Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
19.02.2007 at 00:06 #579620
Komnar myndir á heimasíðuna okkar, á reyndar eftir að texta þær. [url=http://www.123.is/album/allinone.aspx?fn=ditto&aid=245242598:1k1f3cb6][b:1k1f3cb6]Paraferð[/b:1k1f3cb6][/url:1k1f3cb6]
18.02.2007 at 23:53 #580860Sæll Jonni.
gott er að fylla kassan af vatni, taka slönguna af forðaboxinu (hafa hana tengda við vatnskassastútinn) setja slönguna ofaní glæra flösku fulla af vatni, setja í gang, láta ganga dálitla stund, svona er auðvelt að sjá loftbólur, ef þær koma er ekkert annað að gera en að ríffa heddið af, þetta lýsir sér eins og þegar heddið hjá mér fór, pajero 2,8 árg. 1999.
kv. Halli
18.02.2007 at 21:58 #579606Vááááááá, frábær ferð.
Þökkum kærlega fyrir okkur
kv. Halli og Gunna Magga.
16.02.2007 at 13:49 #579584Hilux dobblari, 38"
190 ltr eldsneyti, góðir spottar með teygju og án, drullutjakkur, skófla, fini loftdæla, VHF, CB, NMT, GPS, rörastuðarar að framan og aftan með prófíl, mér sýnist að það megi taka vel á því, varadekk og fullan bíl af góða skapinu.
Hlökkum mikið til,
Halli og Gunna Magga
13.02.2007 at 20:50 #580178Sæll Ingvar.
það sem að ég hef gert er að fá mér vel blauta tusku af Whitesprit (Terpentínu) og nudda vel á bæði felgu og dekk þar sem að dekk og felga snerta hvort annað. þetta verður ótrúlega stamt svona. Nota ekki lím eða neitt annað. þetta svínvirkar, allavegana hjá mér, ég hef aldrei affelgað, 7-9-13. hvort sem ég sé með soðinn kant eða ekki.
Kv. Halli
ps. veldu þér einhvern stað á dekkjunum td. staf í nafni eða eitthvað annað, láttu ventlana vísa á þetta merki (eins á öllum felgunum) ef þú affelgar eða spólar í felgu getur þú lagað (ballenserað)þetta sjálfur með því að snúa ventlinum á merkið.
Alveg brilliant.
13.02.2007 at 14:20 #579542Okkur líst vel á þessar hugmyndir Vals, þeas Mýrdalsjökull og Öldufellsleiðin til baka. Við getum verið klár á sama tíma um kl. 15-16.
Kv. Halli og Gunna Magga.
12.02.2007 at 21:35 #578670Rakst á verslun sem selur rafsuðuvélar og fl. vírar í öllum sverleikum á mjög góðu verði að mér fannst.
Niðri á Granda, ská á móti þar sem að Ellingssen var, við hliðina á björgunarsveitinni.
12.02.2007 at 11:46 #579530Góðan daginn.
Hvenar er verið að spá í að fara af stað á föstudeginum ? og er áætlaður heimkomutími á sunnudagskvöld ?
farin að hlakka til.
Kveðja Halli og Gunna Magga
08.02.2007 at 13:50 #579500Okkur langar að koma með í þessa ferð,
Halli og Gunna Magga. R3636
ps. Þetta verður örugglega bara gaman.
08.02.2007 at 13:47 #579498.
12.01.2007 at 01:12 #573668kanski í þessu tilfelli (með þann hvíta) þegar hann var að koma með framhjólin að ísbrúninni, stinga öflugum og breiðum plönkum eða einhverju sambærilegu á ská niður með hliðonum, fyrir aftan framhjól og niður fyrir dekk, plankarnir nái vel uppúr, kanski 2 metrar til að fá gott vogarafl, þeir standa skakkir upp (út til hliðar), spotti eða spilvír settur í endann á plönkonum og tekið aðeins í þá, þannig að þeir halli svolítið aftur og út á hlið, dráttarbílar á plönkonum eru ekki beint fyrir aftan heldur út á ská eins og þarf. Síðan er tekið jafnt á plönkum og bíl og bíllinn vegin upp. ef ísbrúnin er viðkvæm mætti kanski leggja vinkiljárn á ísbrúnina. Ef að plankarnir vilja renna út mætti setja spotta á milli þeirra eins framarlega og hægt er, undir bíl. Þessa aðferð mætti nota að aftan líka og toga þá plankana beint aftur. Vona að þetta skiljist
er bara að spá og spökulera og hugsa "upphátt"
samúðarkveðja, Halli.
08.01.2007 at 13:25 #574428Var að keyra hringinn í kring um smáratorg (á bak við Rúmmfatalagerinn og Elkó). Þegar ég er að koma inn á Dalveg þá kemur MIKIÐ breyttur jeppi keyrandi eftir gangstéttinni (þar sem hann komst varla fyrir)yfir gangbrautina (zebrabrautina) og inn á Dalveg. Ég þurfti að hægja á mér til að keyra ekki á hann. Auðvitað kemur svona fólk óorði á alla hina. fólk er ekkert í lagi sem gerir svona.
kv. Halli R-3636
29.08.2006 at 07:53 #558832Landvélar eru með slöngur í svona í ýmsum sverleikum á góðu verði. ég nota svona slöngu við loftdæluna og er hún alltaf mjúk og þægileg (líka í miklu frosti)
Kveðja Halli.
15.08.2006 at 10:27 #557828Þakka þér Einar, þetta er það sem ég var að leita að.
Kveðja Halli.
15.08.2006 at 01:27 #198371Sælir félagar.
Fyrir þónokkru síðan var hérna í myndaalbúminu mynd af nokkrum stimpilstöngum úr ýmsum vélum. (lágu saman hlið við hlið)
Ég bara finn þær ekki.
Gaman væri að sjá þær aftur.
Kveðja Halli.
02.07.2006 at 17:31 #555186ventillinn á soggreininni er til að taka hluta af afgasinu inn á soggreinina í hægagangi, mengar minna í hægagangi, hann lokast þegar gefið er í.
gas ?? ég hef prufað að sprauta gasi inn á soggrein á Pæjunni minni , það eina sem ég fékk útúr því var grófari gangur og hærri afgashiti, fann ekki aflaukningu. túrbína og intercooler eru til þess að koma fleiri súrefniseindum inn á vél m.v. rúmmál, og menn sprauta gasi in á vélarnar til að fá aflaukningu, þetta með súrefniseindirnar, af hverju ekki bara að sprauta hreinu súrefni inn á vélina ?er það ekki málið ? hefur einhver prufað það ? ef ekki þá á ég örugglega eftir að prufa það. alltaf gaman að spá og spekulera.
kveðja Halli R3636
26.02.2006 at 15:39 #544618Við viljum votta fjölskyldu og vinum þess látna okkar dýpstu samúð og óskum þeim slasaða góðs bata.
Halli og Gunna Magga (Dittó)
26.12.2005 at 02:29 #537016og annað betra. Á pólnum var verðið 1.380 kr.pr ltr.
En Gunni slapp við að versla það eldsneyti og slapp með 1,5 miljónir í eldsneytiskaup. VÁ
Kv. Halli
25.12.2005 at 23:11 #536978Áhöfnin á Dittó mætir.
Bílnúmer DITTÓ
24.12.2005 at 16:08 #536866‘Oskum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári
Með von um mikið af snjóJólakveðja áhöfnin á Dittó
-
AuthorReplies