Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
06.11.2003 at 12:41 #479764
Sæll Kristján. Ég er á Pæju árg 98 á 38" Ground hawk.
Mér finnst þessi dekk mjög góð, alveg kringlótt. Var á DC. En GH dekkin koma mér miklu lengra í snjó, þannig að DC nota ég sem sumardekk. Mér skilst að belgurinn á GH og Mudder sé sá sami en GH eru MIKLU hljóðlátari. Var einu sinni á nánast sléttum Mudder en samt var hann hávaðasamari er nýr GH. Mín reynsla er sú að Mudder fer ekkert meira en GH.P.S. Dekkjalagerinn var að auglýsa GH á 33.900 (Tilboð)
Svo nú er bara að drífa sig
Vona að þetta komi að notum.Kveðja Halli E-1339
30.10.2003 at 18:12 #479420Fór upp að Snæfellsjökli s.l. Laugardag og það var ekki fögur sjón. Engin snjór á jökulhálsinum og engin snjór á jöklinum sjálfum, bara glansandi svell og sprungur.
Jökullinn hefur hopað og það sem kemur undan honum er stórgrýti. Komst ekki að honum að norðanverðu eins og venjulega, en að austanverðu hefði ég sennilega komist að honum en þar var hann svo sprunginn að ég reyndi ekki við hann. En þetta var á síðasta laugardag og það hefur eitthvað snjóað síðan. vona að þetta hjálpi eitthvað.
Kveðja Halli.
E-1339
17.06.2003 at 21:19 #474252Minn bíll er "98. En er þetta ekki sama málmsteypan? Fyrir
utan smá brettabólgur. Allavega er minn ekkert hækkaður á
boddýi, skrúfaður upp að framan um 3cm. Afturhásing færð
aftur um 3cm og gormurinn færður niður um 3cm. Síðan er bara
að moka vel innan úr brettunum og allt svínvirkar og
bíllinn liggur eins og klessa á !!! öllum hraða
23.04.2003 at 23:31 #472662Væri til í að fara á jökulinn á morgun (sumardaginn fyrsta)
Ef veður leifir.Var að spá í að fara í hádeginu.
(er staddur í Grundarfirði) Það verður bjart til kl ca 22 ef það verður léttskíað.Hafið samband í síma 8667899 eða
hérna á vefspjallinu
Kveðja Halli.
10.04.2003 at 22:44 #472300Keypti mína í BYKO hún er rauð og heitir Fini.
Kostaði á opnunartilboði BYKO 26.900. En ég
held að þær kosti rúmlega 30.000 í dag.
Kom dælunni firir í húddinu.Fékk mér 10mm hraðtengi á dæluna og í stuðarann (betra að hafa bæði hraðtengin eins)
og 10mm bensínslöngu og "ventlastút" m/klemmu.
í landvélum (allt þrykkt og flott á góðu verði)
Boraði pílulausu ventlana út með 4mm bor og einnig
boraði ég ventlastútinn út (engar loftþrengingar)
Þessi dæla er að dæla 173 ltr pr mín, dælir ekki
miklum þrýsting en samt yfir 110pund.
Ég er að dæla ca 11pundum á mín. í 38" eða úr 4p
í 15p á mín. Mjög ánægður með þessa dælu.
Vona að þessar uppl. komi að notum.
Kveðja Halli.
05.04.2003 at 01:51 #472082Hef átt tvær Pæjur árg.87.
Önnur bensín en hin dísel.
Báðir langir og báðir á blaðfjöðrum.
Kveðja Halli.
30.03.2003 at 13:32 #471632Mitt állit er að ef þú ætlar að nota þetta líka fyrir startkapla skaltu hafa þetta nógu dj. svert.
Ef kapallinn er grennri en startkaplarnir og flutningsþörfin er mikil sjóðsitnar kapallinn.
Þetta virkar sem "flöskuháls" og flutningsgetan verður
mminni
(Mikil orkuþörf=Stór rafgeymir=Sverir kaplar)
og allt svínvirkar.
26.03.2003 at 15:39 #471514Dekkjalagerinn var að selja 38" Groundhawk á 39.900
Svo var Bílabúð Benna að auglýsa í útvarpinu í dag
Ný sending af ódýrum Mödder.
(Var um daginn kominn niður
fyrir 45.000 kallinn á Möddernum til félagsmanna 4×4)
Kveðja Halli.
23.03.2003 at 15:12 #471204Mjög skemmtileg og fróðleg umræða. Eins og margar umræður á þessum spjallvef.(En ekki umræður um ,Pabbi minn er miklu sterkari en pabbi þinn.)
Langar aðeins að bæta við þessar pælingar.
Mér finnst flestir sammála því að hraði breytist lítið sem ekkert hvort hleypt sé úr eða ekki.(málbandskenningin).
Ummálið sé alltaf það sama og dekkið fari jafn langt í hverjum hring hvort sem dekkið sé í 20p eða 4p.
Þá langar mig að vita (Hef ekki mikla reynslu í þessu).
