Forum Replies Created
-
AuthorReplies
-
23.12.2002 at 21:13 #465850
Þú hefðir átt að vera staddur á norðanverðu Snæfellsnesi í dag, þar er snjórinn!!!!!
29.10.2002 at 17:28 #463688Hvað er Trxus?
38" og 39 1/2". Eru þetta radíaldekk? Hvað eru þetta breið dekk? Hvernig munstur? Hver er að selja þessi dekk? og síðast en ekki síst, hvað eru svona dekk að kosta? Einn forvitinn.
Halli.
27.10.2002 at 00:44 #463814Fini ermjög skemtileg dæla. Fékk mína í Bykó á tilboði 26.900kr. Dælir 173 ltr á min. Kom henni fyrir í húddinu, rofanum í grillinu og hraðtengi í stuðarann og 10mm (innanmál) bensínslöngu (frá Landvélum). Er á 38" DC og 15"x14" felgum, boraði pílulausu ventlana út með 4 mm bor og pumpa í þá og það tekur mig 1 minútu að dæla ca 11 pundum. Sem sagt 1 minúta að dæla úr 5 pundum í 16 pund eða 1 og 1/2 mínúta að dæla úr 4 pundum í 20. Get ekki annað en mælt með þessari frábæru dælu.
Halli.
19.09.2002 at 21:15 #191690Sælir félagar. Er á Pajero „98 2.8 tdi ekin um 70þ. Var að setja K&N loftsíu í hann, síu sem passar beint í síuhúsið. En það kemur aukahljóð, soghljóð era líkara kurri hægra megin að framan þegar túrbínan kemur inn (loftintakið er í hægra frambrettinu). Er þetta eðlilegt eða er eitthvað að? Þetta heyrist mjög vel, er eiginlega óþægilegur hávaði. Það heyrðist ekki boffs í gömlu síunni? Kveðja Halli
29.08.2002 at 21:12 #462888Allavega bíð ég spenntur eftir að heira tölur að vestan
26.08.2002 at 18:34 #462842ég aftur. þá er ég að spá í 38"
26.08.2002 at 18:32 #462840Sælir félagar. Þetta líst mér vel á. ef munurinn á verði er töluverður þá er ég líklegur til að vera með.
17.07.2002 at 00:47 #462414Jibbbbí það er komið grænt ljós, allt virðist í lagi, en á eftir að fara á rúntinn og prufa. Þakka ykkur kærlega fyrir góð ráð og pælingar, kveðja Halli.
16.07.2002 at 16:35 #462410Er búinn að reyna þetta og er enn á "rauðu ljósi"
16.07.2002 at 16:06 #462406Er búin að prufa þetta allt Omar og er að fá skalla (út af klóri)
16.07.2002 at 16:01 #191607Sælir félagar. Hvað er að frétta af gashestöflunum, apparat sem sprautar gasi inn á soggreina,sem að Bílanaust flutti inn ekki fyrir svo löngu síðan. Tæki sem átti að auka afl verulega (eins og mér skilst hérna á vefnum eru margir út um allt að leita að hestöflum) Ég sá á sínum tíma í einhverju blaði tilraunir með þetta á jeppa og átti að auka aflið svipað og túrbínan. Aukið afl, aukið álag en á móti hreinni bruni og minna sót í smurolíuni. Þetta er víst notað töluvert í USA. Allavega á þungavinnuvélar. hvað varð um þetta? Hefur þetta kanski reynst illa hér á landi? Kveðja Halli.
16.07.2002 at 15:00 #462402Sælir félagar. Eins og staðan er núna þá er músin orðin stöðug, en rauða ljósið (no GPS)logar alltaf. Keyrði Mapsource inn í tölvuna, heimskort, það fann GPS tækið strax og las af því.Ég vil frekar geta notað navtrek, eða eru kanski til eins góð kort fyrir mapsource og fyrir navtrek? kveðja Halli.
15.07.2002 at 23:17 #462396Takk. tölvan er með infrarauða mús og eitt serial tengi sem ég held að hafi aldrei verið sett upp mús við ? kveðja Halli PS(Þerra er eins árs talva sem ég var að kaupa)
15.07.2002 at 22:43 #191603Er með P3 600mz, 256mb, 20gb, vin 2000 prof. fartölvu með navtrek 97 og eitthvað af kortum. Garmin Etrex summit og kapal frá R Sigmunds en dótið vill ekki virka. Þessi tölva var tengd við eldra Garmin tæki(handtæki)hjá fyrri eiganda og virkaði flott.Rauða ljósið (no GPS)logar alltaf og ef ég stilli Garmin á NMEA out þá fer örin (músin)á skjánum út af skjánum og verður stjórnlaus. Það er eina sambandið sem ég næ þarna á milli.Er einhver hérna sem getur hjálpað mér. Með fyrirfram þökk. Halli
-
AuthorReplies