brotnu dag og nótt við að koma sjálfrennireið for(d)mannsins á 54" eftir að hann sá myndina hér á vefnum um daginn.
04.11.2006 at 14:24 #564164Hvernig átti ég svosem að vita að þú ættir afmæli??? Ég er hvorki skyggn né að ég vinni hjá ÍE við ættartöl manna. Þetta er bara ósanngjarnt. En ég set afmælisdaginn þinn inn í Calendar hjá mér svo ég klikki sko ekki á þessu aftur…..
04.11.2006 at 14:15 #566520Þetta er heldur betur athyglisverð umræða. Eins og margir vita þá fékk ég mér jeppa í vor, óbreyttan Terrano á 31" sem átti að duga mér í nokkur ár áður en ég keypti stærri…..
Ég fór allt sem mig langaði að fara í sumar á honum, Gæsavatnaleið, Laugafell og Skagfirðingaleið. Þarna var yfir hraun og leiðinlega vegi að fara, Gæsavatnaleið var vörðuð hraunnibbum sem þurfti að fara varlega yfir og ekki var það eini grýtti kaflinn á leiðinni. Árnar voru frekar vatnslitlar og fór Terrano bara vel yfir þær torfærur. Terrano hjá mér var það sem ég tel vera akkúrat skilgreiningin í Litludeildina, þ.e.a.s. jeppi en óbreyttur (ekki jepplingur). Ég hleypti úr á Sprengisandi, í upphafi ferðar og enn meira síðar þegar á leið. Fór ég leiðina mestalla í 14-15 pundum. Skil ég það þannig eftir nokkrar ferðir í ár að það sé algjörlega nauðsynlegt að hafa þann möguleika, sérstaklega í vetrarferðum. Ég hef fulla trú á að ég hefði farið með Litludeildinni í ferðina síðasta laugardag á þessum bíl, með vel hleyptu úr dekkjum. Klárlega hefði ég getað lent í að þurfa hjálp einhversstaðar á leiðinni en ekki meira en svo að eðlilegt gæti talist, og þessvegna eru stærri bílar með í ferð og á undan hinum. Þessi ferð síðasta laugardag hefði gjarnan mátt sjá fleiri óbreytta eða lítið breytta jeppa en það er að mér skilst yfirlýstur tilgangur Litludeildarferða. Hins vegar tel ég það vera ljóst að ef Litladeildin fer að takmarka ferðir sínar við að með komist litlir jepplingar sem eru í raun á stærð við fólksbíla og væntanlega lítið frábrugðnir fjórhjóladrifnum Toyota tercel eða Subaru þá breytist starf hennar úr því að vera í slóðaakstri á fjöllum í það að aka eftir þjóðvegum landsins. Þá er hún væntanlega komin töluvert langt frá upprunanum er það ekki?
Ég er komin á 38" jeppa núna og fór á honum í ferðina fyrir viku. Ég álít Litludeildina vera fínan vettvang fyrir mig sem nýliða á stórum jeppa, þar fæ ég væntanlega tækifæri til að læra á bílinn minn þar sem minni kröfur eru gerðar til mín en ef ég færi í jeppaferð með reyndari mönnum öllum á stórum bílum. Ég myndi því alls ekki vilja láta útiloka mig frá ferðum með Litludeild.
03.11.2006 at 15:56 #564156Ég er ekki að fatta djókið í þessu. Hver eða hvað er terta birthdayboy???
03.11.2006 at 09:01 #564154Hefði ekki getað komist betur að orði sjálf…..
-
AuthorReplies