Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
20.03.2007 at 23:17 #585344
Góður punktur, Tiny it is
20.03.2007 at 22:56 #585336Junior…
Nú verðurðu bara kallaður "litli" hér eftir, ekkert Mr T neitt.
20.03.2007 at 22:04 #585330Þetta er allt of mikið
20.03.2007 at 21:40 #585326Það vantar,
Trigger : Hestur Roy Rogers,
Auk þess hefur mér oftast dottið hundar í hug til að gegna þessu nafni. En þú er líka voða dúlla
20.03.2007 at 14:29 #585232Þar sem ég er ákafur talsmaður þess að klúbburinn beri hönd fyrir höfuð sér þá er þetta bréf að mínu áliti frábært og tímabært. Takk.
16.03.2007 at 15:19 #584698Hvernig er það? Er þessi skýrsla ekki eitt það besta sem við höfum fengið upp í hendurnar varðandi þessar Norðurvegarpælingar? Skýrslan er þannig að það er væntanlega hægt að tæta hana niður í ræmur á mjög auðveldan máta. Er ekki hérna tækifæri, hvernig væri að reyna að koma þessu í fjölmiðla og fá svo að gagnrýna hana opinberlega. Ég sé t.d. ekki betur en það sé hvergi einu sinni minnst á veðurfar í skýrslunni (raunar hvergi minnst á neina neikvæða þætti yfir höfuð, nema þá helst hvort eigi að borga fyrir vegstæðið en svo er ekki tekin afstaða til þess). Ég myndi halda að fyrir vanan jeppamann með munninn á réttum stað ætti að vera hægt að gera þessa skýrslu að því opinbera grínplaggi sem hún raunverulega er. Ég sé þetta sem frábært tækifæri til að leggja í púkkið við að jarða þennan veg. Kastljós er t.d. ákjósanlegur vettvangur í þetta.
14.03.2007 at 14:46 #584486Gísli, gþþ var að ljúka við að breyta 99 módeli af Cherokee.
12.03.2007 at 12:52 #584054Ég heyrði því það hjá litlum fugli að skýringin á því að þessir jeppar hefðu verið stopp á jöklinum væri sú að þarna hefðu verið saman komnir nokkrir eðal sófariddarar sem hefðu óvænt staðið upp úr sófanum og drifið sig á fjöll áður en þeir hugsuðu sig um. Þegar þeir voru allt í einu komnir upp á jökulinn föttuðu þeir allir í einu hvað þeir voru að gera og misstu kjarkinn og enginn þorði að hreyfa sig. Hvort þetta er satt veit ég ekki en svona er þetta með litlu fuglana.
12.03.2007 at 10:24 #583692Setti ferðasögu og myndir á vefinn
06.03.2007 at 15:57 #583536Maður selur ekki Danna. Hins vegar veit ég ekki með þig, það er farið að koma tóm steypa upp úr þér eftir þessar reykingar. Það er alveg að koma til greina að falbjóða þig. Bara spurning hvort það eigi að vera fyrir eða eftir brúðkaup???
06.03.2007 at 15:47 #583532Maður bara veit ekki hvernig á að snúa sér, er ekki farið að saka mann um lögbrot og ósiðlegt athæfi. Og ég veit ekki einu sinni um hvað við erum að tala. Hef reyndar aldrei skrifað staf inn á þennan þráð.
06.03.2007 at 15:30 #583528Er búin að segja það og ítreka núna, sel ekki Danna
06.03.2007 at 15:24 #583526Hvað hefur þú verið að reykja í dag? Ég botna bara ekkert í þér. En þú mátt vita að ég er ávallt tilbúin að hjálpa þér og hvort sem það er heilablóðfall eða overdose sem er að hrjá þig þá máttu bóka mína hjálp
06.03.2007 at 15:11 #583520Að venja Mikka af sér eða selja hann? Ekki tími ég að selja Danna, hann er alltof verðmætur…..
Ég er alveg viss um að ég get lært eitthvað af þessu…. er bara ekki alveg að fatta hvað?
En hvað veit ég, byrjandinn?Og Tryggvi, mér þykir leitt að viðurkenna það, en ég skil hvorki upp né niður í þessu jái þínu. Bað ég þig að giftast mér eða???
06.03.2007 at 15:02 #583514Hvort ertu að tala um Mikka ref eða Danna? Ég er ekki alveg að fatta þetta enda bara byrjandi….
06.03.2007 at 14:53 #583508Gat nú verið að hún blandaði sér í þetta, gat svo sem gefið mér það þegar ég skrifaði innleggið. En Steffí mín, mér dettur sko ekki í hug að skella hurðum á Danna, og hann er ekki enn farinn að skella hurðum á mig jafnvel ekki um helgina þegar hann var alveg brjálaður. Og hvað með það þó ég hafi eina hurð lokaða í einhvern tíma, ég kemst hvort eð er bara inn um eina hurð í einu ekki satt.
Og hvaða völundarhús ertu að tala um? Getur sko ekki verið hann Mikki…
06.03.2007 at 14:28 #583500Hann Mikki var bara að hvíla sig í heimsókn hjá gömlum kunningja (Bílamiðstöð Lúthers). Nú er hann kominn aftur heim til mömmu og það þarf bara aðeins að hressa hann við. Svo ætlar mamma að venja hann af sér eins og hvern annan hvolp og þá verður hann væntanlega seldur. En ég kemst inn um þrjár af fjórum hurðum í augnablikinu og það verður að teljast þokkalegt ekki satt?
og ekki þú blanda þér í þetta samtal Stefanía….
06.03.2007 at 14:18 #583496Hringdi í Adda og ekki stóð á svörum.
06.03.2007 at 13:57 #199860Einhver, gæti hafa verið AddiKr var að segja mér í haust hvernig ég ætti að redda hurð sem vill ekki opnast á Musso. Ég tók ekki nógu vel eftir (skrítið…) og nú vantar mig þessar leiðbeiningar því önnur afturhurðin er föst….
Getur einhver deilt þessum upplýsingum með mér?
05.03.2007 at 10:48 #582390Eru stelpurnar ekki komnar af fjöllum eða hvað? Bíð spennt eftir fréttum.
-
AuthorReplies