Menn hafa fullyrt við mig að 38" á 12" breiðum felgum fljóti betur en 38" á 14" eða 16" breiðum felgum???
Sporlengdin sé lengri (segja að mælingar sýni fram á það).
Ég sé ekki að ummálið á dekkinu breytist eftir felgubreidd, ef dekkið á ekki að krumpast saman eða teygjast??????Mitt álit á hraða er að í stífpumpuðu dekki (mjög stífpumpuðu)
ráði heildar ummál dekksins yfirferðinni.
En í úrhleyptu dekki ráði ummál "blöðrunnar" strigans ferðinni.
14.03.2003 at 14:22 #470798Keypti mína í BYKO hún er rauð og heitir Fini.
Kostaði á opnunartilboði BYKO 26.900. En ég
held að þær kosti rúmlega 30.000 í dag.
Fékk mér 10mm hraðtengi á dæluna og í stuðarann
og 10mm bensínslöngu og "ventlastút" m/klemmu.
í landvélum (allt þrykkt og flott á góðu verði)
Boraði pílulausu ventlana út með 4mm bor og einnig
boraði ég ventlastútinn út (engar loftþrengingar)
Þessi dæla er að dæla 173 ltr pr mín, dælir ekki
miklum þrýsting en samt yfir 110pund.
Ég er að dæla ca 11pundum á mín. í 38" eða úr 4p
í 15p á mín. Mjög ánægður með þessa dælu.
Vona að þessar uppl. komi að notum.
Kveðja Halli.
04.03.2003 at 09:27 #469774Mikið rétt vals.
Siglingarfræðingurinn minn (konan) var heima að baka
rjómabollur MMMMMM. En það voru 2 gestir með í ferð
og tóku þeir eitthvað af myndum á meðan ég var að
hleypa úr eða pumpa í. Kann lítið á þessa tölvu og
þarf að fá siglingarfræðinginn til að koma þessu á netið.
(svo get ég komið með myndir til þín þegar ég kem
í saltkjöt og baunir til þín í kvöld)
04.03.2003 at 09:07 #469300Væri alveg til í að vita eitthvað meira um þetta kerfi.
Var að spá í þetta í fyrra undir "gashestöfl" í
Bílar og breytingar. Er þessi önnur kynslóð eithvað
frábrugðin þeirri fyrri? Einn voða forvitinn.
Kveðja
Halli.
02.03.2003 at 22:07 #192266Hvað eru menn að kvarta og kveina ?????????
fór upp á Snæfellsjökul í dag
(2 mars og það er SUNNUDAGUR !!!!)
Fór af stað uppúr hádegi og var að þvælast einbíla í allan dag uppi á jökli. BLANKALOGN HEIÐSKÝRT og SÓL.!!!
Færið var skemmtilegt,(svolítið erfitt)og þurfti að hafa svolítið fyrir þessu. Komst ekki alveg alla leið upp en munaði litlu.(slapp við að festa mig)
Er á Pajeró á 38″ og fór alveg niður í 1/2 pund.ROSALEGA GAMAN.
Kveðja Halli
24.02.2003 at 15:04 #192225Hvar er best að láta taka upp Patrol gírkassa ?
Verð og gæði. árg. ´94 (er birjaður að singja
aðallega í 3 og 5 gír)
Með fyrirfram þökk Halli.
22.02.2003 at 21:28 #192219hvort er betra á 2,8 MMC vél.
Er rétt að 2 1/2″ púst sé hljóðlátara og nógu svert ?
22.02.2003 at 00:36 #468962Þær eru úr einhvernskonar sílikoni
og eiga að endast margfalt lengur
verð ca 12.000 (fer eftir stærð)
með öryggi vírum og rofa.
(uppl. frá seljanda)
20.02.2003 at 13:23 #468816Kannast vel við þetta.
"klikkaðu" á Dittó og skoðaðu K&N "aukahljóð" í vefspjalli.
Kveðja Halli.
ps. gangi þér vel með smá aukahljóðum,sem venjast
furðu vel
28.12.2002 at 00:05 #191930Kannast einhver við Prolong smurbætiefnið???
Kunningi minn setti þetta efni á gamlan Galant
sem að tikkaði ansi mikið (vélin).
Og eftir uþb 30min akstur hætti vélin að tikka.
Hafið þið prófað þetta efni????
Hvaða smurbætiefni eru menn helst að nota?????
Er með Paajero 2,8 ekinn 80.000 og nota
mobil 1 og militec.
Ætti ég að halda því áfram eða nota eitthvað annað?????
27.12.2002 at 22:28 #465902Mikið rétt
Átti pantað hjá þeim einn gang og þeir hringdu í mig í dag til þess að láta mig vita að stóra sendingin væri komin.
Eða 400 dekk. Og verðið 39,900kr.
Það verða margir vel dekkjaðir í vetur.Ef það kemur vetur??????????
Óþarfa svartsýni!!!!!!!
Kveðja Halli
23.12.2002 at 21:14 #465852Sjá myndir í myndaalbúmi hjá Dittó.
-
AuthorReplies